Íslandsmót eldri kylfinga 18.-20 Júlí
Golfklúbbur Vestmannaeyja
Leikfyrirkomulag og rásröðun
Keppt skal samkvæmt gildandi Reglugerð um Íslandsmót í flokki eldri kylfinga og móta- og keppendareglum GSÍ. Leika skal 54 holur höggleik á þremur dögum. Aldur miðast við almanaksár. Ef jafnt er að loknum 54 holum skal leika þriggja holu umspil og síðan bráðabana ef þörf er, um 1. sæti. Í mótinu er eingöngu keppt í neðangreindum flokkum án forgjafar.
Þátttökurréttur
Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 144 þar af í flokki karla 50 ára og eldri verða hámark 78 keppendur og í flokki kvenna 50 ára og eldri hámark 27 keppendur. Í flokki karla 65 ára og eldri verða hámark 30 keppendur og í flokki kvenna 65 ára og eldri hámark 9 keppendur. Ef fjöldi skráðra keppenda fer yfir hámark í hverjum flokki ræður forgjöf því hverjir komast inn í hvern flokk fyrir sig. Þ.e.a.s forgjafar lægstu karlarnir og forgjafar lægstu konurnar komast í mótið. Standi val á milli keppenda með jafnháa forgjöf skal hlutkesti ráða. Ef ekki næst hámarksfjöldi í einhvern flokkinn má bæta við keppendum í aðra flokka. Mótsstjórn er heimilt að fjölga keppendum um 1-2.
Skráning og þátttökugjald
Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á golf.is fyrir klukkan 23:59 á mánudeginum 15. júlí. Æfingahringur er innifalinn í mótsgjaldinu sem vinsamlegast greiðist áður en æfingarhringur er leikinn. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til þess að panta rástíma. Þátttökugjöld verða ekki endurgreidd ef afboðun kemur eftir að skráningarfresti lýkur. Forföll skal tilkynna með tölvupósti á netfangið golf@eyjar.is og motanefnd@golf.is.
**Engar undantekningar á skráningu verða leyfðar í mótið eftir að skráningu lýkur.**
Flokkur | Fjöldi | Teigar | Mótsgjald |
Öldungaflokkur karla 50 ára og eldri | 78 keppendur | Teigar Gulir | 15.000,- kr. |
Öldungaflokkur karla 65 ára og eldri | 30 keppendur | Teigar Gulir | 15.000,- kr. |
Öldungaflokkur kvenna 50 ára og eldri | 27 keppendur | Teigar Rauðir | 15.000,- kr. |
Öldungaflokkur kvenna 65 ára og eldri | 9 keppendur | Teigar Rauðir | 15.000,- kr. |
Samtals | 144 keppendur |
Rástímar og ráshópar
Rástímar verða birtir á golf.is á þriðjudeginum 16. júlí eftir kl.12:00. Ræst verður út af 1. teig með 10 mínútna millibili. Á fyrsta keppnisdegi er keppendum raðað út eftir forgjöf en alla aðra daga verður raðað út eftir skori. Ekki verða leyfðar breytingar á útgefnum rástímum eftir birtingu þeirra.
1. hringur, fimmtudagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00
Rásröð: Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+, Karlar 65+
2. hringur, föstudagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00
Rásröð: Karlar 50+, Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+
3. hringur, laugardagur: Rástímar frá klukkan 08:00 – 15:00
Rásröð: Karlar 65+, Konur 65+, Konur 50+, Karlar 50+
Æfingahringur
Einn æfingahringur án endurgjalds er heimilaður. Keppnisvöllurinn verður opinn til æfinga fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi fyrir mót. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til að panta rástíma. Athugið reglur um æfingahringi.
Verðlaun
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 50 ára og eldri og kvenna 50 ára og eldri án forgjafar.
1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair
2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair
3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair
Veitt verða verðlaun fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla 65 ára og eldri og kvenna 65 ára og eldri án forgjafar.
1. sæti: 40.000,- kr. Gjafakort Icelandair
2. sæti: 30.000,- kr. Gjafakort Icelandair
3. sæti: 15.000,- kr. Gjafakort Icelandair
Áætluð verðlaunaafhending
Í mótslok er keppendum boðið til lokahófs í golfskála, keppendur verða beðnir um að boða komu sína í lokahófið áður en þeir hefja leik á fyrsta keppnisdegi. Öllum er heimilt að koma á lokahófið.
Golfbílar
Í golfmótum á vegum GSÍ, að undanskildu Íslandsmóti eldri kylfinga, 65 ára og eldri, skal mótsstjórn aðeins veita þeim keppendum, sem framvísa vottorði frá tilnefndum trúnaðarlækni GSÍ, heimild til að nota golfbíl meðan á keppni stendur. Vottorðið skal staðfesta að keppandinn búi við langvarandi líkamlega fötlun og þurfi á golfbíl að halda við keppni, að því tilskildu að slíkt veiti keppandanum ekki ótilhlýðilegt forskot, sbr. undantekningu 1 við golfreglu 14-3. Upplýsingar um trúnaðarlækna GSÍ má finna á heimasíðunni Golf.is.
Umsókn um heimild til notkunar golfbíls skal senda mótanefnd GSÍ að minnsta kosti einni
viku áður en mótið hefst. Umsóknin skal send til motanefnd@golf.is og henni skal fylgja afrit
vottorðsins.
Dómari: Þórður Ingason
Mótsstjórn: Þórður Ingason, Elsa Valgeirsdóttir, Gunnar K. Gunnarsson, Sigurveinn Þórðarsson, Hallgrímur Steinsson.
Með fyrirvara um breytingar