Staðsetning: Fjölnotarými Safnahússins við Eyrartún, kjallari.
Aldur: Miðstig grunnskóla
Tímabil: Tveggja daga námskeið,
5.–6. apríl
Tími: Kl. 13–15
Kennari: Nína Ivanova
Aðstoð: Rannveig Jónsdóttir
Námskeiðið fer fram í nýuppgerðu fjölnotarými í Safnahúsinu við Eyrartún og verður allt efni innifalið. Hámarksfjöldi þátttakenda er 15 börn, skráning fer fram á netinu og er þátttaka ókeypis.
UM NÁMSKEIÐIÐ
Námskeiðið Ævintýraheimur myndskreytinga fer fram
dagana 5.–6. apríl í Safnahúsinu við Eyrartún. Það byggir á tveimur teikningum
úr safneign Listasafns Ísafjarðar eftir Ásgrím Jónsson, sem eru innblásnar af
ævintýrunum Skessan á Steinnökkvanum og Sagan af Mjaðveigu.
Námskeiðið er
ætlað börnum á miðstigi grunnskóla og byggir á vinnubrögðum Ásgríms Jónssonar,
sem var fyrstur til að myndgera álfa, tröll og drauga úr íslenskum þjóðsögum.
Hann var brautryðjandi í myndskreytingum þjóðsagna, sem birtust fyrst á
sýningum og í bókum á fyrri hluta 20. aldar, einkum á árunum 1900–1940. Þótt
íslensk náttúra hafi verið hans helsta viðfangsefni í upphafi, hóf hann snemma
að sækja sér efnivið í þjóðsögur og ævintýri sem höfðu ekki verið myndskreytt
áður.
Nemendur munu
skoða tvö verk úr safneign safnsins og kynnast þjóðsagnamyndum Ásgríms í gegnum
bókina Korriró og Dillidó – Þjóðsagnamyndir
Ásgríms Jónssonar, sem inniheldur myndir af verkum hans.
Námskeiðið er öllum að kostnaðarlausu.
Verkefnið er hluti af Púkanum, barnamenningarhátíð
///English///
Location: Eyrartún Culture House, basement.
Age: Upper elementary school level
Duration: Two-day course, April 5–6
Time: 13:00–15:00
Teacher: Nína Ivanova
Assistance: Rannveig Jónsdóttir
The course takes place in the newly renovated multi-purpose space at the Eyrartún Culture House, and all materials are included. The maximum number of participants is 15 children, with registration online, and participation is free of charge.
ABOUT THE COURSE
The course Adventure World of Illustration will take place on April 5–6 at the Museum House by Eyrartún. It is based on two illustrations from the collection of the Ísafjörður Art Museum by Ásgrím Jónsson, inspired by the folk tales The Giantess on the Stone Horse and The Story of Mjádveig.
The course is designed for upper elementary school children and is based on the techniques of Ásgrím Jónsson, who was the first to illustrate elves, trolls, and ghosts from Icelandic folklore. He was a pioneer in illustrating folk tales, which were first showcased in exhibitions and books in the early 20th century, particularly between 1900 and 1940. While Icelandic nature was his primary focus at first, he soon turned to folk tales and fairy tales that had not been illustrated before.
Students will explore two works from the museum's collection and become familiar with Ásgrím's folk tale illustrations through the book Korriró and Dillidó – Folk Tale Illustrations by Ásgrím Jónsson, which contains images of his works.
The course is free for everyone.
The project is part of Púki, the children’s cultural festival.