1 of 50

Báknið: Áhrif blýhúðunar regluverks á smáframleiðendur

Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri

Landslagið í landbúnaði og matvælaframleiðslu

Málþing í LbhÍ, 8. mars 2024

Almenn kynning á SSFM/BFB

Oddný Anna Björnsdóttir, framkvæmdastjóri

Síðast uppfærð í janúar 2026

2 of 50

Þau orð sem eru undirstrikuð í kynningunni og margar myndir / skjáskot�eru hlekkur þangað sem lesa má nánar um efnið

Til að geta smellt þarf að vera í “Slideshow”

3 of 50

Efnisyfirlit - hvert orð er hlekkur á þann stað í kynningunni

4 of 50

Saga Samtaka smáframleiðenda matvælaUndirbúningur að stofnun hófst í mars 2019 með þarfagreiningu��Greiningin staðfesti að þörf væri á regnhlífasamtökum�allra smáframleiðenda matvæla á landinu�óháð því hvort þeir væru í borg, bæjarfélagi eða á lögbýli��Undirbúningsstofnfundur var haldinn þann 3. september�þar sem undirbúningsstjórn var kjörin��SSFM voru svo formlega stofnuð á Hótel Sögu þann 5. nóvember 2019��Á aðalfundi Beint frá býli, 24. apríl 2022,�var samþykkt að BFB yrði aðildarfélag SSFM

Stofnfundur SSFM á Hótel Sögu. Fremst sitja framkvæmdastjóri frá 2019, Oddný Anna Björnsdóttir og formaður frá 2022, Svava Hrönn Guðmundsdóttir.

Fundarstjóri, Guðrún Hafsteinsdóttir, þáverandi formaður SI með nýkjörinni fyrstu stjórn SSFM. Þröstur H. Erlingsson, Guðný Harðardóttir, Svava Hrönn Guðmundsdóttir og Þórhildur M. Jónsdóttir. Karen Jónsdóttur vantar.

5 of 50

Tilgangur

Stuðla að öflugra samstarfi

og auknum samtakamætti

smáframleiðenda matvæla

um land allt

Markmið

Vinna að hagsmunamálum

smáframleiðenda matvæla

á öllum sviðum

vera málsvari þeirra og

stuðla að framförum

í málefnum sem þá varða

Nánar um tilgang og markmið SSFM hér

6 of 50

Tilgangur

Félag bænda sem stunda

eða hyggjast stunda sölu afurða

beint frá býli bóndans á Íslandi

Markmið

Tryggja neytendum gæðavörur

þar sem öryggi og rekjanleiki

vöru er í fyrirrúmi

Nánar um tilgang og markmið BFB hér

7 of 50

Smáframleiðandi Heimavinnsluaðili

Í 2. gr. samþykkta SSFM er smáframleiðandi skilgreindur á eftirfarandi hátt:

Aðili sem við uppgjörsdag er með hreina veltu frá sölu matvæla undir 100.000.000 kr. án vsk.

5 gr. Aðild að samtökunum geta átt þeir lögaðilar og einstaklingar sem og félagasamtök lögaðila og einstaklinga sem stunda matvælaframleiðslu í atvinnuskyni og falla undir skilgreininguna í 2. grein.

Félagsmenn aðildarfélaga SSFM geta átt beina aðild að samtökunum uppfylli þeir skilyrðin í 2. grein.

Í 3. gr. samþykkta BFB er heimavinnsluaðili skilgreindur á eftirfarandi hátt:

Rétt til aðildar að félaginu hafa þeir einstaklingar og lögaðilar sem stunda eða hyggjast stunda framleiðslu og sölu á heimaunnum afurðum á lögbýlum.

8 of 50

Stjórn SSFM

Svava Hrönn Guðmundsdóttir formaður, Sólakur / SVAVA sinnep Höfuðborgarsvæðið

Þröstur H. Erlingsson varaformaður, Birkihlíð Kjötvinnsla Norðurland / lögbýli

Skúli Þórðarson gjaldkeri, Refsstaður - Vopnfirskt gæðakjöt Austurland / lögbýli

Fida Abu Libdeh ritari, GeoSilica Iceland Suðurnes / þéttbýli

Auður Herdís Sigurðardóttir meðstjórnandi, Áskaffi góðgæti Norðurland / þéttbýli

Varamenn

Eva María Sigurbjörnsdóttir 1. varamaður, Eimverk / Bjálmholt Höfuðborgarsvæðið / lögbýli

Rúnar Ómarsson 2. varamaður, Bifröst Foods Höfuðborgarsvæðið

Mikið er lagt upp úr því að í stjórn séu einstaklingar sem�endurspegla hina fjölbreyttu flóru félagsmanna

Nánar um stjórn SSFM hér

Svava hefur verið formður frá árinu 2023

9 of 50

Stjórn BFB

Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir formaður, Grímsstaðaket Vesturland

Rúnar Máni Gunnarsson varaformaður, Sölvanes Norðurland vestra

Ísak Arnarson gjaldkeri, Efstidalur II Suðurland eystra

Þorbjörg Ásbjörnsdóttir ritari, Geitagott Lynghóli Austurland

Ólöf María Samúelsdóttir meðstjórnandi, Hvammsbúið Vestfjörðum

Varamenn

Ann-Charlotte Fernholm 1. varamaður, Sparifé frá Gilsbakka Norðurland eystra

Lovísa Rósa Bjarnadóttir 2. varamaður, Háhóll geitabú Suðurland vestra

Heiðursráðgjafar stjórnar (fv. formenn)

Jóhanna B. Þorvaldsdóttir Háafell geitfjársetur Vesturland

Hanna S. Kjartansdóttir Mýranaut Leirulæk Vesturland

Í stjórn eru félagsmenn úr öllum landshlutum

Nánar um stjórn BFB hér

Jóhanna Sjöfn hefur verið formður frá árinu 2024

10 of 50

Framkvæmdastjóri

  • Oddný Anna Björnsdóttir, viðskiptafræðingur, hóf formlega störf 1. desember 2019 og hefur sinnt því verkefni síðan.
  • Verktakasamningur um að gegna stöðu framkvæmdastjóra samhliða öðrum verkefnum.
  • Er sjálf smáframleiðandi og rekur Geislar Gautavík ehf. ásamt eiginmanni sínum.
  • Vann, á vegum Matarauðs Íslands, greininguna sem staðfesti þörfina fyrir regnhlífasamtök smáframleiðenda matvæla og var kjörin formaður undirbúningsstjórnar.
  • Verkefni sem hún hafði unnið fyrir MÍ höfðu gefið til kynna að þörf væri á slíkum samtökum og því var ákveðið gera formlega þarfagreiningu.
  • Varð einnig framkvæmdastjóri BFB þegar það varð aðildarfélag SSFM vorið 2021.

Stjórn SSFM samþykkti að ráða framkvæmdastjóra á fyrsta stjórnarfundi eftir stofnun samtakanna

Bærinn Gautavík í Berufirði er á Austurlandi

11 of 50

Bakhjarlar SSFM við stofnun

Styrkirnir frá Matarauði Íslands og Landbúnaðarklasanum voru veittir til að samtökin hefðu bolmagn til að fjármagna sig fyrstu tvö árin

  • Matarauður Íslands (4,5m)�Fimm ára verkefni á vegum ANR (2016-2020).�Frétt MÍ um stofnun samtakanna.�SSFM er að ákveðnu leyti arftaki Matarauðsins.

  • Landbúnaðarklasinn (1m)�Á aðalfundi klasans 9. mars 2023 var samþykkt�að leggja hann niður og að það fé sem í�honum væri (1,5m) rynni til SSFM.

  • Samtök iðnaðarins�Félagsmenn SSFM voru með ókeypis aðild fyrstu tvö árin.�Samstarfssamningur frá 2022.�Framkvæmdastjóri SSFM/BFB situr í stjórn�Matvælaráðs SI sem fulltrúi smáframleiðenda.

12 of 50

Stefnumótandi markmið og�lykil verkefni

Byggja á tilgangi og markmiðum samtakanna og hafa verið nánast óbreytt frá 2021.

Aðgerðaáætlun

Skrefin í hverju lykil verkefni eru útlistuð�í ítarlegri aðgerðaáætlun sem er uppfærð�í heild sinni í byrjun hvers ár.

Málefnafundur

með félagsmönnum er haldinn í kjölfarið�til að fá endurgjöf á aðgerðaáætlun ársins.

13 of 50

Stefnumótandi markmið #1�Tryggja rekstrargrundvöll

14 of 50

Aðild og ráðgjafaráð

Full aðild - 218 félagsmenn, þar af 17 í undirbúningsferli

Aðildargjald: 25.000 kr. (1. apríl 2025 - 31. mars 2026)

Helmingur á meðan aðili er í undirbúningsferli.

Á hverju ári leggja tæp 10% félagsmanna niður starfsemi sem er jú eðli frumkvöðlastarfs, en örlítið fleiri bætist við. Samtals hafa ríflega 300 fyrirtæki verið skráð frá stofnun.

Aukaaðild - styrktaraðild

Aðildargjald: 12.500 kr.

Fyrir þá sem styðja markmið samtakanna, uppfylla ekki þau skilyrði�að vera smáframleiðandi, en vilja styðja þau í verki.�

RáðgjafaráðÍ því sitja einstaklingar með reynslu og þekkingu á sviði samtakanna sem eru tilbúnir til að veita stjórn og framkvæmdastjóra ráð og stuðning.

Skráningarform á vef ssfm: ssfm.is/skraning. Einnig á vef bfb: beintfrabyli.is/skraning

15 of 50

Sprotar sem stuðla að aukinni

  • Nýsköpun - fjölbreyttara úrvali matvæla
  • Fæðuöryggi og verðmætasköpun
  • Tengingu milli neytenda og framleiðenda
  • Rekjanleika
  • Nýtingu innlendra hráefna
  • Fullnýtingu afurða og nýtingu vannýttra hráefna
  • Atvinnusköpun og byggðafestu um land allt

Smáframleiðendur - Matarfrumkvöðlar - Heimavinnsluaðilar

16 of 50

Félagsmenn SSFM/BFB

216 fyrirtæki hringinn í kringum landið

80% á landsbyggðinni

20% á höfuðborgarsvæðinu

17 of 50

Helstu samstarfsaðilar

Bændasamtök Íslands (BÍ)

Aukaaðilar / BFB aðildarfélag BÍ síðan 2021

Frkvstj SSFM/BFB í stjórn Icelandic Lamb og fulltrúi BFB á Búnaðarþingi frá 2023. Formaður starfsnefndar um innri skilyrði landbúnaðarins 2023 og 2024, allsherjarnefndar 2025 á Búnaðarþingi.�Þrír félagsmenn SSFM/BFB í stjórn, einn í varastjórn BÍ.

Samtök iðnaðarins (SI)

Samstarfssamningur�Frétt um samstarfssamninginn. Frkvstj SSFM/BFB í stjórn�Matvælaráðs SI sem fulltrúi smáframleiðenda.

Slow Food Ísland (SFÍ)Aukaaðilar�Bragðagarður og Terra Madre Nordic dæmi um samstarfsverkefni.�Formaður (Svava) og fv. formaður (Tóta) SSFM í stjórn.

VOR - verndun og ræktun

Aukaaðilar�Formaður VOR félagsmaður í SSFM/BFB.

Landshlutasamtök sveitarfélaga

Samstarfsaðilar í ólíkum verkefnum�Hafa styrkt BFB daginn fjárhagslega í sínum landshluta

SSFM/BFB, SFÍ og VOR mynduðu samráðshóp haustið 2025

  • Stefnt að ársfjórðungslegum fundum
  • Samstilla aðgerðir
  • Styðja við og taka þátt í lykilverkefnum hvers annars eins og Beint frá býli deginum, Bragðagarðinum (Slow-Food deginum) og Lífræna deginum

18 of 50

Styrkir og samstarfssamningar - í gildi 2025

  • Matarbúr Krónunnar - samstarfsaðilar Krónunnar frá 2020 og árlegur styrkur
  • Matarmót - samstarfsaðilar frá 2021
  • Beint frá býli - samstarfssamningur frá 2022
  • Samtök iðnaðarins - samstarfssamningur frá 2022
  • Bragðagarður í Grasagarðinum - samstarfsaðilar Slow Food Reykjavík frá 2023
  • Auður Austurlands - samstarfsaðilar frá 2023
  • Dagar íslenskra smáframleiðenda í Hagkaup - samstarfsaðilar frá 2023
  • Beint frá býli dagurinn - í sjö landshlutum. Landshlutasamtökin samstarfsaðilar frá 2023�Landshlutsamtökin voru einnig samstarfsaðilar í Matsjánni og á báðum styrkumsóknum um námskeiðsröðina Veganesti smáframleiðenda matvæla sem var hafnað af Matvælasjóði.�Sótt var um styrki í uppbyggngarsjóði og atvinnuþróunarsjóði fyrir daginn 2026.

  • Styrkir vegna viðburðanna okkar á Selfossi í mars:�Taste of Iceland 100þ, SSV um 100þ, Lífland 50þ, Bændasamtökin 50þ, Sælkerafélagið 25þ

Samtökin sækja um styrki eftir því sem við á og eru í samstarfi við ólíka aðila

19 of 50

Stefnumótandi markmið #2�Hámarka ávinning af aðild

20 of 50

2.1 Hagsmunagæsla - regluverk og umhverfi

Löggjöfin hámarki tækifæri til nýsköpunar og samkeppnishæfni smáframleiðenda

  • Á lista yfir umsagnaraðila hjá Atvinnuvegaráðuneytinu og nefndasviði Alþingis
  • Skrifum umsagnir um helstu mál sem snerta félagsmenn og mætum fyrir ráð og nefndir þegar þess er óskað
  • Bendum sérstaklega á umsagnir SSFM/BFB um búvörulögin (nýjasta - hlekkur á eldri í viðauka umsagnarinnar), aðgerðaáætlun matvælastefnu, hagsýni, eftirlit og gjaldskrá MAST
  • Skrifum greinar og förum í viðtöl í fjölmiðlum til að koma sjónarmiðum okkar á framfæri
  • Eigum samskipti við þingmenn og helstu tengiliði innan Atvinnuvegaráðuneytisins eftir þörfum
  • Eigum samskipti við fulltrúa Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlitanna eftir þörfum
  • Eigum samskipti við fulltrúa afurðastöðvanna og Samtaka fyrirtækja í landbúnaði eftir þörfum

21 of 50

2.1 Hagsmunagæsla - regluverk og umhverfi

Dæmi um mál sem SSFM/BFB hafa beitt sér fyrir og árangur náðst:

22 of 50

Greinaröð um báknið 2023-2024

23 of 50

Könnun meðal félagsmanna SSFM/BFB á viðhorfi þeirra til regluverks og eftirlits�í febrúar 2024 - 67 svöruðu - ný könnun gerði ári síðar en aðeins 40 svöruðu svo niðurstöður voru ekki uppfærðar

49% sögðu regluverkið og 37% eftirlitið með starfsemi sinni hafa verið að aukast

83% sögðu það myndi skipta miklu eða mjög miklu máli fyrir reksturinn ef regluverkið yrði einfaldað

65% sögðust vera fórnarlömb blýhúðunar, 26% sögðust ekki vita hvort þau væru það

80% sögðu að það myndi skipta þau miklu eða mjög miklu máli ef eftirlitið yrði einfaldara�og 74% ef það yrði skilvirkara

80% sögðu að það myndi skipta miklu eða mjög miklu máli ef kostnaður við eftirlit væri lægri

Spurningarnar eru byggðar að hluta á könnun Samtaka iðnaðarins sem var kynnt á Framleiðsluþingi samtakanna í 25. janúar 2024, erindum og umræðum á þinginu

24 of 50

Könnun meðal félagsmanna SSFM/BFB á viðhorfi þeirra til regluverks og eftirlits�í febrúar 2024 - 67 svöruðu - ný könnun gerði ári síðar en aðeins 40 svöruðu svo niðurstöður voru ekki uppfærðar

37% segjast hafa verið ofrukkuð fyrir eftirlit

28% sögðu að þeirra megin eftirlitsaðili væri hvorki lausnamiðaður né sinnti lögbundinni leiðbeiningarskyldu,�38% svöruðu „hvorki né“

62% hafa upplifað mikið eða mjög mikið ósamræmi á milli ólíkra eftirlitsaðila

31% hafa orðið fyrir því á sl. 3 árum að fleiri en einn eftirlitsaðili hafi komið þegar einn hefði nægt

56% segja tímafresti aldrei/nánast aldrei, sjaldan eða aðeins í um helmingi tilfella vera virta

Spurningarnar eru byggðar að hluta á könnun Samtaka iðnaðarins sem var kynnt á Framleiðsluþingi samtakanna í 25. janúar 2024, erindum og umræðum á þinginu

25 of 50

Ekki allt ESB / EES samningum að kenna

  • SSFM/BFB hafa um árabil bent á að regluverk Evrópusambandsins sé ekki sú Grýla sem margir vilja meina að það sé
  • Grýlan er að stórum hluta alíslensk
  • Birtist ekki einungis í hertari reglum og heimasmíðuðum ákvæðum í innleidda regluverkinu
  • Þegar kemur að framkvæmdinni læsir hún klónum ekki síður�í fólk og fyrirtæki

Algengir ágallar í framkvæmd regluverks

  • Heimatilbúnar hindranir í leyfisveitingarferlinu�og við reglubundið eftirlit
  • Ósamræmi milli eftirlitsaðila
  • Óeðlilega mikið persónulegt vald
  • Nýta ekki nógu vel það svigrúm sem gefið er í regluverkinu
  • Sinna ekki nógu vel lögbundinni leiðbeiningarskyldu
  • Virða ekki tímafresti

Áhrif blýhúðunar og ágalla í framkvæmd regluverks og eftirlits

  • Dregur úr framkvæmdavilja og verðmætasköpun
  • Veldur óþarfa töfum og eykur kostnað við�verk og athafnir
  • Fyrirtæki eiga engra annarra kosta völ en að�velta kostnaðinum út í verðlagið

⇒ Dregur úr lífsgæðum og hagsæld hér á landi

⇒ Skerðir samkeppnishæfni Íslands

Höf. Rán Flygenring

„Þetta mun ég aldrei leyfa!“

26 of 50

2.2 Auka þekkingu og þróa verkfæri

Helstu verkefni sem SSFM/BFB hafa staðið fyrir ásamt samstarfsaðilum

  • Örnámskeið / fyrirlestrar: Sjá næstu glæru

  • Matsjáin: 14 vikna rafrænt námskeið vorið 2022 - uppskeruhátíð og matarmarkaður

Höfum í tvígang (2023 og 2024) sótt um styrk í Matvælasjóð í framhald af Matsjánni,� Veganesti smáframleiðenda matvæla, en í bæði skiptin verið hafnað.

  • Matarsmiðja Farskólans í samstarfi við SSFM/BFB: 88 klst námskeiðÁtti upphaflega að vera í feb-mars 2025 en var frestað til jan-apríl 2026

  • Gæðahandbók grunnur: Hér

  • Forrit til að reikna út næringargildi matvæla: Hér

  • Faggreinaleiðbeiningar

Höfum í tvígang sótt um styrk í Matvælasjóð til gerðar leiðbeininga um Krukkumat og Villibráð en verið hafnað.� Búið að gera fyrir Hangikjöt og Geita- og sauðamjaltir.

27 of 50

Örnámskeið 2024 - glærur og upptökur

28 of 50

Námskeið fyrir matarfrumkvöðla

Framkvæmdastjóri hefur verið með opna námskeiðið Matarfrumkvöðullinn�í Hallormsstaðaskóla og LbhÍ frá 2021 - fyrirlestrarnir nú aðgengilegir félagsmönnum

Fyrirlestur 1: Vöruþróun - það helsta sem þarf að átta sig á

Fyrirlestur 2: Regluverkið, almennir hollustuhættir, umbúðir og merkingar matvæla

Fyrirlestur 3: Stjórnsýsla og eftirlit, stofnun matvælafyrirtækis og starfsleyfi

Fyrirlestur 4: Þróun á neytendamarkaði og helstu hagsmunasamtök

Fyrirlestur 5: Gerð viðskiptaáætlunar, gæðahandbókar og stefnumótandi áætlana

Einungis aðgengilegt félagsmönnum

29 of 50

2.3 Veita ráðgjöf og stuðning

Félagsmenn geta leitað eftir ráðgjöf og stuðningi frá samtökunum

  • Ef félagsmenn vantar upplýsingar eða ráðgeta þeir haft samband við framkvæmdastjóra�í gegnum síma, tölvupóst eða Messenger.
  • Ef þeir eru í vandræðum með eitthvað meta samtökin hvort þau geti beitt sér fyrir þeirra hönd.
  • Ef þeir eru að sækja um styrk geta samtökin�verið samstarfsaðilar í takt við markmið þeirra og stefnu.
  • Framkvæmdastjóri er reglulega mentor í nýsköpunarhröðlum og hafa allmargir félagsmenn�komið inn í samtökin í framhaldi af því.

30 of 50

Samskipti, samstarf og samstarfssamningar

Við sérverslanir og markaðshaldara um land allt.

Kynna félagsmenn og vörur þeirra fyrir forstöðumönnum innkaupasviða og innkaupastjórum.

Stuðla að því að vörum félagsmanna sé gert hátt undir höfði í stórverslunum og netverslunum og gerðar bæði aðgengilegri�og aðgreinanlegri, hvort heldur sem er tengt samstarfsverkefni,�átaki eða til lengri tíma.

Vinna að því að vörur félagsmanna fáist og séu sérstaklega merktar í staðbundnum (local) matvöruverslunum í þeirra nærumhverfi.

2.4 Þróa og benda á söluleiðir

31 of 50

2.5. Semja um betri kjör

Samið við þá aðila sem félagsmenn eiga gjarnan viðskipti við

Listinn yfir félagsmenn á vef samtakanna er staðfesting á aðild þegar beðið er um afslátt.

Nánari upplýsingar um kjörin eru í kynningu fyrir félagsmenn

32 of 50

2.6 Miðlun gagnlegra upplýsinga

Vefir félaganna eiga að fanga það sem þau snúast um ásamt grunnupplýsingum�sem gagnast félagsmönnum og þeim sem vilja komast í samband við þá

Meðal annars listi yfir félagsmenn

Lokaði Facebook hópurinn og póstlistinn eru fréttaveitur samtakanna - ekki vefirnir

Vefur BFB var endurgerður frá grunni sumarið 2023

Þar er hver félagsmaður með sér “spjald” og getur sjálfur sett inn upplýsingar í gegnum https://mitt.beintfrabyli.is/

33 of 50

Tengslamyndun

Félagsmenn efli hvern annan með samtali og samstarfi�- miðla gagnlegum upplýsingum til félagsmanna

  • Póstlisti - full aðild / aukaaðild / hópar tengdir verkefnum
  • Facebook hópur - fyrir félagsmenn og stuðningsnetið (fréttaveita)
  • Facebook SSFM og BFB síða - fyrir neytendur
  • Fjarfundir, staðfundir og viðburðir - með félagsmönnum
  • Messenger hópar - tengdir verkefnum
  • Bein samskipti í gegnum Messenger, síma og tölvupóst

34 of 50

2.7 Gátt inn til smáframleiðenda matvæla

Samtökin fá reglulega fyrirspurnir frá aðilum sem vilja komast í samband við smáframleiðendur, m.a. tengt:

  • Ráðstefnum, námskeiðum, fundum, verkefnum og vinnuhópumsem verið er að bjóða fulltrúa frá samtökunum og/eða�smáframleiðendum að taka þátt í
  • Ýmsum verkefnum, þ.m.t. þeir sem hafa áhuga á að selja vörur þeirra�eða veita þeim þjónustu
  • Fá samtökin sem samstarfsaðila á styrkumsóknir
  • Kaupum á búnaði sem smáframleiðendur gætu nýtt
  • kynningu á samtökunum

Rafræn könnun, m.a. með veltutengdum spurningum, verður send á félagsmenn til að ná betur utan um umfang og þróun smáframleiðslu matvæla hér á landi. Það verður þriðja slíka könnunin frá stofnun samtakanna.

Matarmót á Egilsstöðum í nóvember 2024

Ef smellt er á myndina er hægt að skoða fleiri myndir.

35 of 50

2.8 Kynningarmál og almannatengsl

Helstu viðburðir 2024 - sjá viðburðadagatal

Mars 7-8: Málþing og matarmarkaður í LbhÍ, aðalfundir, rútuferð og árshátíð á Hótel Hamri

Mars 21-22: Búnaðarþing BÍ - frkvstj þingfulltrúi og formaður nefndar um innri starfsskilyrði

Maí-júní: Matarmarkaður íslenskra smáframleiðenda í Hagkaup - samstarfsaðilar

Ágúst: Beint frá býli dagurinn á lögbýlum í hverjum landshluta

Sept-Nóv: Matarbúr Krónunnar - samstarfssamningur

Sept: Terra Madre Ítalía - formaður SSFM/BFB fór

Okt: Bragðagarður Slow Food Reykjavík í Grasagarði Rvk - samstarfsaðilar

Okt-Nóv: Stóreldhúsasýningin - SSFM/BFB voru með bás� Vorum einnig með bás á Landbúnaðarsýningunni 2022

Nóv: Matarmót á Austurlandi - samstarfsaðilar

Erindi SSFM/BFB á málþiginu 2024. Hefst á 3:46:40 mín.

Frétt bbl.is um málþingið.

36 of 50

2.8 Kynningarmál og almannatengsl

Helstu viðburðir 2025 - sjá viðburðadagatal

Feb 26: Opinn fundur - Íslensk matvæli: Einkamál fárra eða hagsmunir allra

Mars 20-21: Búnaðarþing BÍ - frkvstj þingfulltrúi BFB og formaður allsherjarnefndar

Mars 27-28: Námskeið, matarmarkaður, aðalfundur, rútuferð og árshátíð á Hótel Selfossi

Ágúst 24: Beint frá býli dagurinn á lögbýlum í hverjum landshluta

Okt 9-20: Matarbúr Krónunnar - samstarfssamningur

Okt 10-11: Terra Madre Nordic- Noregi (viðburður varð ekki)

Okt 26-27: Bragðagarður Slow Food Reykjavík í Grasagarði Rvk - samstarfsaðilar

Nóv: Matarmót á Austurlandi - samstarfsaðilar

37 of 50

38 of 50

39 of 50

40 of 50

41 of 50

42 of 50

43 of 50

Félagsmerki og upprunamerki BFB

Félagsmenn SSFM/BFB á lögbýlum hafa heimild til að:

  1. Nota merki félagsins og hugtakið beint frá býli í markaðssetningu
  2. Nota upprunamerki félagsins Frá fyrstu hendi á vörur sínar
  3. Vera með upplýsingar um starfsemi sína á vef BFB

Reglur um félagsmerkið og upprunamerkið má finna á vef BFB

44 of 50

Afmælisgreinar í Bændablaðinu

Farið yfir umgjörð og helstu áherslumál samtakanna á liðnu ári

45 of 50

Stefnumótandi markmið #3�Hámarka skilvirkni í rekstri

46 of 50

Rekstur 2020-2024

Tekjur

Að meðaltali um 8 milljónir á ári

Félagsgjöld og styrkir/samstarfssamningar

-

Gjöld

Að meðaltali rúmar 7,5 milljónir á ári

Endurgjald framkvæmdastjóra og rekstrargjöld

Eigið fé í árslok 2024

1,8 milljónir

3.1 Hámarka rekstrarhagkvæmni�3.2 Gagnsæi í rekstri

47 of 50

3.3 Skilvirk áætlanagerð og eftirfylgni�3.4 Skýrt funda- og samskiptaskipulag

Funda- og samskiptaskipulag

Stjórnir og framkvæmdastjóri funda samkvæmt starfsáætlun stjórnar í gegnum fjarfundabúnað.

Messenger hópar (Stjórn SSFM og Stjórn BFB) nýttir fyrir samskipti milli funda.

Framkvæmdastjóri á regluleg samtöl við formenn og aðra stjórnarmenn.

Stefnumótandi markmið og lykil verkefni

Byggja á tilgangi og markmiði samtakanna.

Að mestu óbreytt frá 2021.

Aðgerðaáætlun

Aðgerðaáætlunin er endurskoðuð árlega, uppfærð jafnóðum og nýjum verkefnum bætt við eftir þörfum.

Málefnafundur með félagsmönnum er haldinn í kjölfarið til að fá endurgjöf á aðgerðaáætlun ársins.

48 of 50

Stefnumótandi markmið #4Tryggja nauðsynlega�þekkingu

Allt kapp er lagt á að fylgjast náið með þróun á markaði og umhverfi smáframleiðenda, byggja upp öflugt tengslanet, þekkja núgildandi regluverk og sækja þær ráðstefnur og fundi sem við á til að tryggja að innan SSFM sé sú þekking sem nauðsynleg er til að ná markmiðum samtakanna.

49 of 50

Upplýsingar

Samtök smáframleiðenda matvæla / Beint frá býli

Lögheimili�Hjá Samtökum iðnaðarins�Borgartúni 35, 105 Reykjavík

Framkvæmdastjóri�Oddný Anna Björnsdóttir�s: 869-7411

www.ssfm.is / beintfrabyli.is�Facebook hópur SSFM / BFB�Facebook síða SSFM�Facebook síða BFB

Félögin eru rekin í gegnum kt og reikning SSFM�Kt. 561219-2140 / 133-26-201068

Bás SSFM/BFB á Landbúnaðarsýningunni í Laugardalshöll 2022

Ef smellt er á myndina er hægt að skoða fleiri myndir.

50 of 50