Námsvísar
1.-2. bekkur
2021-2022

Inngangur
Leiðtogaþjálfun og skólaþing
Þema
1 - 2. bekkur
Íslenska
Erlend tungumál
List- og verkgreinar
Náttúru- og samfélagsgreinar (þema) seinna ár
Skólaíþróttir
Stærðfræði
Upplýsinga og tæknimennt
Lífsleikni og bekkjarfundir
Inngangur
Í námsvísum má finna ítarlegar upplýsingar um áherslur í kennslu á hverju aldursstigi fyrir sig. Námsvísar eru hluti af starfsáætlun Valsárskóla og eru í sífelldri þróun þar sem starfsmenn skóla eiga reglulega samtöl um stefnu, markmið, mat og framfarir nemenda. Þannig má búast við því að námsvísar taki breytingum og séu lifandi plagg.
Leiðtogaþjálfun og skólaþing
Í Valsárskóla eru reglulega haldin skólaþing og leiðtogaþjálfun með öllum nemendum skólans frá 1.-10. bekk. Með þeirri nálgun er unnið að hæfniviðmiðum fyrir lykilhæfni úr Aðalnámskrá grunnskóla.
Hæfniviðmið
| Leiðir | Námsmat |
| - Nemendur taka reglulega þátt í bekkjarfundum og skólaþingum og læra þannig að taka þátt í umræðum og lýðræðislegum vinnubrögðum, tjá hugsanir, færa rök fyrir máli sínu og hlusta á aðra.
| Virkni og þátttaka |
- Skapandi og gagnrýnin hugsun
| - Nemendur ræða á viðeigandi og skýran hátt um málefni, hlusta á rök og mismunandi skoðanir. Lögð er áhersla á að færa rök fyrir máli sínu og undirbúa málsmeðferð.
| Virkni og þátttaka |
| - Nemendur stýra verkefnum í samvinnu við aðra í leiðtogaþjálfun og þjálfast þannig bæði sjálfstæði, frumkvæði, samvinnu, ábyrgð og virkni.
| Virkni og þátttaka
|
- Nýting miðla og upplýsinga
| - Nemendur nota ýmsar leiðir til að kynna eigin verkefni í leiðtogaþjálfun og miðla efni og viðfangsefnum til samnemenda og starfsfólks.
| Virkni og þátttaka |
- Ábyrgð og mat á eigin námi
| - Nemendur taka þátt í umræðum á bekkjarfundum um markmið náms, vinnubrögð og leiðsagnarmat. Auk þess er leiðsagnarmat virkt í öllu námi nemenda og á samtalsdögum með foreldrum og nemendum.
| Virkni og þátttaka |
Þema
Í skólanum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina og að nemendur vinni heildstæð verkefni. Unnið er með samþættingu í íslensku, samfélags- og náttúrufræðigreinum ásamt upplýsinga- og tæknimennt. Í skólanum er samkennsla tveggja árganga og því var sett upp skipulag fyrir þemu og áherslur í hverri bekkjardeild. Er það gert svo nemendur upplifi ekki endurtekningu heldur séu alltaf að bæta við sig. Hæfniviðmið aðalnámskrár í náttúru- og samfélagsgreinum voru höfð til hliðsjónar við val á viðfangsefnum. Haustið 2020 erum við búin að kenna samkvæmt þessu skipulagi í tvö ár og er það enn í þróun. 9.-10. bekkur hefur ekki verið í þemakennslu síðustu ár að ósk nemenda sem óskuðu eftir að hafa kennsluna greinaskipta.
- ár (2020-2021)
| 2. ár (2021-2022) |
Lífríkið 1.-2. b Smádýr í náttúrunni, pöddur og smádýr í fjöru og á landi 3.-4. b Húsdýr og villt dýr 5.-6. b Hafið, fiskar, svif, áta/svifdýr 7.-8. b Líf í fersku vatni, fæðukeðjur, vistfræði, tilraunir, skýrslur, ljóstillífun | Umhverfis- og náttúruvernd 1.-2. b Sjálfbærni, endurvinnsla, endurnýting og umhverfisstefna sveitarfélagsins 3.-4. b Flokkun á úrgangi 5.-6. b Neysluvatn, mengun, fráveitumál, úrgangsmál og umhverfisstefna sveitarfélagsins 7.-8. b “Vistvænir” þjóðflokkar (sjálfbær þróun), náttúruauðlindir og nýting, loftslagsbreytingar og mengun í heiminum og hvað má betur fara í náttúruvernd í okkar sveit? |
Mannslíkaminn 1.-2. b Lífsskilyrði manna, virðing fyrir ytra útliti, heiti líkamshluta, einkastaðir, hvernig barn verður til 3.-4. b Líffærakerfin, heilbrigt líferni, beinagrindin 5.-6. b Líffærakerfin, kynþroskinn, skilningarvitin 7.-8. b Heilbrigði - frumur, fóstur, líkami (næring) og sál (samskipti), kynheilbrigði og forvarnir | Íslandssaga 1.-2. b Landnámsmenn Íslands 3.-4. b Úr sveit í borg, sveitin og landið, heimilið og störfin 5.-6. b Landnámsmenn - saga Leifs heppna, landafundir, daglegt líf, þjóðveldi, trúarbrögð og rúnir 7.-8. b Frá landnámi til siðaskipta - Alþingi, miðaldir á Íslandi, Sturlungaöld, þjóðfélag, samfélag, siðaskipti og stjórnmál
|
Jörðin okkar (landafræði) 1.-2. b Heimsálfurnar 3.-4. b Ísland - landakort, náttúruhamfarir, loftslag og gróðurfar 5.-6. b Ísland - 7.-8. b Evrópa - samfélög, saga, staðir, veður - loftslagsbreytingar | Fjölbreytileikinn (jafnrétti og lýðræði) 1.-2. b Kynhlutverk og fjölbreyttar fjölskyldugerðir 3.-4. b Barnasáttmálinn og trúarbrögð 5.-6. b Börn í okkar heimi - flóttamenn og farandfólk, fordómar og þröngsýni, stríð í heimi, fátækt og hungur 7.-8. b Jafnrétti, kynjahlutverk, frelsi, samhjálp, hafa áhrif í eigin samfélagi
|
Saga mannkyns (útlönd, styrjaldir) 1.-2. b Fyrstu samfélögin - frumbyggjar 3.-4. b Saga mannkyns 5.-6. b Rómaveldi 7.-8. b Miðaldir | Himingeimurinn (stjörnufræði/jarðfræði) 1.-2. b Pláneturnar, sólkerfið, tíminn, jarðfræði Íslands 3.-4. b Eldgos og eldfjöll 5.-6. b Stjörnufræði, jörðin, tunglið og stjörnurnar, tíminn og árstíðirnar 7.-8. b Innri gerð jarðar, flekar, eldsumbrot/jarðhræringar, áhrif mannsins á jörðina
|
Tækni 1.-2. b Áhrif tækni á nánasta umhverfið, forritun 3.-4. b Tæknin, bílar 5.-6. b Íslenskar atvinnugreinar og framleiðsla, rafmagn 7.-8. b Tækninýjungar - netið og GPS, vistvæn hönnun, matur/erfðabreyting/ræktun, náttúran og tækni | Leiðtogar - skólinn okkar (á eftir að vinna nánar) 1.-2. b Vinnum meðvináttu, gildi skólans, skólareglur og skólastefnu Valsárskóla. 3.-4. b
5.-6. b
7.-8. b
|
Heimabyggðin 1.-2. b Nánasta umhverfi, heimili og örnefni 3.-4. b Landnám, þjóðsögur og álfabyggð í heimabyggð 5.-6. b Fyrirtæki og atvinnulíf í heimabyggð 7.-8. b Stjórnsýsla, aðalskipulag, minjastofnun og félög/félagasamtök í heimabyggð | Vísindi (á eftir að vinna nánar) 1.-2. b Að finna tæknina í umhverfinu og hugtök um tæknina í bílnum 3.-4. b
5.-6. b
7.-8. b Rafmagn, seglar, rafrásir, hljóð, ljós, geislun, varmi |
1 - 2. bekkur
Íslenska
Á fyrstu árum grunnskólagöngunnar er megináhersla lögð á íslenskunám og unnið er eftir hugmyndafræði Byrjendalæsis.
Lögð er áhersla á að nemendur nái góðum árangri í læsi sem allra fyrst á skólagöngu sinni. Gengið er út frá því að börn þurfi lesefni sem kveikir áhuga þeirra, ýtir undir ímyndunaraflið, hvetur þau til gagnrýninnar hugsunar og gefur þeim færi á að mynda merkingarbærar tengingar við eigið líf. Því er margs konar gæðatexti lagður til grundvallar lestrarkennslu og hann nýttur sem efniviður í vinnu með stafi og hljóð, sem og vinnu með orðaforða, skilning og ritun af ýmsu tagi.
Námsaðlögun: Unnið er út frá því að börn læri með misjöfnum hraða, hafi styrkleika á misjöfnum sviðum, mismunandi áhuga og fái einstaklingsmiðuð verkefni ef við á. Stigskiptur stuðningur í námi er mikilvægur, frá sýnikennslu til sjálfstæðra vinnubragða. Kennsluaðferðir Byrjendalæsis eru fjölbreyttar og skipulag í lestri er unnið eftir blönduðum aðferðum s.s. hljóðaaðferð og orðmyndaaðferð og verkefni útfærð eftir getu og áhugasviði nemenda. Ennfremur eru sértækir þættir móðurmálsins, svo sem hljóðvitund, nefnuhraði, réttritun, skrift, orðaforði, setningabygging og málfræði tengd inn í ferlið. Sérstök áhersla er lögð á að auka færni sérhvers nemanda í öllum þáttum lestrar, lestrarlagi, lestrarhraða, lesskilningi og ritun.
Þemu skólans í samfélags- og náttúrufræði, enska, upplýsinga- og tæknimennt og útiskóli eru samþætt kennsluáætlunum Byrjendalæsis.
Hæfniviðmið Aðalnámskrár Grunnskóla. Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Talað mál, hlustun og áhorf - Beitt skýrum og áheyrilegum framburði,
- Tjáð sig með aðstoð leikrænnar tjáningar frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu,
- Sagt frá eftirminnilegum atburði og lýst ákveðnu fyrirbæri, endursagt efni sem hlustað hefur verið á eða lesið,
- Hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð og söngva og greint frá upplifun sinni,
- Nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi,
- Átt góð samskipti, hlustað og sýnt kurteisi
| Kennsluaðferðir eru m.a. stigskiptur stuðningur, innlögn og bein kennsla, para- og/eða hópverkefni, námsleikir og spil, þrautir, útikennsla, verklegar æfingar og þjálfunarforrit. Nemendur; - æfa framsögn
- kynna verkefni
- geta tekið þátt í skipulögðum samræðum
- sýna tillitssemi og virka þátttöku í samræðum
- nýta fjölbreytt efni við verkefnavinnu
| Leiðsagnarmat, kannanir, sjálfsmat og jafningjamat eru leiðarljósin í námsmati og svo eftirfylgni í næstu kennsluáætlun. Markmið aðalnámskrár eru metin í mentor og birtast á hæfnikortum nemenda í lok hverrar lotu og svo samantekt í lok skólaárs. |
Lestur og bókmenntir - Beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa þannig að lestur verði lipur og skýr,
- Nýtt góðan orðaforða við að skilja texta og ráðið í merkingu orðs út frá samhengi,
- Tengt þekkingu sína og reynslu við lesefni í því skyni að ná merkingu þess,
- Valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings,
- Lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum,
- Beitt hugtökum eins og persónu, söguþræði, umhverfi og boðskap,
- Beitt fáeinum algengum hugtökum í bragfræði svo sem rími, kvæði, vísu og ljóðlínu,
- Aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi,
- Lesið úr táknmyndum og myndrænu efni, svo sem einföldum skýringarmyndum, kortum og myndritum,
- Valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju.
|
- lesa fjölbreytta texta, tileinki sér ríkan orðaforða og læra aðferðir til að skilja betur innihald efnisins, lestrarspil og yndislestur
- geta átt samtal við aðra um það sem lesið er, greint aðalatriði og haft skoðanir á því sem lesið er
- lesa ljóð með góðri framsögn og þekkja nokkur hugtök í bragfræði, semja ljóð
- skoða tölulegar og myndrænar upplýsingar og túlka þær
- sýna lesefni af eigin vali áhuga
|
1.bekkur Lesskimun menntamálastofnunar að hausti Læsi könnun haust, vetur og vor Lesfimi menntamálastofnunar haust, vetur og vor 2. bekkur Læsi könnun haust og vetur Lesmál að vori Lesfimi menntamálastofnunar haust, vetur og vor |
Ritun - Dregið rétt til stafs og skrifað skýrt og læsilega,
- Nýtt í ritun þekkingu á grunnþáttum í byggingu texta, svo sem upphafi, meginmáli og niðurlagi,
- Samið texta frá eigin brjósti, svo sem sögu, frásögn, ljóð eða skilaboð,
- Beitt einföldum stafsetningarreglum og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi,
- Nýtt sér fyrirmyndir í ritun, svo sem af lestri bóka, blaða eða rafræns efnis,
- Skrifað texta á tölvu og beitt einföldustu aðgerðum í ritvinnslu
- Skrifað og leyft öðrum að njóta þess með upplestri höfundar eða lestri lesanda.
|
- læri stafátt og þjáfist í að skrifa eftir forskrift og frá eigin brjósti
- vanda skrift og réttritun við öll verkefni og læra á og nýta hjálpartæki
- verkefnaskil á rafrænu formi
- þjálfist í fingrasetningu
- skoða mismunandi texta með tilliti til uppbyggingar
- skili verkefnum á rafrænu formi
|
Skriftarkönnun haust. vetur og vor |
Málfræði - Beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og ræður yfir orðaforða og málskilningi sem hæfir þroska,
- Þekkt og fundið helstu einingar málsins, svo sem bókstafi, hljóð, orð, samsett orð og málsgrein,
- Raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag,
- Gert sér grein fyrir mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða,
- Leikið sér með ýmis einkenni tungumálsins, svo sem margræðni orða og fundið kyn og tölu,
- Búið til málsgreinar og ráðið við að greina málsgreinar í eigin texta,
- Greint mun á samnöfnum og sérnöfnum og m.a. bent á þau í eigin texta,
- Leikið sér með orð og merkingu, svo sem með því að ríma, og fara í orðaleiki,
- Gerir sér grein fyrir markmiði þess að læra íslenska málfræði.
|
- vinna með bókstafi, orð og málsgreinar
- efla orðaforðann, með því að skoða ný orð, reyna að skilja og setja í samhengi, nota nýjan orðaforða í tali og ritun
- fara í alls konar orðaleiki, lykilorðavinnu, nýyrðasmíð, krossorðaspilið, krossgátur, spil og ýmis forrit
| Við lok 4. bekkjar eiga nemendur að vera búnir að ná markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
|
Textílmennt
Hæfniviðmið | Leiðir | Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni • Notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum, • Unnið úr nokkrum gerðum textílefna • Unnið eftir einföldum leiðbeiningum.
Sköpun, hönnun og útfærsla • Tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, • Skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, • Gert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni • Leitað að einföldum upplýsingum í nokkrum miðlum.
Menning og umhverfi • Sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, • Sagt frá nokkrum tegundum textílefna • Fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilefna, • Notað ný og endurunnin efni í textílvinnu. | . Þjálfist í notkun skæra og fínhreyfingum t.d. þræða og binda hnúta.
Þjálfist í að nota saumavélar.
Þjálfist í að þekkja mismunandi tæki t.d. málband og sprettuhníf.
Þjálfist í þekkingu á hvaða efni er best að nota við mismunandi aðstæður og veður.
Læri hvað er íslenskt hráefni, td. ull.
| Virkni, vinnusemi,sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Myndmennt
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
- Nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar
- Skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- Tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
- Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki,
- Unnið út frá kveikju við eigin listsköpun,
- Þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni,
- Fjallað um eigin verk og annarra,
- Þekkt og gert grein fyrir völdum verkum listamanna. Lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og lýst þeim aðferðum sem beitt var við sköpun verksins
- Greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
- Greint á einfaldan hátt áhrif myndmáls í nærumhverfi hans,
- Skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar.
| Kynnast fjarvídd, sumir hlutir eru nálægt þér en aðrir langt í burtu.
Nota tréliti, tússliti, vaxliti, teikniblýanta, þekjuliti, vatnsliti og fl.
Gera myndir eins og þau sjá fyrir sér t.d tré á mismunandi árstíma.
.
| Verkefnum safnað í möppu. Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Erlend tungumál
Enska
Enska er samþætt Byrjendalæsi. Í ensku er lögð áhersla á einföld verkefni s.s. lestur og skilning, ritun, talað mál og hlustun. Nemendur lesa einnig stuttar sögur að eigin vali og getu þar sem lögð er áhersla á skilning á hugtökum, boðskap og fleiri þáttum sem tengjast því þema sem unnið er með hverju sinni.
Hægt er að sjá öll hæfniviðmið og námsaðlögun sem unnið er með hverju sinni í lotum Byrjendalæsis inná mentor.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi... | Leiðir | Námsmat |
Hlustun - skilið það mál sem notað er í kennslustofunni og brugðist við með orðum eða athöfnum,
- fylgt megin þræði í einföldum frásögnum um kunnuglegt efni með stuðningi, t.d. af myndum, hlutum eða líkamsmáli og notað sér upplýsingarnar í eigin verkefni,
- fylgst með einföldu efni í myndmiðlum og úr heimi dægurmenningar sem er kunnuglegt úr heimi barna og unglinga og greint frá því helsta.
| - æfa framsögn
- kynna verkefni
- geta tekið þátt í skipulögðum samræðum
- sýna tillitssemi og virka þátttöku í samræðum
- nýta fjölbreytt efni við verkefnavinnu
- tryggja að nemendur fái að heyra fjölbreyttan texta
| - sjálfsmat
- félagamat
- leiðsagnarmat frá kennara sem byggist á fjölbreyttum námsmatsaðferðum
|
Lesskilningur - skilið megininntak í stuttum, einföldum frásögnum dagblaða, tímarita og netmiðla með stuðningi, t.d. af myndum,
- fundið afmarkaðar upplýsingar í einföldum texta og nýtt sér í verkefnavinnu,
- lesið sér til gagns og gamans stuttar, einfaldar bækur og fræðsluefni fyrir börn og unglinga og rætt efni þeirra með stuðningi kennara eða skólasystkina.
| - lesa fjölbreyttan texta sem byggist á fjölbreyttum orðaforða
- læra aðferðir (Byrjendalæsi) til að skilja betur innihald efnisins
- geta átt samtal við aðra um það sem lesið er, greint aðalatriði og haft skoðanir á því sem lesið hefur verið
- sýna lesefni af eigin vali áhuga
- stutt orðaforðavídeó, teikningar, samtalsleikir og fleira
| - lesskilningsverkefni og kannanir
- sjálfsmat
- leiðsagnarmat
|
Ritun - skrifað texta með orðaforða úr efnisflokknum sem fengist er við með stuðningi frá mynd, hlut eða gátlista,
- lýst í einföldu máli því sem næst honum er, fjölskyldu, áhugamálum, vinum og umhverfi,
- skrifað einföld skilaboð, smáskilaboð og tölvupóst,
- samið stuttan texta frá eigin brjósti með stuðningi mynda, hluta, tónlistar o.s.frv.
| - nýta hjálpartæki við ritun sem miða að því að textinn verði sem réttastur og læsilegastur
- skrifa einfaldan gæðatexta með lesanda/viðtakandann í huga
- geta samið eigin texta
- vanda skrift og réttritun við öll verkefni og læra á og nýta hjálpartæki
- verkefnaskil á blöðum og á rafrænu formi
| - sjálfsmat
- leiðsagnarmat
- félagamat
|
Samskipti - spurt og svarað á einfaldan hátt um það sem stendur honum næst,
- skipst á upplýsingum og skoðunum við skólasystkini og kennara um efni tengt náminu,
- tekið þátt í samskiptaleikjum og unnið samtalsæfingar.
| - þjálfist í samvinnunámi
- læri að taka tillit til skoðana annarra og virði þær með umræðum og samvinnu
- tryggja að ólíkir nemendur fái námsáskoranir við hæfi
| - sjálfsmat
- leiðsagnarmat
- félagamat
|
Frásögn - sagt frá eða lýst sjálfum sér, vinum, fjölskyldu, áhugamálum og nánasta umhverfi á einfaldan hátt,
- endursagt og lýst atburðum eða reynslu á einfaldan hátt með stuðningi hluta, mynda, tónlistar o.s.frv.
- flutt atriði, sagt stutta sögu eða lesið upp eigin texta sem hann hefur haft tækifæri til að lesa.
| - nemendur koma ýmist upp eða eru við sín borð og kynna sín verkefni og tjá sig fyrir bekkinn eða vinnufélaga.
- horfum á stuttar myndir í tengslum við námið.
- hlustum á söng, talað mál og á aðra í stofunni.
|
|
Menningarlæsi - sýnt fram á að hann þekkir nokkuð til umgjarðar menningarsvæðisins, s.s. landfræðilegrar legu, staðhátta og þekktra staða,
- sýnt fram á að hann þekkir til þátta sem einkenna barna- og ungmennamenningu viðkomandi málsvæðis, s.s.söguhetja barnabóka, leikja, söngva og ævintýra,
- sýnt fram á að hann áttar sig á að mörg algeng orð í ensku eru lík og skyld öðrum sem hann þekkir.
| - fái rík tækifæri til að kynnast ólíkum menningarsvæðum enskumælandi landa m.t.t. tungumála, lifnaðarhátta, menningar o.s.frv.
- sýna tillitssemi og opinn huga gagnvart ólíkri menningu
|
|
Námshæfni - beitt einföldum námsaðferðum til að auðvelda námið, t.d. nýtt sér titil á texta eða myndir sem fylgja til að auðvelda skilning á inntaki,
- beitt sjálfsmati sem tengist viðfangsefnum námsins með stuðningi kennara eftir því sem þörf krefur,
- tengt ný viðfangsefni eigin reynslu og þekkingu,
- tekið þátt í hóp- og paravinnu, hlustað á og tekið tillit til þess sem aðrir hafa að segja,
- nýtt sér hjálpartæki, s.s.einfaldar orðabækur, veforðasöfn, leiðréttingarforrit og leitarvélar.
| - vera opin(n) fyrir ólíkum námsaðferðum og átti sig á kostum og göllum hverrar námsaðferðar,
- læri að þroska með sér aukna sanngirni og réttsýni á eigin vinnubrögð sem og samnemenda sinna,
- þjálfist í notkun ólíkra hjálpartækja sem geta nýst við námið
|
|
List- og verkgreinar
Smíðar
Í smíðum er leitast við að samtvinna sköpun, þjálfa vinnubrögð ásamt því að læra heiti á helstu verkfærum og efnivið.
Námsaðlögun Unnið er með stigskiptum stuðningi eftir þörfum hvers og eins.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
- Valið og notað nokkur verkfæri sem hæfa viðfangsefni á öruggan hátt.
- Gert grein fyrir nokkrum smíðaefnum sem unnið er með.
- Dregið einfalda skissu og tvívíða teikningu til að útskýra hugmyndir sínar.
- Unnið verkefni frá hugmynd að fullunnum hlut með áherslu á form og útlit.
- Framkvæmt einfaldar samsetningar.
- Sagt frá orkugjöfum sem nota má í smíðaverkefnum og nýtt virkniþætti í smíðisgripum, s.s. vogarafl, gorma og teygjur.
- Bent á ýmis tæknifyrirbrigði er tengjast hans daglega lífi.
- Greint einfaldar þarfir í umhverfi sínu og rætt nokkrar lausnir.
- Valið efni út frá umhverfissjónarmiðum og sagt frá kostum þess að nota efni úr nærumhverfi.
- Sýnt góða nýtingu þeirra efna sem unnið er með.
- Beitt líkamanum rétt við vinnu sína og sýnt rétta notkun hlífðarbúnaðar
|
- Réttur hlífðarbúnaður notaður eftir því sem við á og rætt um mikilvægi þess.
- Farið yfir heiti helstu verkfæra og nöfn þeirra notuð þegar þörf er á viðkomandi verkfæri.
- Unnið með límingar, neglingar og samsetningar með skrúfum.
- Rætt um smíðaefni sem unnið er með hverju sinni og minnt á að nýta efnið vel.
- Nemendur vinna verkefni þar sem þeir hanna sjálfir hlut sem þeir útskýra með einfaldri teikningu.
| - Verkefni nemenda metin
- Vandvirkni og vinnusemi metin
- Sjálfsmat
- Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Textílmennt
Hæfniviðmið | Leiðir | Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni • Notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum, • Unnið úr nokkrum gerðum textílefna • Unnið eftir einföldum leiðbeiningum.
Sköpun, hönnun og útfærsla • Tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, • Skreytt textílvinnu á einfaldan hátt, • Gert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni • Leitað að einföldum upplýsingum í nokkrum miðlum.
Menning og umhverfi • Sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, • Sagt frá nokkrum tegundum textílefna • Fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilefna, • Notað ný og endurunnin efni í textílvinnu. | Klippa efni með skærum.
Klippa eftir sniði.
Sauma með nál.
Sauma á saumavélar.
Þræða nálar.
Binda hnúta á band.
| Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt. |
Myndmennt
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
- Nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar
- Skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- Tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
- Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki,
- Unnið út frá kveikju við eigin listsköpun,
- Þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni,
- Fjallað um eigin verk og annarra,
- Þekkt og gert grein fyrir völdum verkum listamanna. Lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og lýst þeim aðferðum sem beitt var við sköpun verksins
- Greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
- Greint á einfaldan hátt áhrif myndmáls í nærumhverfi hans,
- Skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar.
| Nota tréliti, tússliti, vaxliti, teikniblýanta, þekjuliti, vatnsliti og fl.
Gera myndir eins og þau sjá fyrir sér t.d tré á mismunandi árstíma.
Kynnast fjarvídd, sumir hlutir eru nálægt þér en aðrir langt í burtu.
Skoða listaverkabækur um listamenn og sjá hvernig myndir þeir gerðu, og gera. | Verkefnum safnað í möppu.
Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat. Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Náttúru- og samfélagsgreinar (þema) seinna ár
Þema er samþætt Byrjendalæsi og útiskóla. Á þessu skólaári tökum við fyrir nokkur fyrirfram ákveðin þemu sem eru: Umhverfis- og Náttúruvernd, Íslandssaga, Fjölbreytileikinn, jörðin okkar, saga mannkyns, tækni og heimabyggðin.
Unnið er með hæfniviðmið náttúrufræði- og samfélagsgreina úr Aðalnámskrár grunnskóla í hverju þema fyrir sig og þau fléttuð inn í markmið Byrjendalæsis og útiskóla.
Námsaðlögun: Áhersla er lögð á hugtakaskilning og orðaforða sem tengist hverju þema í bland við þematengd verkefni í lotunum til dæmis með því að útbúa lestrarspil með hugtökum og orðaforða hvers þema. Nemendur hafa val um leiðir og séu virkir þátttakendur í verkefnum.
Hægt er að sjá öll hæfniviðmið og námsaðlögun sem unnið er með í þematengdum lotum Byrjendalæsis inná mentor.
Þemu og áherslur 1. og 2. bekkjar seinna ár 2021-2022 | Leiðir | Námsmat |
Umhverfis- og náttúruvernd - umhverfisstefna sveitarfélagsins - greinum og leitum leiða til að finna hvar við getum haft áhrif á umhverfi okkar
- gert sér grein fyrir hvernig maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans byggist á samspilinu við hana.
- rætt eigin lífssýn og gildi, gert sér grein fyrir samspili náttúru og manns,
- fjallað um samspil manns og náttúru,
- flokkað úrgang
| Umhverfisstefnan Svalbarðsstrandar skoðuð og rædd og nemendur velja sér þátt og túlka á sinn hátt, t.d. teikna mynd, leikrit, búa til myndband eða myndasögu Hugtök: Leiðarljós, sjálfbærni, endurnýtanlegt. endurnýjanlegt, endurvinnsla, manngert í náttúrunni | Hæfniviðmið einstakra verkefna metin í lotum þemanáms og birt á hæfnikorti nemenda í mentor jafnóðum. Sjálfsmat, leiðsagnarmat og jafningjamat. |
Íslandssaga - Landnámsmenn og landnám Íslands - nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar,
- aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum,
- rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi
- sagt frá atburðum og persónum á völdum tímabilum sem tengjast nærsamfélaginu
| Kynnumst nokkrum af landnámsmönnum Íslands ferðum þeirra og landnámi á Íslandi |
|
Fjölbreytileikinn - fjölskyldugerðir og kynhlutverk - borið kennsl á gildi, svo sem virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, umhyggju og sáttfýsi,
- áttað sig á að trúar- og lífsviðhorf fólks birtast í mismunandi viðhorfum, siðum og venjum
- Áttað sig á mikilvægi fjölskyldunnar og fjölbreytni fjölskyldugerða í samfélagi manna.
- Áttað sig á að fólk býr við ólík fjölskylduform, hefur ólíkan bakgrunn og ber virðingu fyrir mismunandi lífsviðhorfum og lífsháttum
- Hlustað á og greint að, ólíkar skoðanir
- Áttað sig á gildi samhjálpar í samfélaginu.
- Bent á dæmi um hefðbundin kynhlutverk og breytingar á þeim.
|
Kynnumst fjölbreyttum fjölskyldugerðum Kynnumst mismunandi kynhlutverkum |
|
Himingeimurinn - Pláneturnar, sólkerfið, tíminn, jarðfræði Íslands
- Tekið þátt í og sagt frá einföldum athugunum á jarðvegi, veðrun og rofi.
- Sagt frá hvernig Ísland myndast og tekur breytingum.
- Lýst breytingum á náttúru Íslands eftir árstíðum og áhrifum þeirra á lífsskilyrði fólks.
|
Kynnumst sólkerfinu okkar, læri heiti plánetanna og hugtök tengd viðfangsefninu Kynnumst hvernig Ísland varð til og mótun þess læri hugtök um himingeiminn læri hugtök um tímann og klukkuna árstíðir-sólahringur-dagur og nótt-klukkustund-hálftími-korter |
|
Leiðtogar - Skólinn okkar Hugarheimur- Sjálfsmynd: Hæfni nemenda til að átta sig á sjálfum sér og öðrum - Gert sér grein fyrir hvar styrkur hans liggur.
- Sett sig í spor annarra jafnaldra.
- Bent á gildi jákvæðra viðhorfa og gilda fyrir sjálfan sig.
- Bent á fyrirmyndir sem hafa áhrif á hann.
- Áttað sig á og lýst ýmsum tilfinningum, svo sem gleði, sorg og reiði.
Félagsheimur - Samskipti: Hæfni nemenda til að mynda og þróa tengsl sín við aðra - Tekið þátt í samstarfi og samræðu í jafningjahópi.
- Sýnt tillitssemi og virðingu í samskiptum og samvinnu við aðra.
- Hlustað á og greint að, ólíkar skoðanir.
- Áttað sig á ýmiss konar afleiðingum athafna sinna.
- Sýnt tillitssemi og umhyggju í leik og starfi.
|
Vinnum með gildi skólans, skólareglurnar og skólastefnuna.
|
|
Vísindi - Að finna tæknina í umhverfinu - gert sér grein fyrir hvernig maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans byggist á samspili við hana,
- -tekið eftir og rætt atriði í umhverfi sínu, sýnt félögum og náttúru alúð,
| Við skoðum tæknina í kringum okkur og skoðum helstu hugtök sem tengjast bílnum. |
|
Útiskólinn
1. og 2. bekkur, Krummar og Spóar úr leikskóla í samkennslu.
Í útiskólanum leggjum við áherslu á samræðu, upplifun, verklega þátttöku, uppgötvanir, samvinnu, jafningjafræðslu og lýðræðislegar ákvarðanir og umræðu. Í upphafi hvers tíma ræðum við markmið dagsins og hvernig við viljum ná þeim, nemendur koma með uppástungur sem eru ræddar og svo er gengið til kosninga og þeim fylgt eftir.
Hæfniviðmið Aðalnámskrár Grunnskóla. Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir Vetvangsferðir um nánast umhverfi skólans | Námsmat |
Geta til aðgerða - útskýrt hvernig tækni hefur áhrif á lífsgæði íbúa og umhverfi þeirra
- tekið frumkvæði við öflun upplýsinga til að skoða tiltekið málefni frá ýmsum sjónarhornum
- sýnt virkni og látið sig varða nánasta umhverfi og lífsskilyrði lífvera í því
- greint á milli ólíkra sjónarmiða sem varða málefni daglegs lífs
| - Göngum um nærumhverfi og finnum út hvar tækni hefur hjálpað við að móta umhverfi okkar og lífsgæði
- Verndarar fjörunnar tína skaðlega hluti úr fjörunni til að vernda lífríkið þar
- kynnist hvernig tækni hefur áhrif á lífið og umhverfið
- kynnist öflun upplýsinga um ákveðið málefni og rætt
- taki ábyrgð á nærumhverfinu og lífverum þar
| Mat á útiskólanum er byggt á símati kennara þar sem virkni, áhugi og samvinna eru höfð að leiðarljósi, og bekkjar markmið eru metin á mentor |
Nýsköpun og hagnýting þekkingar - komið auga á þarfir og vandamál í umhverfi sínu
- bent á störf sem krefjast sérþekkingar
| - Skoðum það sem betur má fara í nærumhverfinu og ræðum á hvern hátt við getum bætt það
- greinum og leitum leiða til að finna hvar við getum haft áhrif á umhverfi okkar
- kynnist störfum sem krefjast ákveðinnar þekkingar
|
|
Gildi og hlutverk vísinda og tækni - útskýrt hvernig tækni nýtist í daglegu lífi þeirra
- gert sér grein fyrir hvernig maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans byggist á samspilinu við hana
| - Vettvangsferðir, leitin að tækninni í daglegu lífi og okkar nánasta umhverfi
- skoðum ræktað land og óræktað, skurði og læk, fjöruna og varnar garðana þar og berum saman
- kynnist tækni í daglegu lífi nemenda
- skoðum það sem hefur áhrif á afkomu okkar í samspili við náttúruna
|
|
Vinnubrögð og færni - sagt frá og framkvæmt með hversdagslegum hlutum einfaldar athuganir úti og inni
- skráð atburði og athuganir, s.s. með ljósmyndum, teikningum, eigin orðum og sagt frá þeim
- útskýrt valda atburði og hugmyndir á fjölbreyttan hátt
- hlustað á og rætt hugmyndir annarra
| - Leitin að vorinu
- myndasmiður dagsins
- kynnist áttunum, veðurfari og klæðnaði eftir veðri
- geti sagt frá af hverju klæðnaður skiptir máli
|
|
Ábyrgð á umhverfinu - tekið eftir og rætt atriði í umhverfinu sínu, sýnt félögum og náttúru alúð,
- skoðað og skráð dæmi um áhrif af gjörðum mannsins á náttúru og manngert umhverfi í heimabyggð,
- rætt eigin lífssýn og gildi, gert sér grein fyrir samspili náttúru og manns
- tekið þátt í að skoða, greina og bæta eigið umhverfi og náttúru
| - Skoðunarferð um nágrennið og umræða um hvað og hvernig má bæta það og hvernig maðurinn hefur haft áhrif og jafnvel breytt umhverfinu
- tekið þátt í að skoða, greina og bæta eigið umhverfi og náttúru
|
|
Að búa á jörðinni - tekið þátt í og sagt frá einföldum athugunum á jarðvegi, veðrun og rofi
- fylgst með og skráð upplýsingar um veður í heimabyggð
- lýst breytingum á náttúru Íslands eftir árstíðum og áhrifum þeirra á lífsskilyrði fólks
| - Kynnist mismunandi jarðvegi, veðrun og rofi
- kynnist breytingum í náttúrunni eftir árstíðum og hvernig það breytir lífi fólks
|
|
Lífsskilyrði manna - útskýrt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu og svefns
- rætt fjölbreytni í nýtingu vatns á heimilum og í umhverfinu
| - Umræður í upphafi útiskóla um klæðnað eftir veðri og mikilvægi fæðu og svefns
- ræðum hvað er mikilvægt svo við getum farið í útiskóla í allavega veðrum
- kynnist hvernig vatnið nýtist á heimilum og í umhverfinu og er öllum lífverum lífsnauðsynlegt
|
|
Náttúra Íslands - sagt frá eigin upplifun á náttúrunni og skoðun á lífveru í náttúrulegu umhverfi
- útskýrt einkenni lifandi vera, skýrt með dæmum lífsskilyrði lífvera og tengsl við umhverfi
- lýst algengustu lífverum í nánasta umhverfi sínu
- útskýrt fæðukeðjur og rakið fæðu til frumframleiðenda
|
- Vettvangsferðir þar sem við skoðum fuglalífið, skordýr og aðrar lífverur í okkar nánasta umhverfi ræðum um fæðukeðjur og finna dæmi
- kynnist og skoði lífverur í nánasta umhverfi
- kynnist algengustu orkugjöfum á Íslandi
|
|
Heilbrigði umhverfisins - fjallað um samspil manns og náttúru
- flokkað úrgang
| - Verndarar fjörunnar er verkefni að vori, tínum rusl úr fjörunni, flokkum á gámasvæðinu, ræðum hvað áhrif ruslið sem við tínum hefur á lífríkið í kringum okkur
- kynnist samspili mans og náttúru
- kynnist flokkun úrgangs
|
|
Samspil vísinda, tækni og þróunar í samfélaginu - flokkað gerviefni og náttúruleg efni eftir tilurð þeirra
- rætt hvernig uppfinningar hafa gert líf fólks auðveldara eða erfiðara, á heimilum og í ólíkum atvinnugreinum
| - Vettvangsferð og umræða um náttúruleg efni og gerviefni sem við finnum í næsta nágrenni og uppfinningar í nærumhverfinu og hvernig þær hafa áhrif á líf fólks
- kynnist gerviefnum og náttúrulegum efnum í náttúrunni
- kynnist uppfinningum sem hafa áhrif á líf fólks t.d. á heimilum
|
|
Skólaíþróttir
Íþróttir
Hæfniviðmið Nemandi getur: | Leiðir | Námsmat |
Líkamsvitund, leikni og afkastageta Sýnt einfaldar hreyfingar sem reyna á lipurð og samhæfingu. Gert hreyfingar sem reyna á stöðujafnvægi og hreyfijafnvægi
Félagslegir þættir Unnið með þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa í leikjum.
Heilsa og efling þekkingar Útskýrt líkamlegan mun á kynjum. Skýrt mikilvægi hreinlætis í tengslum við íþróttir. Tekið þátt í gömlum íslenskum leikjum og æfingum.
Öryggis– og skipulagsreglur Farið eftir öryggis-, skipulags- og umgengnisreglum íþróttahúss og brugðist við óhöppum | Líkamsvitund, leikni og afkastageta Æfingar með ýmis áhöld eins og gjarðir, sippuband og bolta Stöðvar og áhaldabrautir Boltaleikir, hlaupa- og viðbragðsleikir. Gólfæfingar, hlaup, stökk, sveiflur og klifur
Félagslegir þættir Fjölbreyttir leikir sem krefjast mismunandi reglna, samvinnu og samskipta. Tjái skoðun sína á æfingum og leikjum.
Heilsa og efling þekkingar Fræðsla og umræður um umhirðu líkamans Þjóðlegir leikir.
Öryggis- og skipulagsreglur Þjálfun í að þvo sér, þurrka, klæða sig, ganga frá fötum og handklæði. Þjálfist að fara eftir fyrirmælum kennara í leikjum. | Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og virkni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt. |
Sund
Hæfniviðmið | Leiðir | Námsmat |
Líkamsvitund, leikni og afkastageta
Við lok 1. bekkjar getur nemandi: Tekið þátt í stöðluðum prófum Kafað, velt sér af kvið á bak og öfugt og tekið þátt í leikjum í vatni.
Við lok 2. bekkjar getur nemandi: Tekið þátt í stöðluðum prófum, Kafað, flotið, velt sér af kvið á bak og öfugt og tekið þátt í leikjum í vatni.
Félagslegir þættir Skilið skipulagshugtök í skólaíþróttum og farið eftir leikreglum, Gert sér grein fyrir eigin líkamsvitund og einkastöðum líkamans.
Heilsa og efling þekkingar Skýrt mikilvægi hreinlætis í tengslum við íþróttir og sundiðkun, Útskýrt líkamlegan mun á kynjum, Notað einföld hugtök sem tengjast sundiðkun og líkamlegri áreynslu, Gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum,
Öryggis- og skipulagsreglur Farið eftir öryggis-, skipulags- og umgengnisreglum sundstaða og brugðist við óhöppum. | Líkamsvitund, leikni og afkastageta Ýmsir leikir og æfingar í köfun, blása plastflöskum til að æfa öndun, flot og aðlögun í vatni.
Félagslegir þættir Fjölbreyttir leikir sem krefjast mismunandi reglna, samvinnu og samskipta. Tjái skoðun sína á æfingum og leikjum.
Heilsa og efling þekkingar Fræðsla og umræður um umhirðu líkamans Þjóðlegir leikir.
Öryggis- og skipulagsreglur Þjálfun í að þvo sér, þurrka, klæða sig, ganga frá fötum og handklæði. Þjálfist að fara eftir fyrirmælum kennara í leikjum. Nemandi þjálfi sig í að fara eftir reglum á sundstöðum. | Stöðumat Fer fram í byrjun á hæfni til að fara í kaf og fljóta. Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og virkni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Stærðfræði
Lögð er áhersla á fjölbreyttar kennsluaðferðir til að styðja sem best við nám nemenda, efla sjálfstraust og koma til móts við mismunandi þarfir þeirra. Þær eru meðal annars stigskiptur stuðningur, innlögn og bein kennsla, jafningjafræðsla, para- og hópverkefni, námsleikir og spil, þrautir og þjálfunarforrit.
Samkennsla er í 1. og 2. bekk, lögð er áhersla á að styrkja jákvætt viðhorf nemenda til stærðfræðinnar með fjölbreyttum verkefnum, þeir læri grunn hugtök stærðfræðinnar, rannsaki, leiki sér, ræði saman og tengi við daglegt líf. Í stærðfræði er notast við fjölbreyttar kennsluaðferðir. Nemendur fá innlagnir frá kennurum, taka þátt í umræðum, fá þjálfun í notkun reikniaðgerða og rökhugsun.
Námsaðlögun: Nemendur vinna einstaklingslega, í pörum eða í hópum. Námsárinu er skipt upp í ákveðna námsþætti sem nemendur vinna að hverju sinni. Allir vinna með sama viðfangsefnið á sama tíma en nemendur eru með einstaklingsmiðuð verkefni eftir getu, færni, áhuga og virkni. Stuðningur í stofunni er mikilvægur og styður þá sem eiga auðvelt með námsefnið og þá sem ráða ekki við það efni sem lagt er fyrir hverju sinni. Ef vandinn er meiri, fá nemendur stuðning við námið hjá sérkennara, ýmist inn í stofunni eða farið annað í smærri hópum eða einstaklingslega.
Námsefni: Sproti 1a, 1b, 2a, 2b og ýmis verkefni frá kennara.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Að geta spurt og svarað með stærðfræði - Tekið þátt í samræðum um spurningar og svör sem eru einkennandi fyrir stærðfræði
- Leyst stærðfræðiþrautir um viðfangsefni sem gefa tækifæri til að beita innsæi, nota áþreifanlega hluti og eigin skýringarmyndir
- Sett fram, meðhöndlað og túlkað einföld reiknilíkön, talnalínur, teikningar og myndrit sem tengjast umhverfi hans og daglegu lífi
- Rökrætt af innsæi um stærðfræðiverkefni sem tengjast eigin reynsluheimi, rökstutt niðurstöður sínar, val á lausnaleiðum og fylgt röksemdafærslu
| Nemendur ræða saman um hvernig hægt er að nýta sér ýmis hlutbundin gögn til að leysa verkefni daglegs lífs og færi yfir í myndmál, frásögn eða texta, skýri frá ferlinu og skili til kennara á rafrænu formi. | Leiðsagnarmat, kannanir, sjálfsmat og jafningjamat eru leiðarljósin í námsmati allra þátta í stærðfræði og eftirfylgni í kjölfarið. Markmið eru metin í mentor og birtast á hæfnikortum nemenda í lok hverrar lotu og svo samantekt í lok skólaárs. |
Að kunna að fara með tungumál og verkfræði stærðfræðinnar - Notað myndmál, frásögn og texta jafnhliða táknmáli stærðfræðinnar og unnið með innbyrðis tengsl þeirra
- Túlkað og notað einföld stærðfræðitákn, þar með talið tölur og aðgerðamerki og tengt þau við daglegt mál
- Tekið þátt í samræðum um stærðfræðileg verkefni
- Notað hentug verkfæri, þar með talin hlutbundin gögn, reiknirit, talnalínu, vasareikna og tölvur, til rannsókna á stærðfræðilegum viðfangsefnum
| Nemendur ræða saman um hvernig hægt er að nýta sér ýmis hlutbundin gögn til að leysa verkefni daglegs lífs og færi yfir í myndmál, frásögn eða texta, skýri frá ferlinu og skili til kennara á rafrænan formi. | Við lok 4. bekkjar eiga nemendur að vera búnir að ná markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
|
Vinnubrögð og beiting stærðfræðinnar - Tekið þátt í að þróa fjölbreyttar lausnaleiðir með því m.a. að nota hlutbundin gögn og teikningar
- Kannað og rannsakað með því að setja fram tilgátur og gera tilraunir með áþreifanlegum gögnum
- Lesið og rætt um einfaldar upplýsingar, þar sem stærðfræðihugtök eru notuð
- Undirbúið og flutt stuttar kynningar á eigin vinnu með stærðfræði
- Unnið í samvinnu við aðra að lausnum stærðfræðiverkefna þar sem byggt er á forsendum og hugmyndum nemenda
- Notað stærðfræði til að finna lausnir á verkefnum sem takast þarf á við í daglegu lífi og gera sér grein fyrir verðgildi peninga
- Borið skynbragð á hverjir möguleikar og takmörk stærðfræðinnar til að lýsa veruleikanum
| Nemendur læri að nýta sér ýmis hlutbundin gögn og leita lausna með hjálp þeirra, útskýra hvernig þeir finna lausnina fyrir samnemendum ýmist í hópum eða pörum. Búðarleikir, stærðfræðisögur og spil til að skerpa á þekkingu |
|
Tölur og reikningur - Notað náttúrulegar tölur, raðað þeim og borið saman
- Notað tugakerfisrithátt
- Reiknað með náttúrulegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt
- Tekið þátt í að þróa hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning samlagningar-, frádráttar-, margföldunar- og deilingardæma
- Leyst viðfangsefni sem sprottin eru úr daglegu lífi og umhverfi með hugarreikningi, vasareikni, tölvuforritum og skriflegum útreikningum
- Gefið dæmi um og sýnt hvernig einföld almenn- og tugabrot og hlutföll eru notuð í daglegu lífi
| Spil, kubbar og ýmsir leikir með tölur og tugakerfið, nemendur vinna saman að því að útskýra reikningsaðferðir og miðla á mismunandi máta til dæmis með stærðfræðisögum, teikningum eða leikþætti |
|
Algebra - Kannað, búið til og tjáð sig um reglur í talnamynstrum og öðrum mynstrum og spáð fyrir um framhald mynsturs, t.d. með því að nota líkön og hluti
- Notað táknmál stærðfræðinnar til að meta sanngildi og tjá vensl eins og jöfnuð og röð
- Fundið lausnir á jöfnum með óformlegum aðferðum og rökstutt lausnir sínar t.d. með því að nota áþreifanlega hluti
| Kynnist mynstrum í nánasta umhverfi, finna óþekkta þáttinn í jöfnum og útskýri fyrir samnemendum |
|
Rúmfræði og mælingar - Notað hugtök úr rúmfræði s.s. um form stærðir og staðsetningu til að tala um hluti og fyrirbrigði í daglegu lífi og umhverfi sínu
- Gert óformlegar rannsóknir á tví- og þrívíðum formum teiknað skýringamyndir af þeim og hlutum í umhverfi sínu
- Unnið með mælikvarða og lögun
- Áætlað og mælt lengd, flöt, rými, þyngd, tíma og hitastig með einföldum mælitækjum og notað viðeigandi mælikvarða
- Rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota tölvur og hlutbundin gögn
- Speglað og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir á mynstrum sem þekja flötinn
- Borið saman niðurstöður mismunandi mælinga og túlkað niðurstöður sínar
| Mæli með mismunandi mælieiningum, kynnist formum og tengi við nánasta umhverfi, læri einföld hugtök rúmfræðinnar, rannsaki og beri saman ýmsar niðurstöður og kynni fyrir samnemendum |
|
Tölfræði og líkindi - Safnað gögnum í umhverfi sínu og um eigið áhugasvið
- Talið flokkað og skráð, lesið úr niðurstöðum sínum og sett upp í einföld myndrit
- Tekið þátt í umræðum um gagnasöfnun og myndrit bæði eigin og annarra
- Tekið þátt í umræðum um tilviljanir og líkur, s.s. hvað er líklegt að muni gerast og hvað er tilviljunum háð
- Gert einfaldar tilraunir með líkur og borið skynbragð á áhrif þeirra í spilum
| Samræður, spil, kannanir og öflun upplýsinga fyrir einföld súlurit |
|
Upplýsinga og tæknimennt
Hægt er að sjá öll hæfniviðmið og námsaðlögun sem unnið er með hverju sinni í þematengdum lotum Byrjendalæsis inná mentor.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Vinnulag og vinnubrögð - Nýtt upplýsingaver sér til gagns og ánægju, s.s. til lesturs, hlustunar og leitarnáms,
- Nýtt rafrænt námsefni á einföldu formi til stuðnings við vinnutækni og vinnulag,
- Sýnt frumkvæði og tekið þátt í samvinnuverkefnum undir leiðsögn,
- Gert sér grein fyrir ólíkum aðferðum við notkun á ýmsum tæknibúnaði,
- Beitt undirstöðuatriðum í fingrasetningum.
| Ýmsar verklegar æfingar og þjálfunarleikir, samþætt viðfangsefnum í öðrum námsgreinum. Nemendur; - læri að nýta sér lestrarefni á netinu og vinna með því verkefni
- vinna með ýmis verkefni í seesaw sem skilað er á rafrænu formi til kennara
- æfi í fingrasetningu með hjálp forrita og leikja
| Leiðsagnarmat, símat kennara og sjálfsmat nemenda. Markmið eru metin í mentor og birtast á hæfnikortum nemenda í lok hverrar lotu og svo samantekt í lok skólaárs. |
Upplýsingaöflun og úrvinnsla - Leitað upplýsinga og nýtt við verkefnavinnu,
- Nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni,
- Unnið með heimildir,
- Nýtt upplýsingatækni og forrit við uppbyggingu einfaldra verkefna,
- Nýtt hugbúnað/forrit við framsetningu á einföldum tölulegum gögnum.
|
- læri að nýta sér ýmis forrit sér til upplýsingar og gleði
- læri að nýta sér lestrarefni á netinu og vinna úr því verkefni vinna með ýmis verkefni í seesaw sem skilað er á rafrænu formi til kennara
- læri að nýta sér einföld hugtakakort
- læri að skrá sig á netfang í google og vinna verkefni í classroom
| Við lok 4. bekkjar eiga nemendur að vera búnir að ná markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
|
Tækni og búnaður - Notað hugbúnað/forrit við einföld ritunarverkefni og framsetningu tölulegra gagna,
- Notað einfaldan hugbúnað/forrit við myndvinnslu,
- Nýtt hugbúnað við einfalda vefsmíð
|
- læri undirstöðu forritunar með leikjum í spjaldtölvum og tölvum
- læri að nýta sér verklegar æfingar og þjálfunarleikir, samþætt viðfangsefnum í öðrum námsgreinum.
|
|
Sköpun og miðlun - Lýst á einfaldan hátt eigin upplýsinga- og miðlalæsi,
- Notað hugbúnað/forrit við miðlun þekkingar á einfaldan hátt
|
- æfist í að nota einföld forrit til að vinna úr upplýsingum sem safnað er og segja frá með hjálp tækninnar
|
|
Siðferði og öryggismál - Sýnt ábyrgð í meðferð upplýsinga,
- Farið eftir einföldum reglum um ábyrga netnotkun og er meðvitaður um siðferðilegt gildi þeirra.
|
- taki þátt í umræðu um öryggi og siðferði þegar netið er notaði
|
|
Lífsleikni og bekkjarfundir
Á bekkjarfundum eru tekin fyrir málefni líðandi stundar og rædd með áherslu á markmið lykilhæfninnar. Nemendur ræða mál sem þeir vilja að fjallað sé um á skólaþingi og undirbúa þau. Farið er eftir ákveðnum samræðureglum á bekkjarfundum sem samþykktar eru á fyrsta bekkjarfundi skólaársins. Lífsleiknin tengist öllum námsgreinum.
Hæfniviðmið úr Aðalnámskrá Lykilhæfni fyrir 1.-4. bekk | Leiðir | Námsmat |
Tjáning og miðlun | Tjáning og miðlun fram fram á bekkjarfundum þar sem allir fá tækifæri og örvun til að tjá sig og hlusta á aðra og leiðsögn til að taka tilliti til skoðana annarra og virða þær. | Í öllum þáttum eru markmið lykilhæfni metin í mentor og birt á hæfnikortum nemenda eftir því sem verið er að vinna að hverju sinni. |
Skapandi og gagnrýnin hugsun | Nemendur fá tækifæri til að skipuleggja málefni sem eiga að fara á skólaþing eftir umræðu um hvort þau samræmist reglum og markmiðum skólaþings. Nemendur fá tækifæri til að hafa áhrif á nám sitt og með tilliti til viðmiða um árangur náms. | Sjálfsmat
|
Sjálfstæði og samvinna | Nemendur fá tækifæri til að vinna að þeim málefnum sem þeir vilja koma á framfæri skipuleggja verkefni sem leiðtogar á leiðtogasmiðjum í pörum, skipti með sér hlutverkum. | Jafningjamat
|
Nýting miðla og upplýsinga | Nemendur geta valið sér valið sér viðfangsefni og finna leiðir til að kynna fyrir samnemendum eða jafnvel öðrum námshópum. | Leiðsagnarmat |
Ábyrgð og mat á eigin námi | Nemendur setja sér markmið og nýta styrkleika sína til að hafa áhrif á nám sitt og hvernig þeir vilja ná markmiðum sínum. | Leiðsagnarmat |
Umhyggja, virðing, metnaður, gleði