Barnastarf Seljakirkju er aldursskipt starf, sem fram fer í Seljakirkju einu sinni í viku fyrir hvern hóp fyrir sig.
Dagskrá er fjölbreytt og hægt er að skoða hana nánar á
http://www.seljakirkja.is/safnadarstarf/Skráning í barnastarf Seljakirkju er þátttakendum að kostnaðarlausu. Þó getur kostað í einstaka ferðir, en þeir viðburðir verða auglýstir sérstaklega.
Athygli er vakin á því að farið er með allar persónuupplýsingar sem trúnaðargögn og unnið eftir starfsreglum Þjóðkirkjunnar sem lesa má nánar um hér
https://kirkjan.is/library/Files/Stefnur/Pers%C3%B3nuverndarstefna%20%C3%BEj%C3%B3%C3%B0kirkjunnar_2019.pdfBarnastarf haustsins hefst mánudaginn 8. janúar.
Tímar barnastarfs eru eftirfarandi:
1.-4. bekkur - Fimmtudaga kl. 14:15-15:00
5.-7. bekkur - Mánudaga kl. 14:10-15:10
Við minnum foreldra á að láta frístundaheimili barns vita ef það á að sækja starfið hjá okkur á meðan það er skráð í frístund
Umsjón með barnastarfinu hafa Sr. Sigurður Már, prestur og Steinunn Anna æskulýðsfulltrúi. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Steinunni í tölvupóstfang:
steinunn@seljakirkja.is