Reykjavíkurmót grunnskólasveita hefst í húsnæði TR að
Faxafeni 12 mánudaginn 23. febrúar kl. 16.30 með keppni 1.-3. bekkjar. Mótið er
sem fyrr samstarfsverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og
Taflfélags Reykjavíkur.
Mótinu verður skipt í þrennt að venju; 1.-3. bekkur, 4.-7. bekkur og 8.-10. bekkur. Keppni 4.-7. bekkjar og 8.-10. bekkjar fer fram
daginn eftir, þriðjudaginn 24. febrúar.
Tefldar verða 7 umferðir með
umhugsunartímanum 5 mínútur fyrir hverja skák og bætast 3 sekúndur við eftir
hvern leik (5+3). Allir grunnskólar Reykjavíkurborgar eru hvattir til
þess að senda skáksveitir í mótið.
Engar takmarkanir eru á fjölda skáksveita og
er skáksveitum hvers skóla styrkleikaraðað með bókstöfum (a-sveit, b-sveit,
c-sveit og svo framvegis). Í hverri skáksveit tefla 4 keppendur og má hver sveit hafa 0-2
varamenn. Keppanda er heimilt að tefla í
eldri flokki en aldur hans segir til um, en þó má einungis tefla í einum flokki
(sem dæmi þá má keppandi í 3.bekk tefla í flokki 4.-7.bekkjar, en hann getur þá
ekki teflt í flokki 1.-3.bekkjar). Mikilvægt er að liðsstjóri fylgi liðum hvers
skóla og er æskilegt að hver liðsstjóri stýri ekki fleiri en þremur liðum.
Dagskrá keppninnar:
Mánudagur 23. febrúar kl.16:30-19:15; 1.-3.bekkur.
Þriðjudagur 24. febrúar kl.16:30-19:15; 4.-7.bekkur.
Þriðjudagur 24. febrúar kl.19:30-22:15; 8.-10.bekkur.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum
flokki. Einnig fær efsta b-sveit hvers flokks verðlaun.
Skráning fer fram í gegnum skráningarform sem finna má
hér í fréttinni og í gula kassanum á skak.is. Skráningu í mót 1.-3.bekkjar
lýkur sunnudaginn 22. febrúar klukkan 22:00. Skráningu í hina tvo flokkana lýkur
mánudaginn 23. febrúar klukkan 22:00. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað.
Við minnum á að aðeins liðsstjórar
skrá skáksveitir til leiks á mótið.
Þegar skráð lið: