Hvatningarverðlaun fræðsluráðs Reykjanesbæjar 2019
Fræðsluráð Reykjanesbæjar efnir árlega til hvatningarverðlauna fyrir einstaka kennara, kennarahópa og starfsmenn í leikskólum, grunnskólum og tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Verðlaunin eru veitt fyrir verkefni sem þykja skara fram úr og vera öðrum til eftirbreytni.
Allir sem vilja geta sent inn ábendingar um áhugaverð þróunar- og nýbreytniverkefni sem unnin hafa verið á yfirstandandi skólaári.
Skila þarf inn ábendingum fyrir 27. maí 2019.
Verðlaunin verða afhent fimmtudaginn 6. júní 2019.