Suðurland - samráðsfundur um stöðu samgöngumála
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða til rafræns samráðsfundar um stöðu samgöngumála á Suðurlandi mánudaginn 15. mars kl. 10:00-12:00. Á fundinum verður fjallað um samgöngumál í landshlutanum, helstu áskoranir og tækifæri til framfara. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá með erindum og umræðum í minni hópum. Fundurinn er hluti af fundaröð um allt land í tilefni af undirbúningi grænbókar um stöðu samgöngumála.
Erindi
Sæmundur Helgason, kennari og formaður samgöngunefndar SASS
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
Helgi Kjartansson, oddviti í Bláskógabyggð og varaformaður SASS
Umræður
Fundargestum skipt upp í umræðuhópa sem fjalla um einstök viðfangsefni. Hver hópur kynnir niðurstöður sínar stuttlega í lok fundar
Skráningu lýkur kl. 17:00 föstudaginn 12. mars. Þeir sem skrá sig fá hlekk á veffundinn.