Streetballmótið 17. júní 2026
Sumarið er nánast dottið í hlað og þjóðahátíðardagur okkar Íslendinga á næsta leiti 🇮🇸
Þann 17. júní næstkomandi munu 2ja manna lið etja kappi í æsispennandi "streetball" úrsláttarkeppni á Ingólfstorgi.
Tip off verður á slaginu 13:00 og eru verðlaun af betri gerðinni... en yfir 1.000.000 kr. virði af gjafabréfum frá flottustu fyrirtækjum landsins standa til boða.
Við hvetjum keppendur til að spila drengilega en MVP mótsins hlýtur vegleg verðlaun.
Að lokum viljum við þakka Reykjavíkurborg og samstarfsaðilum mótsins fyrir sín framlög.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Ingólfstorgi á 17. júní 🎊
Athuga: úrvals- og fyrstu-deildar leikmönnum stendur ekki til boða að skrá sitt lið. ❌