Published using Google Docs
Upplýsingartafla 2 umferð Íslandsmótsins í torfæru, 1 umferð bikarmóts.
Updated automatically every 5 minutes

Upplýsingatafla

Vélsmiðju Suðurlands Torfæran  2026

2. umferð Íslandsmótsins  - 1. umferð Bikarmótsins í torfæru

                                

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

30

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

18:08

Lokaúrslit - fundur dómnefndar

Eftir að akstri síðasta ökutækis í sjöttu og síðustu þraut keppninnar lauk kom dómnefnd saman kl.17:15.

Staðreyndadómarar hafa lokið dómgæslu og yfirferð á þeim óskum um endurskoðun sem þeim barst samkv. grein 3.1.9 í Keppnisgreinarreglum fyrir torfæru.
Tvær óskir um endurskoðun á dæmdum stigum bárust frá þrautadómurum til dómnefndar og var orðið við þeim báðum, sjá skjal nr. 27 á upplýsingatöflunni.

Keppnisstjóra var veitt heimild til að birta bráðabirgðaúrslit og tilkynna um upphaf kærufrests.

30 mín. hlé er gert á fundinum kl. 17:37 meðan kærufrestur líður.

Dómnefnd kom aftur saman kl. 18:07.
Engar kærur eða athugasemdir bárust fyrir lok kærufrests. Lokaúrslit keppninnar eru eftirfarandi:

Sérútbúnir götubílar

Sérútbúnir bílar

Dómnefnd

Aðalsteinn Símonarson        Benedikt Ó Ásgeirsson        Sigfús Þór Sigurðsson
formaður                        dómnefndarmaður                dómnefndarmaður

Frá

Keppnisstjóra

Til

Allra

Skjal

29

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

17:37

Bráðabirgðaúrslit

Frá

Keppnisstjóra

Til

Allra

Skjal

28

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

17:37

Bráðabirgðaúrslit

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Stigavarðar, keppnisstjóra, keppanda nr. 86 og keppanda nr. 275

Skjal

27

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

17:30

Leiðrétting á stigum

Málavextir

Dómnefnd barst beiðni frá þrautadómurum um að breyta stigagjöf tveggja ökumanna í 4. þraut, að þeir fengju 100 stig í stað 75 stiga sem þeim voru dæmd samkvæmt bráðabirgðaúrslitum þrautarinnar. Rök þrautadómara eru að bæði þessi ökutæki hafi verið komin inn á stigasvæði fjögur áður en akstri þeirra lýkur og eigi því fá 100 stig, 25 fyrir hvert hafið stigasvæði samkvæmt grein 4.5.7.a.

Niðurstaða

Samkvæmt grein 4.5.7.a skal ökumaður fá 25 stig fyrir hvert stigasvæði í tímaþraut sem hann byrjar. Augljóst er af myndefni frá Skjáskot á tktv.is að bæði umrædd ökutæki ljúka akstri í 4. þraut milli þrautahliða 7 og 8, og er þrautahlið 8 síðasta hlið í þrautinni. Því er augljóst að ökutækin voru kominn inn á stigasvæði fjögur.

Samkvæmt skjali 4 er heimilt að nota myndefni í útsendingu Skjáskot á tktv.is við dómgæslu, til samræmis við grein 3.1.8 í Keppnisgreinarreglum fyrir torfæru.

Úrskurður

Stigavörður skal skrá ökumann nr. 86 með 100 stig í þraut 4.
Stigavörður skal skrá ökumann nr. 275 með 100 stig í þraut 4.

Áfrýjun

Keppendum er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.

Fyrir hönd dómnefndar

Aðalsteinn Símonarson

formaður

Frá

Keppnistjóra

Til

Allra

Skjal

26

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

17:19

Birting bráðabirgðaúrslita tefst vegna reksturs keppninnar og er áætluð kl 17:30

Keppnisstjóri

Jóhann Daði Pálmason

Frá

Þrautadómurum

Til

Keppenda #115, #27 og #123

Skjal

25

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

17:17

Niðurstaða beiðni um endurskoðun staðreyndadóma

Þrautadómarar hafa móttekið beiðnir keppenda #115, #27 og #123 um endurskoðun staðreyndadóma samanber reglu númer 3.1.9 í keppnisgreinarreglum fyrir torfæru.

Erindin voru tekin fyrir hvert fyrir sig og forsendur áður felldra dóma skoðaðar. Myndefni var skoðað þegar það var talið geta varpað skýrara ljósi á dómana. Í þeim tilfellum sem ástæða þótti til var vettvangur atvika skoðaður.

Það er niðurstaða þrautadómara að eftir þessa skoðun séu ekki forsendur fyrir breytingu á áður felldum staðreyndadómum. Fleira verður því ekki aðhafst í þessum málum.

Fyrir hönd þrautadómara,

Ólafur Freyr Ólafsson

Frá

Keppnistjóra

Til

Allra

Skjal

24

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

16:59

Birting bráðabirgðaúrslita tefst vegna reksturs keppninnar og er áætluð kl 17:20

Keppnisstjóri

Jóhann Daði Pálmason

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

23

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

16:37

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Keppnistjóra

Til

Allra

Skjal

22

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

15:54

Birting bráðabirgðaúrslita tefst vegna reksturs keppninnar og er áætluð kl 17:00

Keppnisstjóri

Jóhann Daði Pálmason

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

21

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

15:39

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

20

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

14:32

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

19

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

13:32

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

18

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

12:23

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Stigaverði

Til

Allra

Skjal

17

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

12:01

Bráðabirgðaúrslit þrautar

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

16

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

11:38

Boðun til skýrslutöku

Dómnefnd kallar keppnisstjóra til skýrslutöku vegna vöntunar á bráðabirgðaúrslitum fyrir 1. þraut á upplýsingatöflu.

Skýrslutakan fer fram í aðstöðu dómnefndar, í dag,  kl. 12:20.

Fyrir hönd dómnefndar

Aðalsteinn Símonarson

formaður

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Keppenda og framkvæmdanefndar

Skjal

15

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

11:35

6. þraut - teikning

Málsatvik

Við þrautaskoðun staðreyndadómara fyrr í dag kom í ljós að 100 stiga hlið vantar á þrautateikningu 6. þrautar.

Málsmeðferð

Framkvæmdanefnd hefur útbúið nýja þrautarteikningu og lagt fyrir dómnefnd.

Dómnefnd yfirfór þá teikningu sem gefin var út í skjali 3 á upplýsingatöflunni, og staðfesti að merking 100 stiga svæðis samkvæmt grein 4.2.1 í Keppnisgreinareglum fyrir torfæru vantaði.

Jafnframt yfirfór dómnefnd nýju þrautateikninguna.

Niðurstaða

Upphaflegur þrautateikning fyrir 6. þraut í skjali 3 er ófullnægjandi og gildir ekki.

Rétt teikning 6. þrautar er eftirfarandi:

 

Rökstuðningur

Grein 4.2 í Keppnisgreinareglum fyrir torfæru segir til um stigasvæði þrauta, og í grein 3.4.2.d í sömu reglum segir að á þrautateikningum skuli aksturs- og stigasvæði vera skýrt merkt innan þrautar. Svo var ekki á teikningu fyrir 6. þraut í skjali 3 og því er nauðsynlegt að gefa út nýja teikningu svo dómgæsla verði rétt, þrátt fyrir ákvæði greinar 4.1.1 um að þrautateikningar skuli liggja fyrir áður en dregið er í rásröð, þar sem ekki er um breytingu á aksturslínu eða hliðum í þraut að ræða, eingöngu skilgreining á stigasvæðum.

 

Dómnefnd

Aðalsteinn Símonarson        Benedikt Ó Ásgeirsson        Sigfús Þór Sigurðsson
formaður                        dómnefndarmaður                dómnefndarmaður
 

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

14

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

9:52

Fundur dómnefndar - rásheimild

Mættir eru, auk dómnefndar, Ari Halldór Hjaltason öryggisfulltrúi og Jóhann Daði Pálmason keppnisstjóri.

Samkvæmt rafrænum skoðunarskýrslum hafa öll ökutæki sem mættu til skoðunar fengið rásheimild, 23 ökutæki og 25 ökumenn.

Öryggisfulltrúi hefur farið yfir það sem undir hann heyrir og allt er reiðubúið til að hefja akstur.

Keppnisstjóri hefur lokið keppendafundi  og segir hann svæðið og starfsfólk keppninnar tilbúið að hefja keppni.

Dómnefnd hefur sannreynt hæfi tilnefndra staðreyndadómara og samþykkir þá í samræmi við grein 11.16.5 í Regubókinni og grein 3.1.6.b í Keppnisgreinarreglum fyrir torfæru 2026.

Öll leyfi fyrir keppninni hafa verið sannreynd og að framangreindum upplýsingum fengnum heimilar dómnefnd að ökutæki verði ræst í fyrstu þraut samkvæmt dagskrá kl. 10.00.

Dómnefnd

Aðalsteinn Símonarson        Benedikt Ó Ásgeirsson        Sigfús Þór Sigurðsson
formaður                        dómnefndarmaður                dómnefndarmaður

Frá

Keppnisstjóra

Til

Keppenda og ökumanna

Skjal

13

Dagsetning

30. maí 2026

Klukkan

8:10

Tengiliður keppenda

Hanna Björk Grétarsdóttir er tengiliður keppenda og verður staðsett í eða við stjórnstöð á meðan keppninni stendur.

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heida Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

12

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

00:38

Staðreyndardómar Vélsmiðju Suðurlands Torfæruna 2026

Þrautadómarar:  Örvar Michelsen, Halldór Gunnar Eyþórsson, Jóhann Egilsson, Ólafur Freyr Ólafsson.

Aðstoðardómari: Jósep Marinó Jónsson

Ráslínudómari: Reynir Örn Helgason

Pittstjóri:      Ólafur Hallgrímsson    

Tímaverðir:

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heida Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

11

Dagsetning

30.5.2026

Klukkan

00:35

Bréf til keppenda https://docs.google.com/document/d/1iTvcw3H3AN7DWJFyfRjuXlF9Vx64LZt0/edit?usp=sharing&ouid=113838347940868312021&rtpof=true&sd=true

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heida Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

10

Dagsetning

29. maí 2026

Klukkan

22:00

Rásröð

Vegna máls sem greint var frá í skjali nr. 7 á upplýsingatöflunni.

Málsatvik

Framkvæmdanefnd upplýsti dómnefnd kl. 10.59 í dag að rásröð sem dregið hefði verið í, og birt í lokuðum hóp á Facebook, hafi verið haldin slíkum ágöllum að draga hefði þurft að nýju í rásröð. Ferli væri komið af stað til að birta þá nýju á upplýsingatöflu keppninnar.

Málsmeðferð

Að framangreindum upplýsingum fengnum var boðað til fundar í dómnefnd til að yfirfara ferlið við ákvörðun rásraðar.

Fyrir fundinn var safnað saman þeim staðreyndum sem fyrir lágu um ferlið, þ.e. fengin upphaflega dregin rásröð og rásröð í allar þrautir miðað við þann drátt.

Enn fremur var rætt við þá aðila sem stóðu að drætti í rásröð og fengin skýring á þeim ágalla sem talinn var vera á þeirri rásröð sem fyrst var dregin.

Niðurstaða

Upphaflegur dráttur í rásröð skal standa og því gildir ekki sú rásröð sem birt var í skjali 6 á upplýsingatöflunni.

Rétt rásröð í þrautir er eftirfarandi:

 

Rökstuðningur

Grein 2.1.1 í Keppnisgreinareglum fyrir torfæru veitir heimild til að tveir ökumenn aki sama ökutæki. Þetta er tilfellið með tvö ökutæki í þessari keppni, annars vegar ökumenn nr. 19 og 191 og hins vegar nr. 220 og 313.

Í grein 10.3.2.a í sérreglum keppninnar segir að sérútbúnum bílum og sérútbúnum götubílum verði blandað í rásröð.
Samkvæmt grein
4.1.1 í Keppnisgreinareglum fyrir torfæru skal keppnishaldari draga í rásröð og birta hana á upplýsingatöflu eftir að þrautateikningar hafa verið birtar.
Grein
4.1.1.a tilgreinir hvernig tryggja eigi hæfilegt bil í rásröð milli þeirra ökumanna sem deila ökutæki. Þá er í grein 4.1.2 sagt fyrir um með hvaða hætti skal færa ökumenn til í rásröð milli þrauta.

Óumdeilt er að dregið var tvisvar sinnum í rásröð og skjal nr 6 innheldur seinni rásröðina sem dregið var í.

Við skoðun á gögnum kom í ljós að útreikningur á bili milli ökumanna á sama ökutæki, samkvæmt grein 4.1.1.a, í þeirri rásröð sem fyrst var dregið í, var rangur. Einnig var útreikningur á hvaða ökumenn færðust afturfyrir ekki réttur. Þó er ljóst af sömu gögnum, í hvaða röð ökumenn voru dregnir, og var því hægt að reikna rétta rásröð í öllum þrautum samkvæmt henni.

Það er álit dómnefndar að keppnishaldari hafi ekki haft heimild til að draga að nýju í rásröð, þar sem fyrir lágu gögn úr fyrri drætti sem hægt var að styðjast við.

 

Dómnefnd

Aðalsteinn Símonarson        Benedikt Ó Ásgeirsson        Sigfús Þór Sigurðsson
formaður                        dómnefndarmaður                dómnefndarmaður
 

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

9

Dagsetning

29. maí 2026

Klukkan

19:35

Mál til skoðunar hjá dómnefnd

Skoðun á birtri rásröð tefst umfram það sem sagt var í skjali nr. 7, næst því ekki kl. 20.00.

Niðurstaðan verður birt á upplýsingatöflunni kl. 22.00 í kvöld, 29. maí.

 

Fyrir hönd dómnefndar,

Aðalsteinn Símonarson             

formaður 

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

8

Dagsetning

29.5.2026

Klukkan

18:52

Æfingarakstur svæðið er lokað föstudaginn 29 maí.

Æfingarsvæðið verður opnað kl 7:00 laugardaginn 30 maí 2026 og verður opið allan keppnisdaginn.

Framkvæmdanefnd minnir keppendur að vera með slökkvitæki í nálægð þegar æfingarakstur er.

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heida Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

7

Dagsetning

29. maí 2026

Klukkan

12:10

Mál til skoðunar hjá dómnefnd

Dómnefnd hefur til skoðunar mál varðandi rásröð sem framkvæmdanefnd birti á upplýsingatöflunni sem skjal nr. 6.

Niðurstaða þessarar skoðunar verður birt á upplýsingatöflunni kl. 20.00 í kvöld, 29. maí.

 

Fyrir hönd dómnefndar,

Aðalsteinn Símonarson             

formaður 

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

6

Dagsetning

29.5.2026

Klukkan

11:05

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Dómnefnd Vélsmiðju Suðurlands Torfærunnar 2026

Til

Allra

Skjal

5

Dagsetning

28. maí 2026

Klukkan

17:10

Dagskrárbreyting

Að beiðni framkvæmdanefndar gerir dómnefnd breytingu á dagskrá, en hún varðar tímasetningu á upphafi skoðunar föstudaginn 29. maí:

Breytt dagskrá lítur þannig út:

Föstudagur 29.5 '26

18:00 Pittur opnar.

18:00 - 21:00 Skoðun ökutækja við pitt.

Þau ökutæki sem eru mætt og ekki næst að skoða skulu mæta til skoðunar á laugardagsmorgun.

Laugardagur 30.5 '26

07:30 Skoðun ökutækja heldur áfram við pitt .

08:00 Pittur lokar.

08:15 Keppendafundur og þrautaskoðun.

9:00 Skoðun lýkur

9:55 Ökutæki mæta til ræsingar.

10:00 Akstur í 1. þraut hefst.

Hlé 30 mín (eftir braut nr. 2)

16:00 Áætluð lok aksturs í síðustu þraut.

16:10 Verðlaunaafhending við stjórnstöð.

16:30 Bráðabirgðarúrslit birt. (kærufrestur byrjar).

17:00 Kærufresti lýkur.

Dómnefnd

Aðalsteinn Símonarson        Benedikt Ó Ásgeirsson        Sigfús Þór Sigurðsson
formaður                        dómnefndarmaður                dómnefndarmaður

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

4

Dagsetning

28.5.2026

Klukkan

12:36

Mynefni við dómgæslu

Heimilt verður að nota myndefni í útsendingu Skjáskot á tktv.is við dómgæslu, samkvæmt grein 3.1.8 í Keppnisgreinarreglum fyrir torfæru.

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

3

Dagsetning

28.5.2026

Klukkan

11:36

Brautarlagning hefur farið fram.

Hér má sjá þrautar teikningar fyrir keppnina á laugardaginn.

Linkur á brautarteikningar

 

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

2

Dagsetning

26.5.2026

Klukkan

08:36

Skráningu er lokið í Vélsmiðju Suðurlands Torfæruna

Hér má sjá þá keppendur sem eru skráðir til leiks.

 

Andri Jamil Ásgeirsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Raptor

Andri Már Sveinsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Cowboy

Bjarnþór Elíasson

START

Sérútbúnir - Unlimited

Olsen Olsen

Björn Vignir Ingason

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Bomban

Daniel ingi Danielsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Green Thunder

Eðvald Orri Guðmundsson

BA

Sérútbúnir - Unlimited

Pjakkurinn

Finnur Aðalbjörnsson

BA

Sérútbúnir - Unlimited

Refurinn

Gauti Moller

BA

Sérútbúnir - Unlimited

Skuggi

Geir Evert Grìmsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Sleggjan

Guðlaugur Sindri Helgason

START

Sérútbúnir - Unlimited

Olsen

Guðmundur Elíasson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Ótemjan

Gunnar Guðjónsson

KK

Sérútbúnir - Unlimited

Viðhaldið

Ingi Már Björnsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Bomban

Ingvar Jóhannesson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Víkingurinn

Jóhann Gunnlaugsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Bleiki Pardusinn

Jón Vilberg Gunnarsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Lightfoot

Jón örn ingileifsson

BA

Sérútbúnir - Unlimited

Thor

Jón Þór Jónsson

BA

Sérútbúnir - Unlimited

Svínið

Páll Jónsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Rollan

Sigurður Gýmir Bjartmarssson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Draumurinn

Sævar Benónýsson

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Móri

Thelma Lind Árnadóttir

TK

Sérútbúnir - Unlimited

Túttan

Brynjar Jökull Eliasson

START

Sérútbúnir götubílar - Modified

Klakinn

Finnur Bárðarson

TK

Sérútbúnir götubílar - Modified

Kletturinn

Helgi Heiðar Jóhannesson

BA

Sérútbúnir götubílar - Modified

Ruddi

Rognvaldur Stefán Helgason

START

Sérútbúnir götubílar - Modified

Galdragulur

Sigfús Gunnar Benediktsson

TK

Sérútbúnir götubílar - Modified

Klakinn

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir

Frá

Framkvæmdarnefnd

Til

Allra

Skjal

1

Dagsetning

13.5.2026

Klukkan

14:36

Opnað hefur verið fyrir skráningu í Vélsmiðju Suðurlands Torfæruna 2026 í mótakerfi Akis.

Framkvæmdanefnd

Sigurður Ingi Sigurðsson, Heiða Björg Jónasdóttir, Þórir Már Ingvason, Helga Katrín Stefánsdóttir