Upplýsing í samvinnu við bókasöfn í landinu gengst fyrir Bókasafnsdegi miðvikudaginn 8. september 2014 í þeim tilgangi að vekja athygli á mikilvægi bókasafna og upplýsingamiðstöðva. Bókasafnsdagurinn er einnig dagur þar sem starfsfólk gerir sér eitt og annað til ánægju.
Engin þátttökugjöld - en nauðsynlegt er að skrá þátttöku svo hægt sé að senda gögn og annað efni beint á viðkomandi bókasafn. Nánari upplýsingar á vef UPPLÝSINGAR,
www.upplysing.is. Síðasti skráningardagur er 26. ágúst.