Samráðsfundur verkefnisins Öruggari Suðurnes
Þann 7. maí klukkan 13:00-16:30 býður verkefnið Öruggari Suðurnes til samráðsfundar í Samkomuhúsinu í Sandgerði. 

Áhersla fundarins verður á börn og ungmenni, stöðu þeirra á Suðurnesjum, forvarnir, áskoranir og styrkleika. Því eru öll sem vinna með börnum og fjölskyldum þeirra sérstaklega boðin velkomin. 

Öruggari Suðurnes er svæðisbundið samráð um varnir gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Suðurnesjum og að verkefninu standa sveitarfélögin Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, Heilsugæslustöðin Höfða,  Keilir lögreglustjórinn á Suðurnesjum, Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, og sýslumaðurinn á Suðurnesjum, 

Viðburðurinn er þátttakendum að kostnaðarlausu en mikilvægt er að þátttakendur skrái sig til leiks. 







Sign in to Google to save your progress. Learn more
Next
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report