Skráning í Bjórgerðarkeppni Fágunar 2012
Keppnin verður haldin 28. apríl 2012.
Skrá þarf bjóra til keppni fyrir 18. apríl með því að fylla út þetta form fyrir hvern bjór.
Aðeins 36 bjórar verða valdir í keppnina samkvæmt eftirfarandi valreglum:
Bjórar félagsmanna ganga fyrir.
Þeir sem skrá bjóra til keppni skrá bjórinn sinn sem fyrsta, annað og þriðja val.
Fyrst komast allir fyrstavalsbjórar félagsmanna í keppnina eftir dagsetningu.
Ef enþá er pláss komast þeir sem voru í öðru vali inn í keppnina eftir dagsetningu o.s.frv.
Aðeins er greitt fyrir þá bjóra sem komast í keppnina.
Skila þarf bjórum á afhendingarstað í síðasta lagi 26. apríl 2012.
Afhendingarstaðir eru
- Úlfar Linnet, Álfaskeiði 27 - 220 Hafnarfirði (6996791)
- Halldór, Háteigsvegi 8 - 105 Reykjavík (8242453)
- Hrafnkatli (Brew.is), Búðavaði 15 - 110 Reykjavík (6997113)
Afhenda þarf ekki færri en 4 flöskur og ekki minna an 1,3 l af bjór (4*33cl nægir).
Frekari leiðbeiningar berast þegar tilkynnt verður hvaða bjórar komast inn.