Meistaramót Hugins 2018
Meistaramót Hugins (suðursvæði) 2018 hefst mánudaginn 10. september klukkan 19:30. Mótið er 7 umferða opið kappskákmót sem lýkur mánudaginn 15. október. Leyft verður að taka 2 yfirsetur í 1.- 6. umferð sem tilkynna þarf um fyrir lok næstu umferðar á undan. Vegleg og fjölbreytt verðlaun eru í boði. Umhugsunartíminn verður 1½ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótið er öllum opið og er reiknað til alþjóðlegra og íslenskra skákstiga. Skráning í mótið er á skak.is en einnig er hægt að skrá sig með því að hringja í skákstjóra s-866-0116 (Vigfús).

Teflt er einu sinni í viku á mánudögum að því undanskyldu að umferð á miðvikudegi er bætt við 3. október. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Aðalverðlaun:

1. 50.000
2. 40.000
3. 30.000

Aukaverðlaun (miðað er við alþjóðleg skákstig)

Skákmeistari Hugins (suðursvæði): Kr. 15.000.
Besti árangur undir 2000 skákstigum: Kr. 10.000.
Besti árangur undir 1800 skákstigum: Kr. 10.000.
Besti árangur undir 1600 skákstigum: Kr. 10.000.
Besti árangur stigalausra: Kr. 7.000.
Unglingaverðlaun (15 ára og yngri), 1.vl. kr. 10.000, 2. kr. 4000.

Þátttökugjöld:

Félagsmenn kr. 3.500; aðrir 4.500-
Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 2.000; Aðrir 3.000.
Allir titilhafar fá frítt í mótið

Umferðartafla:

1. umferð, mánudagur 10. september
2. umferð, mánudagur 17. september
3. umferð, mánudagur 24. september
4. umferð, mánudagur 1. október
5. umferð, miðvikudagur 3. október
6. umferð, mánudagur 8. október
7. umferð, mánudagur 15. október

Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér: https://docs.google.com/spreadsheets/d/11a_kLcsZeq1t1hGcJ7z2lBk7CkqC0LkoX9Y9dJbGhEc
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Nafn
Skákstig
Netfang
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy