Þann 13. október næstkomandi býður Umhverfisstofnun til opins fyrirlestrar um ábyrga notkun plasts í atvinnulífinu. Við viljum gjarnan heyra frá þér - allar spurningar eru nafnlausar og órekjanlegar.
Í fyrirlestrinum munum við m.a. fjalla um:
- af hverju plast getur verið vandamál
- hvað fyrirtæki geta gert til að draga úr plastnotkun
- efnisval einnota umbúða
- regluverk sem setur einnota plastvörum takmörk, t.d. bann við tilteknum vörum, endurgjaldskrafa fyrir aðrar og merkingarskylda