Skráning í Bjórgerðarkeppni Fágunar 2013
Keppnin verður haldin 13. apríl 2013.
Skrá þarf bjóra til keppni í síðasta lagi 7. apríl með því að fylla út þetta form fyrir hvern bjór.
Ef ekki er hægt að taka við öllum bjórum verða bjórir valdir í keppnina samkvæmt eftirfarandi valreglum:
Bjórar félagsmanna ganga fyrir.
Þeir sem skrá bjóra til keppni skrá bjórinn sinn sem fyrsta, annað og þriðja val.
Fyrst komast allir fyrstavalsbjórar félagsmanna í keppnina eftir dagsetningu.
Ef enþá er pláss komast þeir sem voru í öðru vali inn í keppnina eftir dagsetningu o.s.frv.
Aðeins er greitt fyrir þá bjóra sem komast í keppnina. Hver innsending kostar 1500 kr, félagsmenn fá eina fría.
Skila þarf bjórum á afhendingarstað í síðasta lagi 11. apríl 2013.
Afhendingarstaðir eru
- Úlfar Linnet, Fögrukinn - 220 Hafnarfirði (6996791)
- Halldór, Álftamýri 38 - 105 Reykjavík (8583804)
- Óttar Örn, Vallengi 3 - 112 Reykjavík (8564208)
Afhenda þarf 4 flöskur 33cl eða stærri (ef um 25 cl flöskur er að ræða þarf 6).
Frekari leiðbeiningar berast þegar tilkynnt verður hvaða bjórar komast inn.