Kirkjugarðar Reykjavíkur leita að metnaðurfullum og drífandi einstaklingum í sumarstarf við umhirðu kirkjugarðanna.
Störfin felast meðal annars í vinnu við umhirðu garðanna, garðslátt og vélavinnu í Fossvogsgarði, Gufunesgarði, Kópavogsgarði og Hólavallagarði.
Vinnutíminn er frá kl. 8 - 16 mánudaga til fimmtudaga en föstudaga er unnið til kl. 12 á hádegi.
Athygli er vakin á því að um sumarstarf er að ræða og er gert ráð fyrir að starfsmaðurinn mæti á bilinu 15. maí til 1. júní og sé með viðveru til ca. 15. ágúst.
Við ráðningu í sumarstarf er ekki gert ráð fyrir að starfsmaður taki frí á ráðningartímabilinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umhirða almennra svæða (illgresishreinsun, gróðursetning og fl.)
- Garðsláttur
- Vélavinna
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að vera fæddur 2009 eða fyrr, þ.e verða a.m.k. 17 ára á árinu.
Umsækjendur sem búa í Reykjavíkurprófastsdæmum (Kópavogi, Reykjavík eða Seltjarnarnesi) hafa forgang og einnig umsækjendur sem hafa áður unnið hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og staðið sig vel.
Laun eru samkvæmt taxta Eflingar.