Málþing um framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi - Háskóla Íslands, Stakkahlíð, fimmtudaginn 24. ágúst 2017, kl. 10-16.
Árið 2015-2016 var gerð úttekt á framkvæmd stefnu um menntun án aðgreiningar á Íslandi á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi af hálfu Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir. Niðurstöður úttektarinnar verða teknar til umfjöllunar og umræðu á málþinginu, ásamt hugmyndum um aðgerðir.
Skráningu lýkur 22. ágúst - ekki komast fleiri en 30 í hverja málstofu og verður lokað fyrir skráningu þegar þeim fjölda er náð.
Dagskrá málþingsins verður birt á vef sambandsins,
www.samband.is. Málþingið verður einnig sent út á vef.