1.
Útvega þarf vottorð frá Heilbrigðiseftirlitinu og senda það á verkefnastjóra hátíðarinnar á póstfangið
rigga@rigga.is..
2.
Gæta þarf fyllsta hreinlætis í sambandi við flutning, geymslu og sölu á allri neysluvöru.
3.
Söluaðilum ber að selja varning sinn ekki seinna en frá kl. 13.30 til 18.00 og aftur frá kl. 19.30-22.00 þann 17. júní.
4.
Frá klukkan 12 á hádegi og þar til dagskrá er lokið um kvöldið þann 17. júní er með öllu óheimilt að aka bifreið inn á
hátíðarsvæðið.
5.
Lausasala á vörum eða sælgæti er óheimil utan tjaldanna og á hátíðarsvæðinu. Hverju tjaldi er þó heimilt að hafa eitt
söluteymi sem flakkar um svæðið.
6.
Með tjaldinu fylgja borð sem raðað er upp samkvæmt ákveðinu skipulagi. Óheimilt er að setja önnur/fleiri borð eða
annað út fyrir tjaldið. Ekki er heimilit að tjalda öðru tjaldi við hlið eða á bak við sölutjaldið.
7.
Grillsvæði fyrir alla söluaðila verður á vestur enda tjaldaraðarinnar.
8.
Hverju tjaldi er skaffað rafmagn, en ekki er leyfilegt að notast við hitara og suðupotta.
9.
Sölutjöldin eru eign Kópavogsbæjar og óheimilt er að merkja tjöldin þannig að dúkur tjaldsins skemmist.
10.
Leiguverð er kr. 39.000.- Innifalið í því er tjald, gólf, næturgæsla, fluttningur, uppsetning, rafmagn, borð, stólar og
frágangur tjalds.
11.
Ef notast er við candy-floss potta eða annað sem veldur klístri og óhreinindum á tjaldinu þarf að þrífa það með rökum
klút.