Sumarnámskeið Íslenska Suzukisambandsins 2026 verður haldið í Flataskóla í Garðabæ og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar 5. - 9. ágúst. Umsóknarfrestur er til 1.apríl, umsóknir sem berast eftir það fara á biðlista.
Kennt verður á fiðlu, víólu, selló, píanó, gítar, þverflautu og blokkflautu.
Frábær hópur innlendra og erlendra kennara leiðbeina á námskeiðinu.
Skipting í hópa verður í grófum dráttum;
Tilbrigðabörn (upp í lag 4 í fyrstu bók) greiða 29.000,- krónur
Nemendur í bók 1 greiða 36.000,- krónur
Nemendur í bók 2-5 greiða 44.000,- krónur
Kammernemendur (lok bókar 5 og upp úr) greiða 52.000,-
Systkinaafsláttur: 1.barn = fullt gjald, 2.barn = 25% systkinaafsláttur, 3. barn= 50% systkinaafsláttur, 4.barn = 75% systkinaafsláttur. Ef gjald er mismunandi skal reikna afslátt af lægra gjaldinu og síðan koll af kolli (þ.e mestur afsláttur af lægsta gjaldi)
Námskeiðið er aðeins í boði fyrir þá sem greitt hafa félagsgjöld í Suzukisambandið árið 2026 sem eru innheimt í gegn um heimabanka. Athugið að nokkrir skólar greiða árgjaldið fyrir sína nemendur, það eru Tónlistarskólar Akureyrar, Hafnarfjarðar og Garðabæjar.