Norðurland eystra - samráðsfundur um stöðu samgöngumála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála þriðjudaginn 16. mars kl. 13:00-15:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála.
13:00-14:00 - Erindi
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur á Rannsóknamiðstöð HA og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptadeild HA: Helstu áskoranir og möguleikar fyrir Norðurland eystra í vegsamgöngum og undirbúningur samgöngustefnu
Gunnar H. Guðmundsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Norðurlandi, og Heimir Gunnarsson, tæknifræðingur hjá Vegagerðinni: Staðan á samgöngum á Norðurlandi eystra.
Njáll Trausti Friðbertsson, alþingsmaður: Framtíðarsýn í samgöngum landshlutans
14:00-15:00 - Umræður
Fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar.
Skráningu lýkur kl. 17:00 mánudaginn 15. mars. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.