Frístund Varmahlíðarskóla er skólavistun fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Daglegur opnunartími er frá skólalokum til kl. 16:30. Í frístund er lögð áhersla á hlýlegt og öruggt umhverfi, frjálsan og skapandi leik þar sem börnin velja sjálf viðfangsefni og góð samskipti. Skráning í frístund er bindandi samkvæmt Innritunarreglum fyrir frístund í Skagafirði.
Frístund er opin á starfs- og foreldraviðtalsdögum skólans og í vetrarfríum frá kl. 8.00-16:00. Sérstök skráning fer fram á þessum dögum og eru þeir gjaldfærðir sérstaklega. Lokað er í jóla- og páskafríum og á fræðsludegi sveitarfélagsins sem haldinn er í ágúst ár hvert.