Keppni á Unglingameistaramóti Íslands (20 ára og yngri) og Íslandsmótinu í skák 15 ára og yngri (fædd 1998 og síðar) og 13 ára og yngri (fædd 2000 og síðar) verður haldið í félagsheimili Skákfélags Akureyrar, Íþróttahöllinni, dagana 2. og 3. nóvember nk. Tefldar verða 9 umferðir eftir svissneska kerfinu og er umhugsunartíminn 20 mín. + 5 sek. Teflt verður í einum flokki.