Í Þelamerkurskóla verður starfrækt frístund fyrir skráða nemendur í 1.-4. bekk alla hefðbundna skóladaga auk þess sem frístund verður opin tvo starfsdaga frá kl. 8-15. Skrá þarf sérstaklega í frístund á þessum starfsdögum.
Frístund er gæsla gegn gjaldi fyrir 1.-4. bekk að lokinni kennslu til kl 16:15 mánudaga til fimmtudaga og til kl. 15.15 á föstudögum. Góð aðstaða er fyrir nemendur til að stunda fjölbreyttan leik og sköpun. Frístundin er starfrækt að mestu leyti á Torginu sem er við hlið matsalar. Gengið er um aðalinngang Þelamerkurskóla.
Skipulag frístundar:
Hægt er að skrá barn í allt frá einum og upp í fimm daga í viku og miðast verð við daggjald. Auk þess er hægt að skrá barn í frístund starfsdagana 26. nóvember og 27. janúar en þá daga er frístund opin frá kl. 8-15. Verðandi 1. bekkingum (árgangi 2019) verður boðið að nýta sér frístund 21. og 22. ágúst frá klukkan 9-14 sem er þá nokkurs konar aðlögunartími sérstaklega ætlaður þeim.
Skóla lýkur kl. 14.00 mánudaga - fimmtudaga og kl.13.10 á föstudögum. Að skóla loknum fara frístundabörnin á Torgið þar sem farið er yfir skipulag hvers dags. Hressing er um hálf þrjú-þrjú.
Frístund er opin þá daga sem eru skilgreindir sem hefðbundnir skóladagar skv. skóladagatali auk tveggja starfsdaga: 26. nóv. og 27. jan. Frístund er lokuð fjóra starfsdaga, þá daga þegar heimferð er kl. 12 og í skólafríum. Þessir dagar eru merktir inn á skóladagatalið.
Smáraæfingar
Tvisvar sinnum í viku hefur Ungmennafélagið Smárinn boðið upp á íþróttaæfingar fyrir börn að skóla loknum, foreldrum að kostnaðarlausu á milli kl. 14 og 15. Líklega verður um mánudaga og fimmtudaga að ræða. Fylgist með auglýsingum frá Smáranum á facebook síðu félagsins sjá hér:
https://www.facebook.com/Ungmennaf%C3%A9lagi%C3%B0-Sm%C3%A1rinn-1527101477584558
Opnunartími:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 14.00 - 16.15
Föstudagar kl. 13.10 - 15.15
Starfsfólk:
Þrír starfsmenn munu sjá um starfið og verður Berghildur Ösp Jósavinsdóttir umsjónarkona frístundar. Með henni verða Helga Hrund Þórsdóttir og Karítas Ósk Ársælsdóttir.
Skuldbinding:
Nemandi er skráður í eina önn í senn og foreldrar/forráðamenn skuldbinda sig þannig til að greiða fyrir alla önnina út frá fjölda skráðra daga. Reikningur berst í heimabanka mánaðarlega.
Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn láti vita með tölvupósti eða símtali að morgni dags ef nemandi á EKKI að fara í frístund á skráðum degi en er samt í skólanum. Ekki er heimilt að senda barnið með slík skilaboð munnlega. Gert er ráð fyrir að öll skráð börn mæti í frístund, séu þau á annað borð í skólanum, nema sérstök forföll verða og þá fyrirfram tilkynnt af foreldrum að þau eigi að fara heim í skólalok.
Lokadagsetning skráningar:
Vinsamlegast skráið barnið fyrir lok dags þann 14. ágúst nk. svo hægt sé að undirbúa starfið og húsnæðið m.t.t. fjölda skráðra barna.