Upplýsingatafla 2. umferðar Íslandsmeistaramóts í kappakstri 2026
11. júlí 2026
http://nn.is/s8FSt
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda og ökumanns ökutækis nr. 25, keppnisstjóra |
Skjal | 22 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 15:52 |
Fundur dómnefndar
Dómnefnd kom saman kl. 14:27 að lokinni seinni kappaksturslotu.
Tímavörður hafði tekið saman bráðabirgðaúrslit keppninnar og, í umboði keppnisstjóra, lagt þau fyrir dómnefnd.
Dómnefnd staðfesti þau bráðabirgðaúrslit samkvæmt skjali nr. 16.
Dómnefnd kom aftur saman kl. 15:19. Leiðrétt bráðabirgðaúrslit höfðu þá verið tekin saman og lögð fyrir dómnefnd.
Dómnefnd staðfesti leiðrétt bráðabirgðaúrslit samkvæmt skjali nr. 21.
Engar kærur eða athugasemdir bárust fyrir lok kærufrests.
Í samræmi við framangreint staðfestir dómnefnd hér með leiðrétt bráðabirgðaúrslit samkvæmt skjali nr. 21 sem lokaúrslit keppninnar.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 21 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 15:21 |
Bráðabirgðaúrslit - leiðrétt
Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda og ökumanns ökutækis nr. 25, keppnisstjóra |
Skjal | 20 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 15:10 |
Úrskurður dómnefndar
Við vigtun ökutækja í Parc Fermé að lokinni seinni kappaksturslotu kom í ljós að ökutæki nr. 25 vigtaðist 893 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Samkvæmt grein 6.3.2 í Keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir kappakstur er lágmarksþyngd ökutækis í flokknum 900 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Ökutæki nr. 25 uppfyllti því ekki lágmarksþyngdarkröfur flokksins við lok seinni kappaksturslotu.
Keppandi og ökumaður ökutækis nr. 25 eru útilokuð úr úrslitum seinni kappaksturslotu.
Úrslit seinni kappaksturslotu skulu leiðrétt til samræmis við það.
Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda og ökumanns ökutækis nr. 85, keppnisstjóra |
Skjal | 19 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 15:08 |
Úrskurður dómnefndar
Við vigtun ökutækja í Parc Fermé að lokinni seinni kappaksturslotu kom í ljós að ökutæki nr. 86 vigtaðist 899,5 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Samkvæmt grein 6.3.2 í Keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir kappakstur er lágmarksþyngd ökutækis í flokknum 900 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Ökutæki nr. 86 uppfyllti því ekki lágmarksþyngdarkröfur flokksins við lok seinni kappaksturslotu.
Keppandi og ökumaður ökutækis nr. 86 eru útilokuð úr úrslitum seinni kappaksturslotu.
Úrslit seinni kappaksturslotu skulu leiðrétt til samræmis við það.
Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Skoðunarmanni |
Til | Dómnefndar |
Skjal | 18 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 14:59 |
Niðurstaða viktunar ökutækja:
Ökutæki númer 4 vegur 921,5 kg.
Ökutæki númer 86 vegur 899,5 kg.
Ökutæki númer 31 vegur 911,5 kg.
Ökutæki númer 85 vegur 922,0 kg.
Ökutæki númer 16 vegur 905,5 kg.
Ökutæki númer 67 vegur 913,5 kg.
Ökutæki númer 74 vegur 921,0 kg.
Ökutæki númer 33 vegur 907,0 kg.
Ökutæki númer 25 vegur 893,0 kg.
Ökutæki númer 7 vegur 916,5 kg.
Ökutæki númer 23 vegur 910,0 kg.
Ökutæki númer 1 vegur 906,5 kg.
Einar Örn Reynisson
Skoðunarmaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda og ökumanns ökutækis nr. 25, keppnisstjóra |
Skjal | 17 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 14:54 |
Úrskurður Dómnefndar
Dómnefnd tók til skoðunar akstur ökutækis nr. 25 undir gulu flaggi í seinni kappaksturslotu.
Dómnefnd aflaði og fór yfir fyrirliggjandi myndefni, upplýsingar frá tímaverði og tók skýrslu af ökumanni ökutækis nr. 25.
Staðfest er að ökumaður ökutækis nr. 25 tók fram úr ökutækjum nr. 31 og 85 undir gulu flaggi á 11. hring. Jafnframt staðfestir tímavörður, með samanburði á hringtímum 11. og 12. hrings, að ekki verður séð að ökumaður hafi dregið úr hraða vegna gula flagsins.
Við skýrslutöku kvaðst ökumaður ökutækis nr. 25 ekki hafa orðið var við gula flaggið.
Samkvæmt grein 2.5.5 b í viðauka H við Reglubók FIA skal ökumaður við eitt veifað gult flagg draga úr hraða, ekki taka fram úr og vera viðbúinn stefnubreytingu. Jafnframt skal vera augljóst að ökumaður hafi dregið úr hraða, meðal annars með því að hemla fyrr og/eða draga greinilega úr hraða í viðkomandi geira. Framúrakstur er óheimill frá fyrsta gula flaggi þar til komið er að grænu flaggi eftir atvikið.
Dómnefnd telur því staðfest að ökumaður ökutækis nr. 25 hafi bæði tekið fram úr undir gulu flaggi og ekki dregið úr hraða eins og reglur krefjast.
Dómnefnd dæmir ökumann ökutækis nr. 25 í 60 sekúndna tímarefsingu, sem bætist við heildartíma ökutækisins í seinni kappaksturslotu.
Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 16 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 14:30 |
Bráðabirgðaúrslit
Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda og ökumanns ökutækis nr. 25 |
Skjal | 15 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 14:19 |
Dómnefnd óskar eftir að ökumaður ökutækis nr. 25 mæti tafarlaust til skýrslutöku hjá dómnefnd.
Ökumaður skal hafa meðferðis myndbandsupptöku úr myndavél ökutækisins, ef hún er tiltæk.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra, Keppanda ökutækis nr. 7 og keppanda ökutækis nr. 67 |
Skjal | 14 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 14:13 |
Úrskurður dómnefndar
Dómnefnd fór yfir atvik sem átti sér stað milli ökutækja nr. 7 og nr. 67 í beygju 2 á 14. hring.
Dómnefnd aflaði og fór yfir fyrirliggjandi myndefni, skýrslu staðreyndadómara og önnur tiltæk gögn vegna atviksins.
Að mati dómnefndar skildi ökumaður ökutækis nr. 7 ekki eftir nægilegt rými fyrir ökutæki nr. 67 við útgang beygjunnar. Við það neyddist ökutæki nr. 67 út af braut og ökumaður ökutækis nr. 7 hlaut íþróttalegan ávinning af atvikinu með því að bæta stöðu sína.
Dómnefnd dæmir ökumann ökutækis nr. 7 í 15 sekúndna tímarefsingu, sem bætist við heildartíma ökutækis nr. 7 í seinni kappaksturslotu.
Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda ökutækis nr. 7 og keppanda ökutækis nr. 86 |
Skjal | 13 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 14:05 |
Dómnefnd fór yfir atvik sem átti sér stað milli ökutækja nr. 7 og 86 á 17. hring.
Dómnefnd aflaði og fór yfir fyrirliggjandi myndefni og önnur tiltæk gögn vegna atviksins.
Að mati dómnefndar varð snerting milli ökutækjanna. Í kjölfar atviksins skilaði ökumaður ökutækis nr. 7 stöðu sinni aftur til ökutækis nr. 86.
Dómnefnd telur ekki tilefni til frekari aðgerða.
Ekki verður frekar aðhafst.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 12 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 14:06 |
Staða úr seinni kappaksturslotu
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 11 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 13:51 |
Keppnisstjóri vísaði til dómnefndar atviki milli ökutækja nr. 86 og 1 í beygju 2 á 8. hring.
Dómnefnd fór yfir fyrirliggjandi myndefni og önnur tiltæk gögn vegna atviksins, ásamt samtali við staðreyndadómara.
Niðurstaða
Að mati dómnefndar verður ekki séð að annar ökumaðurinn beri meginábyrgð á atvikinu. Atvikið telst kappakstursatvik.
Úrskurður
Ekki verður frekar aðhafst vegna atviksins.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður Valgeir Hugberg Geirmundarson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Skoðunarmanns |
Skjal | 10 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 13:40 |
Keppnisstjóri fer fram á að öll ökutæki verði vigtuð að lokinni verðlaunaafhendingu.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 9 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 12:55 |
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 8 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 12:48 |
Staða úr fyrri kappaksturslotu
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 7 |
Dagsetning | 16. ágúst 2026 |
Klukkan | 11:55 |
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 6 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 11:49 |
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 5 |
Dagsetning | 11.7.2026 |
Klukkan | 11:12 |
Fundur dómnefndar
Fundur dómnefndar
Mættir eru auk dómnefndar þeir Ingimundur Helgason öryggisfulltrúi, Einar Örn Reynisson skoðunarmaður og Baldvin Hansson keppnisstjóri.
Skoðunarmaður upplýsir að öll tólf ökutæki hafi verið skoðuð og fengið rásheimild.
Öryggisfulltrúi hefur farið yfir það sem undir hann heyrir og allt er klárt til að hefja akstur.
Keppnisstjóri hefur lokið keppendafundi og segir braut og starfsmenn tilbúna.
Öll leyfi fyrir keppninni hafa verið sannreynd og að framangreindum upplýsingum fengnum heimilar dómnefnd að ökutæki verði ræst til tímatökuæfingar samkvæmt dagskrá.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Rafnar Snær Baldvinsson Aðalsteinn Símonarson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda, liðsstjóra og ökumanna |
Skjal | 4 |
Dagsetning | 11. júlí 2026 |
Klukkan | 08:41 |
Allar tímasetningar, keppnisklukkan og ákvarðanir um tíma við rekstur keppninnar miðast við tímann á vefsíðunni time.is sem er öllum opin á netinu.
Tveir brautarverðir vakta brautina alla keppnina. Sjö brautarvörslupóstar með ljósabúnaði eru staðsettir við brautina. Þeir eru númeraðir 1 til 7. Ökumönnum ber að kynna sér staðsetningu þessarra ljósapósta og horfa til þeirra við akstur í brautinni þar sem litur þeirra gefur til kynna stöðu brautarinnar hverju sinni.
Staðsetning ljósapósta á meðfylgjandi korti er til viðmiðunar og getur breyst ef aðstæður krefjast þess. Staðsetning þeirra við lok tímatökuæfingar markar endanlega staðsetningu í fyrri og seinni kappaksturslotum.
Þessi mynd sýnir áætlaða staðsetningu ljósapóstanna (merkt "Brautarvörður" á myndinni):
Við póst 1 geta ökumenn átt von á að fá svart flagg (auk ljóssins sem staðsett er við þennan póst) og ber þeim þá að aka beint inn í pitt. Ef fleiri en eitt ökutæki kemur að flaggpóstinum á sama tíma reynir flaggari að benda sérstaklega á það ökutæki sem átt er við. Ef engar bendingar eru gerðar þegar fleiri en eitt ökutæki koma saman að póstinum og sjá svart flagg skulu öll ökutæki sem að póstinum koma aka inn í pitt.
Ekin verður hefðbundin brautarleið eins og hún lá á æfingu miðvikudaginn 8. júlí s.l.
Brautarmörk miðast við öll dekk inni á malbiki. Af því leiðir að fari eitt dekk eða fleiri út fyrir malbik teljast brautarmörk hafa verið rofin og því má búast við að hringtími í tímatökuæfingu eða tími hraðasta hrings í keppnislotu verði felldur niður komi upp slíkt tilfelli.
Jafnframt má ökumaður búast við refsingum rjúfi hann brautarmörk ítrekað innan tímatöku- eða tiltekinnar keppnislotu.
Allar keilur við brautina eru utan brautarmarka. Snerti ökutæki keilu er telst það því hafa farið út fyrir brautina.
Ökumenn skulu aka rakleitt að ráslínu úr pitti og fylgja leiðbeiningum ræsis. Ekki skal aka alla brautina heldur taka fyrstu vinstri beygju í U og að ráslínu. Nauðsynlegt er fyrir ökumann að vita á eftir hverjum er ræst til að uppröðun gangi greiðlega fyrir sig.
Fyrsta ökutæki ræsir vinstra megin á brautinni!
Ræsir er til taks á ráslínu. Hann stjórnar uppstillingu fyrir ræsingu.
Ræst er með grænu flaggi. Flaggið er reist og stendur uppi í 1-8 sekúndur. Þegar flaggið er fellt telst keppnislotan ræst.
Pittur opnar (grænt við útkeyrslu) um leið og síðasta ökutæki frá ráslínu hefur ekið framhjá pitt útkeyrslunni. Þá mega þeir ökumenn hefja keppni sem ræsa frá pittsvæði.
Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L við Reglubók FIA. Það er nauðsynlegt fyrir keppendur að kynna sér þennan kafla vel. Auk þess sem þar kemur fram gilda eftirfarandi viðmið um ásættanlega aksturshegðun.
Við framúrakstur á beinum kafla telst sá sem tekur fram úr enn vera við hlið þess (eða þeirra) sem tekið er fram úr þar til afturendi hans er kominn alveg fram fyrir framenda þess sem tekið er fram úr. Ekki má aka fyrir þann sem tekið er fram úr fyrr en framúrakstri er að fullu lokið. Þá gilda ofangreindar reglur um stöðuvörn.
Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að enginn hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu.
Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur. Hins vegar er ekki ásættanlegt ef þeirri stöðu er náð með því að taka beygjuna á of mikilli ferð til að halda eðlilegri aksturslínu. "Dive-bombing" er sem sagt óásættanleg aksturshegðun.
Bremsuprófanir, spól eða önnur óeðlileg aksturshegðun inni á brautinni, í pitt akrein eða pittinum sjálfum er með öllu óheimil.
Komi upp sú staða að ekki sé hægt að haga merkjagjöf með þeim hætti sem best þykir eða reglur kveða á um, ber ökumönnum þess í stað að hlýða augljósum bendingum eða skipunum starfsmanna.
Sé brautarvörður með flagg við brautarvarðstöð þar sem ljós logar ber að hlýða fyrirmælum brautarvarðarins og þess flaggs sem hann veifar eða sýnir, frekar en að hlýða ljósinu.
Pittstjóri úthlutar keppendum stæði á pittsvæði og gerir grein fyrir og útskýrir umferðarreglur sem þar gilda ef einhverjar eru.
Þegar útkeyrsla úr pitti er opin er grænt flagg eða ljós við pittvegg. Þá er heimilt að aka inn á brautina án sérstakrar aðstoðar eða bendinga starfsmanna. Hins vegar skal alltaf taka tillit til umferðar á brautinni og aka inn á hana af ýtrustu varkárni! Jafnframt skulu ökumenn sem aka brautina framhjá pittútkeyrslu varast að ógna þeim sem aka úr pittsvæði með óvarkárni í akstri og gefa þeim pláss til að komast inn á brautina.
Við útkeyrslu úr pitti er óhemilt að aka yfir hvíta línu á vinstri hönd. Pittstjóri getur tilkynnt um akstur yfir hvíta línu við pitt útkeyrslu og verður slíkum atvikum vísað til dómnefndar.
Þegar útkeyrslan er lokuð er rautt flagg eða ljós við hana. Þá er óheimilt að aka út úr pittinum!
Sé pittakrein blaut er gríðarlega mikilvægt að sýna sérstaka aðgát þegar hún er ekin!
Eftir að ekið er með einhvern hluta ökutækis inn fyrir keilur sem marka innkeyrslu í pitt (pitthlið/pit entry) er óheimilt að bakka eða snúa við, heldur verður að aka í gegnum pittinn og aftur út á brautina til að halda akstri áfram! Hámarkshraði frá innkeyrslu í pitt og að pitthúsi er 50 km á klst. en eftir það 15 km.
Af öryggisástæðum er óheimilt að stöðva ökutæki í pitt akrein á meðan pitt útkeyrsla er opin, án réttlætanlegrar ástæðu.
Fyrstu hjálpar viðbragðsvörður mannar fyrstu hjálpar bíl keppninnar.
Við ræsingu fylgir fyrstu hjálpar bíll ökutækjunum rúman þriðjung fyrsta hrings. Þetta er gert í öryggisskyni og flýtir fyrir fyrstu hjálp komi upp atvik í fyrstu beygjum brautarinnar.
Að auki getur hann verið kallaður til komi upp atvik sem krefjast fyrstu hjálpar. Ökumönnum ber að veita bílnum forgang og sýna sérstaka aðgát í kringum hann og þá starfsmenn sem bílnum fylgja!
Ökumenn sem lenda í óhappi sem leiðir af sér að ekki er hægt að aka áfram skulu bíða í bílnum nema brýn nauðsyn kalli á annað. Viðbragðsvörður mun hlúa að þeim ökumönnum sem verða fyrir slysi af einhverju tagi á meðan á keppni stendur.
Keppnisstjóri tekur ákvörðun um að öryggisbíll aki inn á brautina þyki honum ástæða til. Að jafnaði er öryggisbíll notaður ef starfsmenn eða ökumenn teljast í hættu á eða við brautina en aðstæður kalla ekki endilega á að keppni sé stöðvuð.
Gult flagg fer á loft hjá öllum brautarvörðum (og á öllum brautarljósum) á meðan öryggisbíllinn er í brautinni.
Engu keppnistæki skal ekið ógætilega, óreglulega, óeðlilega hægt eða á annan hátt sem telja má hættulegt öðrum keppendum eða starfsmönnum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Á þetta við um allan akstur á brautinni og í pitt akreinum og pitt svæði.
Öryggisbíllinn ekur inn á brautina með blikkandi ljós og án tillits til þess hvar fremsti bíll er staðsettur þá stundina.
Keppnistæki skulu hægja ferð og mynda röð á eftir öryggisbílnum með hámark fjórar bíllengdir á milli bíla.
Óheimilt er að taka fram úr öryggisbíl eða öðrum keppnistækjum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Framúrakstur er þó heimill ef:
Öryggisbíllinn yfirgefur brautina og ekur í pitt þegar keppnisstjóri telur óhætt að leyfa hefðbundinn akstur að nýju. Þá falla gulu flöggin og grænt flagg er gefið (eða viðeigandi ljós).
Áður en öryggisbíll yfirgefur brautina slekkur hann viðvörunarljósin sem hann hefur haft blikkandi. Þetta gefur ökumönnum til kynna að kappakstur hefjist að nýju um leið og öryggisbíll ekur inn fyrir pitthlið og yfirgefur með því brautina.
Þegar öryggisbíllinn hefur ekið inn fyrir pitthlið telst hann hafa yfirgefið brautina, keppnin heldur áfram og framúrakstur er heimill að nýju. Á meðan öryggisbíll er í braut heldur talning ekinna hringja áfram.
Fari rautt flagg (eða ljós) á loft ber ökumanni að aka rakleitt í pitt á hæfilegum hraða en allri keppni skal samstundis hætt og framúrakstur er bannaður. Keppnisstjóri getur tekið ákvörðun um að senda öryggisbíl í brautina við rautt flagg. Keppendur skulu leitast við að greiða för öryggisbíls við slíkar aðstæður eins og þurfa þykir ef hann virðist vilja aka fram úr þeim.
Aki öryggisbíll framhjá kyrrstæðum bíl meðan rautt flagg er í brautinni getur viðbragðsvörður gefið merki með grænu ljósi á aftanverðri ljósastæðu sinni eða með fána eða öðrum skýrum hætti frá öryggisbílnum og skal kyrrstæða ökutækið þá bætast aftast í halarófu þeirra bíla sem fylgja öryggisbílnum og aka á eftir honum að pittsvæði og fara þá inn í pittinn. Aka skal í pittinn þó öryggisbíll haldi akstri áfram eftir brautinni!
Grænt ljós frá öryggisbíl undir rauðum flöggum (eða ljósum) brautarvarða þýðir EKKI að aka megi fram úr öryggisbílnum, heldur að fylgja eigi honum og aka í pitt!
Þó öryggisbíll sé í brautinni og gult flagg á lofti má keppandi aka í pitt ef hann vill. Þegar ekið er inn á brautina úr pittinum á meðan öryggisbíll er úti skal ökumaður einungis aka út þannig að hann bætist aftan við halarófu þeirra sem honum fylgja nema pittstjóri gefi honum merki um annað.
Þegar talað er um gult flagg getur það verið hvort heldur sem er, brautarvörður með flagg eða ljósapóstur. Þá er brautarvörður annað af tvennu, sjálfboðaliði eða ljósapóstur.
Ökutæki sem kemur að gulu flaggi verður að hægja nægilega mikið á sér til að það sé augljóst að flaggið sé virt!
Það er með öllu óhemilt að aka fram úr öðru ökutæki eftir að ekið er inn í gulan geira (framhjá gulu flaggi) brautarinnar nema augljóst sé að ökutækið sem ekið er fram úr hafi hægt á sér af því það eigi í vandræðum, til dæmis vegna tjóns eftir árekstur, sprungins hjólbarða eða annars slíks.
Gult flagg gildir frá þeim stað sem ekið er framhjá brautarverði (90° á brautarstefnuna) og að brautarverði sem veifar grænu flaggi! Ef ekki er flaggað á brautarvarðstöð þýðir það EKKI að þar gildi grænt flagg! Áfram skal aka eftir reglum um gult flagg þar til komið er að grænu flaggi.
Notkun dróna á eða við frátekin svæði er með öllu óheimil nema að áður fengnu beinu samþykki frá keppnisstjóra. Keppnishaldari áskilur sér rétt til að vísa af svæðinu einstaklingum sem ekki virða þessa reglu.
Þeir sem vilja fá heimild til myndatöku annars staðar en af áhorfenda- eða pittsvæði þurfa að sækja hana með beinum hætti til keppnisstjóra. Einstaklingur sem fær aðgang að öðrum fráteknum svæðum til myndatöku verður að vera í appelsínugulum sýnileikafatnaði (vesti eða jakka t.d.) um leið og farið er út fyrir áhorfenda- eða pittsvæði.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 3 |
Dagsetning | 10. júlí 2026 |
Klukkan | 17:40 |
Framkvæmdanefnd, með samþykki allra skráðra keppenda, gerir eftirfarandi breytingar á sérreglum keppninnar.
Skoðunarmaður verður Einar Örn Reynisson.
Úr dómnefnd ganga Rafnar Snær Baldvinsson og Hákon Darri Jökulsson. Í þeirra stað koma inn í dómnefndina Valgeir Hugberg Geirmundarson og Aðalsteinn Símonarson.
F.h. framkvæmdanefndar
Gunnlaugur Jónasson
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 2 |
Dagsetning | 10. júlí 2026 |
Klukkan | 17:37 |
Framkvæmdanefnd, með samþykki allra skráðra keppenda, gerir eftirfarandi breytingar á dagskrá keppninnar.
Skoðun hefst föstudaginn 10. júlí 2026 klukkan 20:00 í pitthúsi 2 á keppnissvæði Kvartmíluklúbbsins. Hún lokar aftur klukkan 22:00 þetta sama kvöld og opnar að nýju samkvæmt fyrri dagskrá klukkan 9:15 laugardaginn 11. júlí.
F.h. framkvæmdanefndar
Gunnlaugur Jónasson
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 1 |
Dagsetning | 10. júlí 2026 |
Klukkan | 17:33 |
Staðreyndadómarar keppninnar eru eftirtaldir:
Bjarni Jarl Sigurðsson, brautarvörður, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Óðinn Helgi Pálsson, brautarvörður, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Sigþór, brautarvörður, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Aron Óskarsson, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Tómas Jóhannesson, öryggisbílsstjóri, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Baldvin Hansson, ráslínudómari, brautarmarka- og aksturslagsdómari
Alexander, pittstjóri, brautarmarka- og aksturslagsdómari
F.h. framkvæmdanefndar
Gunnlaugur Jónasson