Upplýsingatafla
King of the Street / Outlaw King 2026
30. ágúst 2026
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra |
Skjal | 5 |
Dagsetning | 27. ágúst 2026 |
Klukkan | 16:55 |
Keppnisfyrirkomulag
Framkvæmdanefnd í samráði við dómnefnd hefur ákveðið að framlengja skráningarfrest um einn sólarhring eða til kl. 17:00, föstudaginn 28. ágúst 2026.
Framkvæmdanefnd
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra |
Skjal | 4 |
Dagsetning | 21. ágúst 2026 |
Klukkan | 16:25 |
Keppnisfyrirkomulag
Áttungsmíla, ræst á jöfnu, Pro Tree ljós
Flokkakeppni
Að lokinni flokkakeppni í götuflokkum verður keppt um götukóngstitilinn.
King of the Street - götubílar / götuhjól
Outlaw King - ofurbílar
Framkvæmdanefnd
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra |
Skjal | 3 |
Dagsetning | 21. ágúst 2026 |
Klukkan | 16:00 |
Breytingar eru gerðar á sérreglum keppninnar í samráði við dómnefnd.
Frávik frá götuspyrnu flokkum sem sbr. grein 5.1.1 eru nánar útlistuð í nýrri grein 5.1.3.
5.1.3 Flokkareglur
5.1.3.a Bílar 4cyl
· Ökutæki með hámark 4 stokka vél eða Wänkel vél og drif á einum ás.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
5.1.3.b Bílar 4x4
· Ökutæki með drif á tveimur ásum að undanskildum jeppum og pallbílum.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
5.1.3.c Bílar 6cyl
· Ökutæki með hámark 6 stokka vél og drif á einum ás.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
5.1.3.d Bílar 8cyl
· Ökutæki með hámark 8 strokka vél og drif á einum ás.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildu pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
· Allir slikkar eru bannaðir, bæði radial og nylon.
· Allir aflaukar eru bannaðir, þ.e. blásarar, túrbínur, nítró o.þ.h.
5.1.3.e Bílar 8cyl+
· Ökutæki með 8 til 12 strokka vél og drif á einum ás.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Allir hjólbarðar eru leyfðir.
· Allir aflaukar leyfðir.
· Hámarkshæð hjólbarða er 29".
5.1.3.f Jeppar
· Ökutæki sem eru jeppar og pallbílar.
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki (skráð undir 2.000 kg.) skal hafa virkt fjórhjóladrif til staðar.
· Ökutæki skal vera skráð á númerum, fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
5.1.3.g Rafmagnsbílar
· Ökutæki með drif á einum eða tveimur ásum.
· Ökutæki skal vera rafknúið, að fullu eða að hluta (EV / Hybrid).
· Ökutæki skal byggt á upprunalegri óbreyttri burðargrind (undirvagni) að framan og aftan. Breyta má fjöðrun og hjólspyrnum.
· Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð og skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað - að undanskildum hjólbörðum og pústi.
· Hjólbarðar skulu vera DOT merktir.
5.1.3.h Outlaw hurðabílar
· Ökutæki sem skilgreint er sem hurðabíll (Door Slammer, Pro Mod).
· Ökutæki skal vera knúið bruna/sprengihreyfli.
· Allar breytingar eru leyfilegar.
· Allir aflaukar eru leyfilegir.
· Allir hjólbarðar eru leyfilegir.
· Óskráð ökutæki.
5.1.3.i Götuhjól -800cc (-G) / Götuhjól +800cc (+G)
· Gert er ráð fyrir 4 strokka vél
o leyfilegt er að nota 12.5% stærri vélar ef um er að ræða 3 strokka vél
o leyfilegt er að nota 25% stærri vél ef um er að ræða 2 strokka vél
· Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð
· Ökutæki skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað
· Hjólbarðar skulu vera DOT viðurkenndir, og hannaðir til þjóðvega akstur
· Fjöðrun skal vera uppruneraleg (orginal eða eins og upprunaleg (orginal)
· Leyfilegt er að lækka fram fjöðrun eða strappa svo framarlega að lágmarkshæð undir lægsta punkt sé ekki minni en 50mm
· Ofrisvarnargrindur, handstýrðar skiptingar og sjálfskiptingar bannaðar nema hjólið komi með það upprunalega (orginal) frá framleiðanda
· Allar mótorbreytingar bannaðar
· Lengingar bannaðar, afturgaflar skulu vera orginal eða sama lengd og original
· Forþöppur, glaðloft (nitrous) bannað
· Eingöngu er leyfilegt eldsneyti sem er selt á dælu í almennri sölu
5.1.3.j Breytt götuhjól (B)
· Götuhjól með breytingar á vél
· Ökutæki skal vera á númerum og fullskoðað af viðurkenndri skoðunarstöð
· Ökutæki skal geta staðist slíka skoðun á keppnisstað
· Hjólbarðar skulu vera götulöglegir og DOT merktir
· Bannað er að nota ofrisvarnargrindur
· Lengd milli hjóla skal vera takmörkuð sem hér segir:
o Ef hjól er með túrbó eða glaðloft (nitrous) dragast 4 tommur (100mm) frá hámarks hjólabili
o A. Hámarks hjólabil á hjólum að 1299cc 70 tommur (1778mm) max
§ (66 tommur með aflaauka)
o B. Hámarks hjólabil á hjólum að 1499cc 68 tommur (1727mm) max
§ (64 tommur með aflaauka)
o C. Hámarks hjólabil á hjólum stærri en 1500cc 66 tommur (1676mm) max
§ (62 tommur með aflaauka)
· Bannað að nota hverskonar slæd kúplingu(slider clutch).
Framkvæmdanefnd
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra |
Skjal | 2 |
Dagsetning | 5. ágúst 2026 |
Klukkan | 12:00 |
Breytingar á starfsmönnum keppninnar
Ingimundur Helgason tekur við sem keppnisstjóri í stað Rafnars Snæs Baldvinssonar
Baldur Gíslason tekur við sem öryggisfulltrúi í stað Ingimundar Helgasonar
Framkvæmdanefnd
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason
__________________________________________________________________________________________________________________
Sama upplýsingatafla er notuð fyrir keppnina sem er sett á dagskrá á ný 30. ágúst 2026
__________________________________________________________________________________________________________________
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra |
Skjal | 1 |
Dagsetning | 2. júlí 2026 |
Klukkan | 17:35 |
Keppni felld niður
Þar sem að lágmarksfjöldi skráninga hefur ekki náðst og með tilvísun í grein 1.5 í sérreglum keppninnar er keppnin felld niður.
Framkvæmdanefnd
Rafnar Snær Baldvinsson, Sigurbjörg Björgvinsdóttir, Victor Hjörvarsson og Ingimundur Helgason