Fimmtudaginn 3. nóvember nk. verður tekin fyrsta skóflustungan að Fjallaböðunum í Þjórsárdal sem áætlað er að opni árið 2025. Um er að ræða baðstað og hótel þar sem samspil náttúru og hönnunar á sér engan líkan í ægifögru umhverfi Þjórsárdals.
Það væri okkur mikil ánægja ef þú sæir þér fært að fagna með okkur á þessum tímamótum.
Óskað er eftir staðfestingu á komu fyrir kl. 12 nk. miðvikudag.