Kennsluáætlun í stærðfræði 6. bekkur haust 2023
Fagheiti: Stærðfræði | Kennari: Ásdís, Elísabet og Ragnheiður | |||||
Tímabil | Hæfniviðmið Við lok 6. bekkjar getur nemandi | Námsþættir | Námsefni/ kennslugögn | Leiðir | Matsviðmið/ Námsmat | |
Ágúst og september | Tölur og reikningur -rifjað upp reikniaðferðir og bætt við aukinni kunnáttu og leikni. -notað víxlreglu, dreifireglu og tengireglu, bæði í huga og á blaði -nýtt sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna -lagt saman og dregið frá með tugabrotum -notað margföldunartöfluna og kunni hana - deilt með mismunandi aðferðum eftir því sem hentar hverju sinni | -tuga-/sætiskerfið -námundun og slumpreikningur -samlagning og frádráttur -margföldun og deiling -jákvæðar-og negatífar tölur -talnarunur -frumtölur -hugareikningur | -Stika 2a, nemendabók bls. 4 - 41 kennslumyndbönd frá Gauta Eiríks - Rasmus.is - mms.is - skólavefurinn.is - efni frá kennurum | -innlagnir -sjálfstæð vinna nemenda í kennslubókum og ýmsum verkefnum -nemendur vinna í mis stórum hópum | - kaflapróf í lok hvers kafla | |
Október og nóvember | Líkindi dregið ályktanir um líkur útfrá eigin tilraunum og borið saman við fræðilegar líkur -reiknað út líkur í einföldum tilvikum Tugabrot -geti skipt tölum þ.e. i tíundu hluta, hundraðshluta og þúsundustu hluta -hafi skilning á sætiskerfi með tugabrotum -geti staðsett stærðir á talnalínu -geti nýtt sér útreikninga með tugabrotum við hversdagslegar aðstæður -geti nýtt sér slumpreikning og námundun sér til gagns | -líkur í daglegu lífi -spil og tilraunir -líkur sem brot milli 0 og 1 -miklar eða litlar líkur -tilviljanir, óvissa og möguleikar.
-talnamynstur og tugabrot -samlagning, frádráttur og margföldun með tugabrotum -slumpreikningur og námundun -margföldun með 10,100 og 1000 | - Stika 2a, nemendabók bls.42-93 kennslumyndbönd frá Gauta Eiríks - Rasmus.is - mms.is - skólavefurinn.is - efni frá kennurum | -innlagnir -sjálfstæð vinna nemenda í kennslubókum og ýmsum verkefnum | -kaflapróf í lok hvers kafla | |
Desember og janúar | Rúmfræði -geti gert skil á hinum ýmsu rúmfræðiformum og einkennum þeirra -þekki tengsl tvívíðra og þrívíðra forma - áætlað og mælt horn með viðeigandi mælikvarða og dregið ályktanir af mælingunum -notað hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að útskýra hversdagsleg fyrirbrigði -rannsakað og greint tvívíð og þrívíð form, teiknað einfaldar flatar-og þrívíddar myndir, speglað, snúið og hliðrað flatarmyndum | - búa til þrívíða hluti -teikna form og aðrar myndir í þrívídd -rétt horn, gleitt horn og hvasst horn -eiginleikar marghyrninga -samsíða línur -horn og hliðarlengdir -einslaga myndir og form -mælikvarðar | - Stika 2a, nemendabók bls. 94 - 128 kennslumyndbönd frá Gauta Eiríks - Rasmus.is - mms.is - skólavefurinn.is - efni frá kennurum | - innlagnir - sjálfstæð vinna nemenda í kennslubókum og ýmsum verkefnum | -kaflapróf í lok hvers kafla |