Stakar máltíðir og 10 miða klippikort
Nemendur og starfsmenn sem ekki hyggjast vera í föstu fæði geta keypt í mötuneyti stakar máltíðir eða 10 skipta klippikort. Stök máltíð kostar 1.250 kr. og 10 skipta kort kosta 11.000 kr. Einungis hægt að kaupa á staðnum og staðgreiðist með korti eða peningum.