Barnaskákmót KR verður haldið sunnudaginn 12. október 2025 og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40.
Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7 umferðir.
Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-9. bekkur. Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.
Efstu krakkarnir í hvorum flokki fá verðlaun.
Skákdeild KR býður upp á indverskan mat fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá klukkan 12:00.
Engin þátttökugjöld eru en þeir sem vilja styrkja mótaröðina er bent á að leggja inn á reikning skákdeildar KR: 0137-26-004400, kt. 441199-2019.