Kringluskákmótið 2023

Kringluskákmótið 2023 fer fram fimmtudaginn 28 september, og hefst það kl. 16:30. Mótið fer fram í Kringlunni, en að mótinu stendur Víkingaklúbburinn skákfélag, með aðsetur í Víkingsheimilinu í Víkinni, í samstarfi við markaðsdeild Kringlunnar. Mótið er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning mun fara fram á Skák.is (Guli kassinn). 

Hámarkfjöldi keppenda er 30 manns og því er ekki hægt að tryggja þátttöku nema að skrá sig til leiks. Einnig er hægt að skrá sig í síma 8629744 (Gunnar). Fyrirkomulag mótsins er þannig að keppendur draga fyritækjaspjald úr hatti, sem keppandinn síðan teflir fyrir í mótinu. Skráningu líkur kl 12.00 að hádegi á mótsdag. Tefldar verða 9 umferðir með 3 2 mínútur í umhugsunartíma. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga. 

Sigurvegarinn mótsins hlýtur titilinn Kringluskákmeistari 2023 og forlátan verðlaunagrip að auki. Þrjár efstu konur og þrjú efstu ungmenni 15. ára og yngri og þrjár efstu í stúlkur 15. ára og yngri fá sérstök verðlaun (Verðlaunagrip fyrir efsta sætið og verðlaunapeningur fyrir annað og þriðja sætið). Núverandi Kringlumeistari er Jóhann Hjartarson (2022), sem telfdi fyrir Decode. Skákstjórar á mótinu verða Haraldur Baldursson og Kristján Örn Elíasson. 


Þegar skráðir keppendur

Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn
Skákstig
Netfang
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report