Veldu 6 valgreinar, valið á að byggja á áhuga og þörfum hvers og eins en ekki því hvert félagarnir stefna.
Hver nemandi á unglingastigi þarf að skila 37 kennslustundum á viku.
Nemendur í 8.-10. bekk eru með 31 kest., í kjarna og þurfa því að vera í þremur valgreinum, hver valgrein er kennd tvær kennslustundir á viku. Nemandi velur sér valgrein fyrir ½ vetur í senn, því þarf nemandi að vera í þremur valgreinum fyrir áramót og þremur eftir áramót.
Almennt er einungis er hægt að vera í einni valgrein hvern vikudag.
Oft er sama valgrein í boði fyrir og eftir áramót og er nemendum þá frjálst að velja sömu valgreinina fyrir og eftir áramót ef þeir kjósa það.
Ekki er víst að hægt verði að verða við öllum óskum nemenda um valgrein, greinar geta fallið niður vegna lítillar þátttöku eða annarra ófyrirséðra orsaka. Einnig getur komið fyrir að fleiri sækja í greinar en hægt er að koma að.
Veljið greinar með því að setja númer frá 1 til 6. Merkið 1 við það sem þið viljið mest og svo koll af kolli upp í 6.
Nemendur eiga kost á að fá metið félagsstarf eða nám utan skólans og skal þess þá getið hér. Foreldrar bera allan kostnað af tómstundastarfi sem óskað er eftir að fá metið með þessum hætti.
Metið sem ein valgrein (1- 4 klst. á viku) Metið sem tvær valgreinar (5 klst. eða meira á viku eða tvenns konar tómstundastarf)
Viltu fá metið félagsstarf eða nám utan skólans?
Choose
Nei
Já, metið sem ein valgrein (1-4 klst. á viku)
Já, metið sem tvær valgreinar (5 klst. eða meira á viku)