Tilnefningar til KR-ings mánaðarins
Aðalstjórn KR byrjar með nýjung, KR-ingur mánaðarins!

KR-ingur mánaðarins er sá einstaklingur sem hefur lagt sitt af mörkum til félagsins eða verið félaginu til sóma utan skipulagðra æfinga, keppna eða launaðra vinnu á vegum KR. Einstaklingurinn getur verið iðkandi, starfsmaður, forráðamaður, sjálfboðaliði eða stuðningsmaður, þvert á deildir félagsins. 

Starfsfólk aðalstjórnar fer yfir tilnefningar í lok hvers mánaðar og birtir KR-ing mánaðarins á miðlum KR og heimasíðu félagsins. KR-ingur mánaðarins hlýtur gjafabréf á Flatey Pizza í þakkarskyni. 

Hér að neðan er hægt að senda inn tilnefningar til KR-ings mánaðarins! Allar tilnefningar verða skoðaðar en krafa er gerð um rökstuðning tilnefningar. Ekki er hægt að rekja hverjir senda inn tilnefningar. 

Áfram KR!

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn viðkomandi *
Netfang/Símanúmer viðkomandi *
Ástæða tilnefningar *
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report