Íslandsmót stúlkna 2013 - einstaklingskeppni fyrir stúlkur á grunnskólaaldri fer fram, á sjálfan Skákdaginn, sunnudaginn 26. janúar nk. í Skáksambandi Íslands, Faxafeni 12 og hefst kl. 11. Samhliða mótinu verður tefld Peðaskák sem er ætlað ungum keppendum sem hafa nýlega byrjað að tefla.