Upplýsingatafla 1. umferðar Íslandsmeistaramóts í kappakstri 2026
14. júní 2026
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 18 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 16:30 |
Eftir að akstri í síðari kappaksturslotu lauk kom dómnefnd saman kl 15:55.
Tímavörður hefur tekið saman bráðabirgðaúrslit keppninnar, og í umboði keppnisstjóra lagt þau fyrir dómnefnd.
Dómnefnd veitir keppnisstjóra heimild til að birta bráðabirgðaúrslit á upplýsingatöflu.
Hlé gert á fundinum kl 15:57 á meðan kærufrestur líður.
Dómnefnd kom aftur saman kl 16:28.
Engar kærur eða athugasemdir bárust fyrir lok kærufrests. Lokaúrslit keppninnar eru
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 17 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 15:57 |
Bráðabirgðaúrslit - endurbirt
Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda ökutækis nr. 7 |
Skjal | 16 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 15:33 |
Við vigtun ökutækja í Parc Fermé að lokinni seinni kappaksturslotu kom í ljós að ökutæki nr. 7 vigtaðist 898 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Samkvæmt grein 6.3.2 í Keppnisgreinareglum AKÍS fyrir kappakstur er lágmarksþyngd ökutækis í flokknum 900 kg með ökumanni og hlífðarbúnaði hans.
Ökutæki nr. 7 uppfyllti því ekki lágmarksþyngdarkröfur flokksins við lok seinni kappaksturslotu.
Keppandi og ökumaður ökutækis nr. 7 eru útilokuð úr úrslitum seinni kappaksturslotu.
Úrslit seinni kappaksturslotu skulu leiðrétt til samræmis við það.
Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda ökutækis nr. 1 |
Skjal | 15 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 15:11 |
Dómnefnd hefur farið yfir atvik sem átti sér stað í beygju 1 á 3. hring seinni kappaksturslotu milli ökutækja nr. 1 og nr. 67.
Dómnefnd aflaði og fór yfir fyrirliggjandi myndefni og önnur tiltæk gögn vegna atviksins.
Að mati dómnefndar reyndi ökumaður ökutækis nr. 1 framúrakstur inn í beygju 1 án þess að eiga nægjanlegan rétt á beygjunni og olli við það árekstri við ökutæki nr. 67.
Dómnefnd telur viðeigandi refsingu fyrir brotið vera Drive Through refsingu.
Þar sem ekki reyndist unnt að dæma atvikið og birta refsingu áður en keppni lauk er Drive Through refsingunni umbreytt í 30 sekúndna tímarefsingu, sem bætist við heildartíma ökutækis nr. 1 í seinni kappaksturslotu.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
Formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 14 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 14:58 |
Bráðabirgðaúrslit
Keppendur eru minntir á heimild sína til kæru skv. grein 13 í Reglubókinni.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 13 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 14:49 |
Staða úr seinni kappaksturslotu
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 12 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 14:40 |
Vigtun ökutækja
Keppnisstjóri óskar eftir að ökutæki í þremur efstu sætum hvors flokks verði vigtaðir í lok keppni.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppenda nr. 1 og keppenda nr. 67 |
Skjal | 11 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 14:34 |
Dómnefnd hefur tekið til skoðunar atvik sem átti sér stað á 3. hring í seinni kappaksturslotu, þar sem ökutæki nr. 1 og nr. 67 lentu saman í beygju 1.
Dómnefnd hefur farið yfir þau gögn sem liggja fyrir en telur þau ekki nægjanleg til að komast að niðurstöðu um atvikið á þessu stigi.
Dómnefnd óskar því eftir að keppendur nr. 1 og nr. 67 afhendi myndefni úr myndavélum ökutækja sinna að lokinni kappaksturslotu til frekari skoðunar.
Ákvörðun um frekari aðgerðir verður tekin þegar umbeðin gögn hafa verið yfirfarin.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
Formaður dómnefndar
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 10 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 14:31 |
Dómnefnd hefur tekið fyrir atvik við ræsingu seinni kappaksturslotu.
Ökutæki nr. 16 færðist af stað áður en ræsingarmerki var gefið og telst það þjófstart.
Dómnefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn og staðfestir að um þjófstart var að ræða.
Ökumanni ökutækis nr. 16 er gert að aka í gegnum pittsvæði sem refsing fyrir þjófstart.
Refsinguna skal taka við fyrsta tækifæri samkvæmt fyrirmælum keppnisstjóra.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 9 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 13:52 |
Vegna rauðs flaggs í fyrri kappaksturslotu og tafa sem urðu við hreinsun brautar hefur keppnisstjóri óskað eftir breytingu á dagskrá keppninnar.
Dómnefnd samþykkir beiðnina.
Ræsing seinni kappaksturslotu verður kl. 14:15 í stað 14:00 samkvæmt sérreglum.
Önnur ákvæði sérreglna haldast óbreytt.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
Formaður dómnefndar
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 9 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 13:32 |
Staða úr fyrri kappaksturslotu
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 8 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 12:53 |
Í kjölfar fyrirspurnar frá keppnisstjóra heimilar dómnefnd vinnu við ökutæki í pitti á meðan keppni er stöðvuð með rauðu flaggi.
Heimildin gildir jafnt fyrir alla keppendur.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
Formaður dómnefndar
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 7 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 12:49 |
Endurræsing keppni
Í kjölfar rauðs flaggs og stöðvunar keppni hefur keppnisstjóri óskað eftir heimild dómnefndar til að ræsa keppnina að nýju með rúllandi ræsingu á eftir öryggisbíl.
Dómnefnd samþykkir beiðnina. Keppendur skulu fylgja fyrirmælum keppnisstjóra, pittstjóra og öryggisbíls við endurræsingu.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
Formaður dómnefndar
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 6 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 12:34 |
Breyting á dagskrá
Að beiðni keppnisstjóra hefur dómnefnd samþykkt að fresta ræsingu seinni kappaksturslotu um 30 mínútur vegna tafa sem urðu við framkvæmd fyrri kappaksturslotu.
Ræsing seinni kappaksturslotu verður því kl. 14:00 í stað kl. 13:30.
Önnur ákvæði sérreglna haldast óbreytt.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
Formaður dómnefndar
Frá | Tímaverði |
Til | Allra keppenda og liðsstjóra |
Skjal | 5 |
Dagsetning | 14. júní 2026 |
Klukkan | 11:59 |
Bráðabirgðaúrslit
Tímavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 4 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 11:32 |
Niðurstaða Skoðunar
Skoðunarmaður upplýsir að 11 ökutæki hafi verið skoðuð og fengið rásheimild.
Bíll 87 mætir ekki til keppni.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 3 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 11:09 |
Fundur dómnefndar
Mættir eru auk dómnefndar þeir Ingimundur Helgason öryggisfulltrúi, Rúnar Már Jóhannsson skoðunarmaður og Baldvin Hansson keppnisstjóri.
Skoðunarmaður upplýsir að skoðun seinki, að svo stöddu hafa 7 ökutæki fengið rásheimild, 2 ökutækjum verið hafnað með athugasemdum, og enn á eftir að skoða 2 ökutæki.
Öryggisfulltrúi hefur farið yfir það sem undir hann heyrir og allt er klárt til að hefja akstur.
Keppnisstjóri hefur lokið keppendafundi og segir braut og starfsmenn tilbúna.
Öll leyfi fyrir keppninni hafa verið sannreynd og að framangreindum upplýsingum fengnum heimilar dómnefnd að ökutæki verði ræst til tímatökuæfingar samkvæmt dagskrá kl. 11.00.
Dómnefnd
Viktor Böðvarsson Hákon Jökulsson Rafnar Snær Baldvinsson
formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra |
Skjal | 2 |
Dagsetning | 14.6.2026 |
Klukkan | 09:04 |
Breyting á sérreglum
Dómnefnd hefur ákveðið, að beiðni framkvæmdanefndar, að gera eftirfarandi breytingu á sérreglum keppninnar.
Grein 15.2.2 var: Skoðunarmaður er Gabríel Harðarson.
Grein 15.2.2 verður: Skoðunarmaður er Rúnar Már Jóhannesson.
Fyrir hönd dómnefndar
Viktor Böðvarsson
formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda, liðsstjóra og ökumanna |
Skjal | 1 |
Dagsetning | 13. júní 2026 |
Klukkan | 22:55 |
Allar tímasetningar, keppnisklukkan og ákvarðanir um tíma við rekstur keppninnar miðast við tímann á vefsíðunni time.is sem er öllum opin á netinu.
Tveir brautarverðir vakta brautina alla keppnina. Sjö brautarvörslupóstar með ljósabúnaði eru staðsettir við brautina. Þeir eru númeraðir 1 til 7. Ökumönnum ber að kynna sér staðsetningu þessarra ljósapósta og horfa til þeirra við akstur í brautinni þar sem litur þeirra gefur til kynna stöðu brautarinnar hverju sinni.
Staðsetning ljósapósta á meðfylgjandi korti er til viðmiðunar og getur breyst ef aðstæður krefjast þess. Staðsetning þeirra við lok tímatökuæfingar markar endanlega staðsetningu í fyrri og seinni kappaksturslotum.
Þessi mynd sýnir áætlaða staðsetningu ljósapóstanna (merkt "Brautarvörður" á myndinni):
Við póst 1 geta ökumenn átt von á að fá svart flagg (auk ljóssins sem staðsett er við þennan póst) og ber þeim þá að aka beint inn í pitt. Ef fleiri en eitt ökutæki kemur að flaggpóstinum á sama tíma reynir flaggari að benda sérstaklega á það ökutæki sem átt er við. Ef engar bendingar eru gerðar þegar fleiri en eitt ökutæki koma saman að póstinum og sjá svart flagg skulu öll ökutæki sem að póstinum koma aka inn í pitt.
Ekin verður hefðbundin brautarleið eins og hún lá á æfingu miðvikudaginn 10. júní s.l.
Brautarmörk miðast við öll dekk inni á malbiki. Af því leiðir að fari eitt dekk eða fleiri út fyrir malbik teljast brautarmörk hafa verið rofin og því má búast við að hringtími í tímatökuæfingu eða tími hraðasta hrings í keppnislotu verði felldur niður komi upp slíkt tilfelli.
Jafnframt má ökumaður búast við refsingum rjúfi hann brautarmörk ítrekað innan tímatöku- eða tiltekinnar keppnislotu.
Allar keilur við brautina eru utan brautarmarka. Snerti ökutæki keilu er telst það því hafa farið út fyrir brautina.
Ökumenn skulu aka rakleitt að ráslínu úr pitti og fylgja leiðbeiningum ræsis. Ekki skal aka alla brautina heldur taka fyrstu vinstri beygju í U og að ráslínu. Nauðsynlegt er fyrir ökumann að vita á eftir hverjum er ræst til að uppröðun gangi greiðlega fyrir sig.
Fyrsta ökutæki ræsir vinstra megin á brautinni!
Ræsir er til taks á ráslínu. Hann stjórnar uppstillingu fyrir ræsingu.
Ræst er með grænu flaggi. Flaggið er reist og stendur uppi í 1-8 sekúndur. Þegar flaggið er fellt telst keppnislotan ræst.
Pittur opnar (grænt við útkeyrslu) um leið og síðasta ökutæki frá ráslínu hefur ekið framhjá pitt útkeyrslunni. Þá mega þeir ökumenn hefja keppni sem ræsa frá pittsvæði.
Um hegðun ökumanna í brautarakstri gildir kafli IV viðauka L við Reglubók FIA. Það er nauðsynlegt fyrir keppendur að kynna sér þennan kafla vel. Auk þess sem þar kemur fram gilda eftirfarandi viðmið um ásættanlega aksturshegðun.
Við framúrakstur á beinum kafla telst sá sem tekur fram úr enn vera við hlið þess (eða þeirra) sem tekið er fram úr þar til afturendi hans er kominn alveg fram fyrir framenda þess sem tekið er fram úr. Ekki má aka fyrir þann sem tekið er fram úr fyrr en framúrakstri er að fullu lokið. Þá gilda ofangreindar reglur um stöðuvörn.
Ökumaður sem ver stöðu sína á beinum kafla eða fyrir bremsusvæði má nota alla brautarbreiddina við fyrstu stefnubreytingu að því gefnu að enginn hluti þess ökutækis sem reynir að komast framúr honum sé við hlið hans. Á meðan ökumaður verst með þessum hætti má hann ekki yfirgefa brautina án réttlætanlegrar ástæðu.
Ökumaður sem ver stöðu sína í beygju má halda aksturslínunni sé hann meira en hálfa bíllengd í miðri beygju fyrir framan þann sem reynir framúrakstur. Hins vegar er ekki ásættanlegt ef þeirri stöðu er náð með því að taka beygjuna á of mikilli ferð til að halda eðlilegri aksturslínu. "Dive-bombing" er sem sagt óásættanleg aksturshegðun.
Bremsuprófanir, spól eða önnur óeðlileg aksturshegðun inni á brautinni, í pitt akrein eða pittinum sjálfum er með öllu óheimil.
Komi upp sú staða að ekki sé hægt að haga merkjagjöf með þeim hætti sem best þykir eða reglur kveða á um, ber ökumönnum þess í stað að hlýða augljósum bendingum eða skipunum starfsmanna.
Sé brautarvörður með flagg við brautarvarðstöð þar sem ljós logar ber að hlýða fyrirmælum brautarvarðarins og þess flaggs sem hann veifar eða sýnir, frekar en að hlýða ljósinu.
Pittstjóri úthlutar keppendum stæði á pittsvæði og gerir grein fyrir og útskýrir umferðarreglur sem þar gilda ef einhverjar eru.
Þegar útkeyrsla úr pitti er opin er grænt flagg eða ljós við pittvegg. Þá er heimilt að aka inn á brautina án sérstakrar aðstoðar eða bendinga starfsmanna. Hins vegar skal alltaf taka tillit til umferðar á brautinni og aka inn á hana af ýtrustu varkárni! Jafnframt skulu ökumenn sem aka brautina framhjá pittútkeyrslu varast að ógna þeim sem aka úr pittsvæði með óvarkárni í akstri og gefa þeim pláss til að komast inn á brautina.
Við útkeyrslu úr pitti er óhemilt að aka yfir hvíta línu á vinstri hönd. Pittstjóri getur tilkynnt um akstur yfir hvíta línu við pitt útkeyrslu og verður slíkum atvikum vísað til dómnefndar.
Þegar útkeyrslan er lokuð er rautt flagg eða ljós við hana. Þá er óheimilt að aka út úr pittinum!
Sé pittakrein blaut er gríðarlega mikilvægt að sýna sérstaka aðgát þegar hún er ekin!
Eftir að ekið er með einhvern hluta ökutækis inn fyrir keilur sem marka innkeyrslu í pitt (pitthlið/pit entry) er óheimilt að bakka eða snúa við, heldur verður að aka í gegnum pittinn og aftur út á brautina til að halda akstri áfram! Hámarkshraði frá innkeyrslu í pitt og að pitthúsi er 50 km á klst. en eftir það 15 km.
Af öryggisástæðum er óheimilt að stöðva ökutæki í pitt akrein á meðan pitt útkeyrsla er opin, án réttlætanlegrar ástæðu.
Fyrstu hjálpar viðbragðsvörður mannar fyrstu hjálpar bíl keppninnar.
Við ræsingu fylgir fyrstu hjálpar bíll ökutækjunum rúman þriðjung fyrsta hrings. Þetta er gert í öryggisskyni og flýtir fyrir fyrstu hjálp komi upp atvik í fyrstu beygjum brautarinnar.
Að auki getur hann verið kallaður til komi upp atvik sem krefjast fyrstu hjálpar. Ökumönnum ber að veita bílnum forgang og sýna sérstaka aðgát í kringum hann og þá starfsmenn sem bílnum fylgja!
Ökumenn sem lenda í óhappi sem leiðir af sér að ekki er hægt að aka áfram skulu bíða í bílnum nema brýn nauðsyn kalli á annað. Viðbragðsvörður mun hlúa að þeim ökumönnum sem verða fyrir slysi af einhverju tagi á meðan á keppni stendur.
Keppnisstjóri tekur ákvörðun um að öryggisbíll aki inn á brautina þyki honum ástæða til. Að jafnaði er öryggisbíll notaður ef starfsmenn eða ökumenn teljast í hættu á eða við brautina en aðstæður kalla ekki endilega á að keppni sé stöðvuð.
Gult flagg fer á loft hjá öllum brautarvörðum (og á öllum brautarljósum) á meðan öryggisbíllinn er í brautinni.
Engu keppnistæki skal ekið ógætilega, óreglulega, óeðlilega hægt eða á annan hátt sem telja má hættulegt öðrum keppendum eða starfsmönnum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Á þetta við um allan akstur á brautinni og í pitt akreinum og pitt svæði.
Öryggisbíllinn ekur inn á brautina með blikkandi ljós og án tillits til þess hvar fremsti bíll er staðsettur þá stundina.
Keppnistæki skulu hægja ferð og mynda röð á eftir öryggisbílnum með hámark fjórar bíllengdir á milli bíla.
Óheimilt er að taka fram úr öryggisbíl eða öðrum keppnistækjum á meðan öryggisbíllinn er í brautinni. Framúrakstur er þó heimill ef:
Öryggisbíllinn yfirgefur brautina og ekur í pitt þegar keppnisstjóri telur óhætt að leyfa hefðbundinn akstur að nýju. Þá falla gulu flöggin og grænt flagg er gefið (eða viðeigandi ljós).
Áður en öryggisbíll yfirgefur brautina slekkur hann viðvörunarljósin sem hann hefur haft blikkandi. Þetta gefur ökumönnum til kynna að kappakstur hefjist að nýju um leið og öryggisbíll ekur inn fyrir pitthlið og yfirgefur með því brautina.
Þegar öryggisbíllinn hefur ekið inn fyrir pitthlið telst hann hafa yfirgefið brautina, keppnin heldur áfram og framúrakstur er heimill að nýju. Á meðan öryggisbíll er í braut heldur talning ekinna hringja áfram.
Fari rautt flagg (eða ljós) á loft ber ökumanni að aka rakleitt í pitt á hæfilegum hraða en allri keppni skal samstundis hætt og framúrakstur er bannaður. Keppnisstjóri getur tekið ákvörðun um að senda öryggisbíl í brautina við rautt flagg. Keppendur skulu leitast við að greiða för öryggisbíls við slíkar aðstæður eins og þurfa þykir ef hann virðist vilja aka fram úr þeim.
Aki öryggisbíll framhjá kyrrstæðum bíl meðan rautt flagg er í brautinni getur viðbragðsvörður gefið merki með grænu ljósi á aftanverðri ljósastæðu sinni eða með fána eða öðrum skýrum hætti frá öryggisbílnum og skal kyrrstæða ökutækið þá bætast aftast í halarófu þeirra bíla sem fylgja öryggisbílnum og aka á eftir honum að pittsvæði og fara þá inn í pittinn. Aka skal í pittinn þó öryggisbíll haldi akstri áfram eftir brautinni!
Grænt ljós frá öryggisbíl undir rauðum flöggum (eða ljósum) brautarvarða þýðir EKKI að aka megi fram úr öryggisbílnum, heldur að fylgja eigi honum og aka í pitt!
Þó öryggisbíll sé í brautinni og gult flagg á lofti má keppandi aka í pitt ef hann vill. Þegar ekið er inn á brautina úr pittinum á meðan öryggisbíll er úti skal ökumaður einungis aka út þannig að hann bætist aftan við halarófu þeirra sem honum fylgja nema pittstjóri gefi honum merki um annað.
Þegar talað er um gult flagg getur það verið hvort heldur sem er, brautarvörður með flagg eða ljósapóstur. Þá er brautarvörður annað af tvennu, sjálfboðaliði eða ljósapóstur.
Ökutæki sem kemur að gulu flaggi verður að hægja nægilega mikið á sér til að það sé augljóst að flaggið sé virt!
Það er með öllu óhemilt að aka fram úr öðru ökutæki eftir að ekið er inn í gulan geira (framhjá gulu flaggi) brautarinnar nema augljóst sé að ökutækið sem ekið er fram úr hafi hægt á sér af því það eigi í vandræðum, til dæmis vegna tjóns eftir árekstur, sprungins hjólbarða eða annars slíks.
Gult flagg gildir frá þeim stað sem ekið er framhjá brautarverði (90° á brautarstefnuna) og að brautarverði sem veifar grænu flaggi! Ef ekki er flaggað á brautarvarðstöð þýðir það EKKI að þar gildi grænt flagg! Áfram skal aka eftir reglum um gult flagg þar til komið er að grænu flaggi.
Notkun dróna á eða við frátekin svæði er með öllu óheimil nema að áður fengnu beinu samþykki frá keppnisstjóra. Keppnishaldari áskilur sér rétt til að vísa af svæðinu einstaklingum sem ekki virða þessa reglu.
Þeir sem vilja fá heimild til myndatöku annars staðar en af áhorfenda- eða pittsvæði þurfa að sækja hana með beinum hætti til keppnisstjóra. Einstaklingur sem fær aðgang að öðrum fráteknum svæðum til myndatöku verður að vera í appelsínugulum sýnileikafatnaði (vesti eða jakka t.d.) um leið og farið er út fyrir áhorfenda- eða pittsvæði.
Keppnisstjóri
Baldvin Hansson