Golfleikjanámskeið GO 2019
Golfklúbburinn Oddur ásamt Golf Akademíu Odds standa fyrir golfleikja námskeiðum fyrir börn á aldrinum 6-12 ára á golfsvæði Urriðavallar í sumar. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl síðustu ár og taka margir framtíðarkylfingar sín fyrstu skref á námskeiðum líkt og þessum. Golfkennsla á golfleikjanámskeiðum GO er í höndum PGA kennaranna Phill Hunters og Rögnvaldar Magnússonar ásamt því að með þeim starfa aðstoðarmenn.

Hér eru dagsetningar fyrir námskeiðin í sumar.

1. námskeið: 11.-14. júní (4 dagar) - Uppselt á þetta námskeið
2. námskeið: 18.-21. júní (4 dagar) - Lokið
3. námskeið: 24.-28. júní (5 dagar)- Uppselt á þetta námskeið
4. námskeið: 1. – 5. júlí (5 dagar)
5. námskeið: 15. – 19. Júlí (5 dagar)
6. námskeið: 22. – 26. Júlí (5 dagar)

Öll börn sem skráð eru á námskeið hjá Oddi fá félagsaðild að Golfklúbbnum Oddi svokallaða ljúflingsaðild og geta haldið áfram að spila allt sumarið á okkar frábæra æfingavelli Ljúflingi.

Verð fyrir 5 daga námskeið er 15.000 kr.
Verð fyrir 4 daga námskeið er 12.500 kr.
* Börn og barnabörn félagsmanna fá 20 % afslátt
* Veittur er 20% systkinaafsláttur
* Börn sem koma á fleiri en eitt námskeið greiða lægsta gjald fyrir hvert námskeið umfram það fyrsta. Ekki er veittur systkinaafsláttur og félagsmannaafsláttur á sama iðkanda, lægsta gjald er 10.000 á 4ra daga námskeið og 12.500 á 5 daga námskeið.

Námskeiðstími er 9 – 12 á öllum námskeiðum.

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu GO í síma 565-9092 eða á netfangið oddur@oddur.is.
Frekari upplýsingar er einnig hægt að nálgast á heimasíðu GO.
Námskeiðstími er á milli 9 -12 virka daga á auglýstum dagsetningum.
Sign in to Google to save your progress. Learn more
Skráning hér á golfleikjanámskeið *
Required
Nafn barns *
Kennitala barns *
Forráðamaður *
Símanúmer forráðamanns *
Tölvupóstur *
Er forráðamaður í GO?
Clear selection
Er systkini skráð á námskeiðið?
Clear selection
Athugasemdir eða skilaboð
Submit
Clear form
Never submit passwords through Google Forms.
This content is neither created nor endorsed by Google. Report Abuse - Terms of Service - Privacy Policy