BIM Ísland eru félagasamtök aðila sem koma að hönnun, framkvæmd, rekstri og eignaumsýslu mannvirkja. Markmið félagsins er að hvetja til stöðugra umbóta í notkun BIM og stafrænnar tækni til aukinna gæða og hagræðingar á líftíma mannvirkja. Við hvetjum ykkur til að slást í hópinn með okkur og saman styrkjum við íslenskan byggingariðnað.