Námskeið um fjármál og uppgjörsreglur í Rannsóknaáætlun ESB – Horizon 2020
Rannís og Félag rannsóknastjórja á Íslandi standa fyrir tveggja daga námskeiði um fjármál og uppgjörsreglur Rannsókna- og nýsköpunaráætlunar ESB - Horizon 2020. Námskeiðið verður 3. og 4. apríl sem hér segir:
Miðvikudag 3. apríl á Grand Hótel Reykjavík, Gallerí
Fimmtudag 4. apríl í h´sunæði Rannís, Borgartúni 30, 3. hæð
Fullt námskeiðsgjald er 15.000 kr. fyrir báða dagana, matur, kaffi og námskeiðsgögn eru innifalin. Verð fyrir félaga í Félagi rannsóknastjóra er 10.000 kr. fyrir báða dagana.