Skráning sjálfboðaliða á Unglingalandsmót UMFÍ 2026 á Sauðárkróki. 
Næsta Unglingalandsmót UMFÍ, verður haldið á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina 2026.  
Mótið hefst fimmtudaginn 30. júlí og lýkur sunnudaginn 2. ágúst.

Unglingalandsmót hafa verið haldin á Sauðárkróki árin 2004, 2009, 2014 og 2023 með hjálp margrar handa.

Þegar Unglingalandsmót UMFÍ var haldið hér á Sauðárkróki árið 2023, var greitt 2.500 kr. fyrir hverja vinnustund sjálfboðaliðans til félags/deildar að þeirra vali

Skráðir tímar voru um 3.000. og greitt var til aðildarfélaga og deilda tæp 7.5 milljón.

Við treystum því á okkar frábæru sjálfboðaliða til að sinna hinum ýmsum verkefnum á Unglingalandsmóti UMFÍ nk. verslunarmannahelgi og eru verkefni við allra hæfi. Með hverri klst. styrkir þú þitt sambandi, félagi eða deild.

Hér fyrir neðan velur þú þitt samband/félag/deild sem þú vilt styrkja með þinni sjálfboðavinnu, þú getur einungis skráð þig á eitt samband/félag/deild, í hverri skráningu. Ef þú vilt styrkja fleiri sambönd/félag/deildir með þínu vinnuframlagi, þá getur þú skráð þig aftur eftir þessa skráningu og valið annað félag/deild og aðra daga/tíma.

Til dæmis gætir þú verið sjálfboðaliði hjá Golfklúbb Skagafjarðar á fimmtudegi og laugardegi þó að golfið verði einungis spilað á fimmtudeginum, en við myndum setja þig t.d. á laugardeginum í aðstoð í skráningartjald keppenda á Sauðárkróksvelli þar sem frjálsíþróttamótið fer fram, en tími þinn þar rennur samt til Golfklúbbsins.

Endilega fylltu út formið hér að neðan og við finnum út í sameiningu hvar kraftar þínir nýtast best.

Ungmennasamband Skagafjarðar

Unglingalandsmót UMFÍ 2026

Ef eitthvað er óljóst þá er velkomið að hafa samband við UMSS umss@umss.is eða í síma 453 5460

Email *
Nafn
*
Símanúmer *
Ég óska eftir því að vera sjálfboðaliði fyrir eftirtalið héraðssamband / félag / deild / á ULM 2026 *
Hvaða dag og/eða  part úr degi getur þú aðstoðað?
*
Required
Ef svar þitt var ANNAÐ í spurningunum hér fyrir ofan  (t.d. ef þú vilt einungis vinna fyrir þitt félag/deild og ekki er vitað um keppnisdag). 
Takk fyrir skráninguna.
Við verðum í sambandi ekki síðar en 28. júli.
Sjáumst um verslunarmannahelgina!
Captionless Image
A copy of your responses will be emailed to .
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report