ÍM U16 Inni/ National U16 2026
Íslandsmeistaramót Innanhúss U16 2026 í bogfimi verður haldið í Bogfimisetrinu Dugguvogi 42 (áður kallað Dugguvogur 2), Reykjavík.
Dagsetning mótsins er laugardagur 2. Maí 2026.

Skráning lýkur 18. Apríl 2026 kl. 18:00 

Þátttökugjaldið er fyrir U16 er 6.500 kr

Millifærið á BFSÍ KT: 680120-1020 RN: 0515-26-680120
Senda kvittun með nafni móts (ÍM U16) og nafni keppanda í viðhengið á bogfimi@bogfimi.is
3.000 kr aukagjald bætist við þátttökugjaldið ef skráð eða greitt er eftir skráningafrest móts og aðeins tekið við skráningum eftir skráningarfrest ef pláss er í skipulagi mótsins til að koma þeim fyrir.
Ekki er endurgreitt þegar skráningafresturinn er liðinn.

**Gerðu ráð fyrir að mótið byrji snemma um morgun og taki allan daginn**
Nákvæmt skipulag/dagskrá fyrir mótið verður á Ianseo.net þegar nær dregur mótinu, einnig er að finna þar úrslit og aðrar upplýsingar um mótið.
https://www.ianseo.net/TourList.php?Year=2026&countryid=ISL&comptime=&timeType=utc schedule

Tími á þessu móti er 30 sek per ör í stað 40 sek. The time per arrrow will be 30 sec instead of 40 sec in this event. 

Aldursflokkar / Age classes:
U16 (15 ára á árinu og yngri)

Fjarlægðir og skífustærðir:
Sveigbogi:
U16 - 12 metrar, 60cm (1-10 full face)

Trissubogi:
U16 - 12 metrar, 60cm (1-10 full face small ten)

Berbogi:
U16 - 12 metrar, 60cm (1-10 full face)

Langbogi/hefðbundnir:
U16 - 12 metrar, 60cm (1-10 full face)

Hægt er að velja tegund skífu fyrir undankeppnina.
Í útsláttarkepninni munum við setja upp 1-10 full face fyrir Sveigboga, Trissuboga, Berboga og Langboga. Fólk getur farið og breytt síðan ef þau vilja skjóta á aðra skífu.

Einstaklings útsláttarkeppni:
U16 - Topp 4 halda áfram í útsláttarkeppni / Top 4 in score after qualification go to matches.
Ef tími/skipulag mótsins leyfir verður fjöldi þeirra sem halda áfram í útsláttarkeppni mögulega aukin í heild eða í ákveðnum flokkum t.d. unisex. (Er skoðað eftir að skráningu mótsins er lokið).

Félagsliða útsláttarkeppni:
U16 =  Lið er 2 hæst skorandi keppendur í undankeppni í sama íþróttafélagi, óháð kyni
Stefnt er að því að hafa útsláttarkeppni um gull á milli 2 hæstu liða eftir undankeppni, ef tími gefst mögulega fleiri.
Hvert félag getur verið með fleiri en eitt félagslið í sama flokki og verða þau þá skilgreind sérstaklega (T.d. Félagslið1, Félagslið2, Félagslið3)

Kynlaus - Unisex
Þeir sem skrá sig til keppni sem "kynlaus - Unisex" keppa bara í undankeppni og útsláttarkeppni unisex, óháð því hvaða kyn þeirra er skráð í þjóðskrá (t.d. kynsegin, þeir sem efast um eigin kyn, þeir sem eru í ferli að breyta um kyn og hver sem vill ekki eða getur ekki keppt í kvk/kk).
Þeir sem skrá sig til keppni í karla eða kvenna flokk keppa í karla og kvenna flokki og í unisex (keppni óháð kyni).

Til upplýsinga: Eftir því sem þátttaka eykst á ÍM á Íslandi er verið að skipta mótum fyrir hverja keppnisgrein eða aldursflokk þegar að mögulegt/tímabært er. Markmiðið er að stytta hvert ÍM til að minnka álag á keppendur og staff, mögulega auðvelda þeim sem búa út á landi að stytta ferðir sínar, gefa þeim sem vilja keppa í mörgum keppnisgreinum færi á því að keppa í þeim keppnisgreinum sem þeir kjósa með minna álagi, auka sýnileiki Íslandsmeistara í hverri grein, gefa þeim sem vilja keppa í mörgum aldursflokkum færi á því og mögulega koma fyrir fleiri einstaklingum/liðum í útsláttarkeppni í hverri keppnisgrein og aldursflokki á ÍM o.fl. WA/WAE hafa lengi íhugað að gera það sama með HM/EM, en hafa ekki náð að koma því fyrir í alþjóðlega mótaskipulaginu að skipta keppnisgreinum en sem komið er og því tilvalið að Ísland leiði þá þróun.

International competitors:
The event is open to international competitors (those that do not have a national ID nr. "kennitala"). International competitors cannot compete in the match brackets for the Icelandic National Title. IF international competitors are participating an extra separate "international" unisex match bracket will be made where all participants (national and international) can compete. 
To understand the rest of the information in the registration use https://translate.google.com/ 😉

Ef þig vantar aðstoð hafðu samband við bogfimi@bogfimi.is.
If you need assistance or have questions contact bogfimi@bogfimi.is

Með því að skrá þig og/eða taka þátt samþykkirðu að fara eftir reglum BFSÍ og almennum mótaskilmálum.
By registering and/or participating you consent to the terms and rules that apply to the event 
https://bogfimi.is/almennir-motaskilmalar https://bogfimi.is/log-og-reglur/
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Email *
Fornafn / FirstName *
Eftirnafn / LastName *
Símanúmer / Phone number *
Kennitala / National ID Number *
If you are a foreigner and do not have a national ID number, put your date of birth
Íþróttafélag / Country *
Flokkur /Class *
Kyn / Gender *
Aldursflokkur / Age class *
Tegund Skífu fyrir Undankeppni *
Í útsláttarkepninni munum við setja upp 1-10 full face fyrir Sveigboga, Trissuboga, Berboga og Langboga. Fólk getur farið og breytt síðan ef þau vilja skjóta á aðra skífu.
Greiðslur og skilningur *
Reikningsupplýsingar eru eftirfarandi: BFSÍ KT: 680120-1020 RN: 0515-26-680120. / International competitors can pay on arrival.
A copy of your responses will be emailed to the address you provided.
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
reCAPTCHA
This content is neither created nor endorsed by Google. - Terms of Service - Privacy Policy

Does this form look suspicious? Report