Samtök iðnaðarins bjóða m.a. upp á aðstoð og kennslu við notkun á helsta Microsoft hugbúnaði sem notaður er í hefðbundnum rekstri.
Nú þegar eru til nokkrar hljóðglærur þar sem leiðbeint er um ýmis atriði í word og excel.
(sjá með því að smella
http://www.si.is/verklag/excelkennsla/index.htm)
Auðvelt er að útbúa og bæta í safnið fleiri slíkum hljóðglærum um atrið sniðið að óskum félagsmanna SI hverju sinni.
Auk þess hafa Samtökin yfir að ráða hugbúnaði sem getur tengt 1 eða allt að 16 manns saman að horfa á tölvu leiðbeinandans þannig að þátttakandinn getur setið við eigin skrifborð á meðan hann meðtekur boðskapinn.
Ef þú hefur einhverjar óskir eða spurningar varðandi Microsoft hugbúnað þá er hér tækifæri til að fá stutta leiðbeiningu á hljóðglæru eða með öðrum hætti sem hentar þér betur.
Þú skrifar einfaldlega nokkrar orð hér að neðan og lýsir óskum þínum. Ef þú vilt ekki láta nafn þins getið þá velur þú þann reitinn hér neðst á síðunni og sendir síðan skilaboðin án persónulegra auðkenna. Ef þú velur að hægt sé að ná í þig til frekari upplýsinga og útskýringa þá velur þú þann reitinn sem opna aðgang að nýrri síðu.
Kveðja
Ferdinand Hansen
PS. ef þú hefur fleiri en tvær hugmndir þá opnar þú þessa síðu aftur.