Þriðjudaginn 28. apríl býður Tónlistarmiðstöð, í samstarfi við MMFIceland tónlistarfólki, fagaðilum og öðrum sem starfa við tónlist í síðdegisspjall um tekjuleiðir í tónlist. Þar mun miðstöðin kynna handbók sem varpar ljósi á það vistkerfi sem tónlistarfólk starfar í og miðar að því að greiða aðeins úr frumskóginum.
Í kjölfar kynningarinnar fáum við góða gesti í heimsókn til að ræða sína ferla og hvernig sköpunargleðin getur orðið sjálfbær.
Í pallborði eru:
- Bragi Valdimar Skúlason, texta- og hugmyndasmiður
- Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, leikkona og grínisti
- Árni Þór Árnason, umboðsmaður og stjórnarformaður MMF Iceland
Hvar: Tónlistarmiðstöð, Austurstræti 5, 101 Reykjavík
Hvenær: Þriðjudaginn 28. apríl klukkan 17.00