Námsvísar
3.-4. bekkur
2024-2025

Inngangur
Leiðtogaþjálfun og skólaþing
Þema
3. - 4. bekkur
Íslenska
Erlend tungumál
List- og verkgreinar
Smíðar
Textílmennt:
Myndmennt :
Heimilisfræði
Náttúru- og samfélagsgreinar (þema)
Skólaíþróttir
Stærðfræði
Upplýsinga og tæknimennt
Lífsleikni og bekkjarfundir
Inngangur
Í námsvísum má finna ítarlegar upplýsingar um áherslur í kennslu á hverju aldursstigi fyrir sig. Námsvísar eru hluti af starfsáætlun Valsárskóla og eru í sífelldri þróun þar sem starfsmenn skóla eiga reglulega samtöl um stefnu, markmið, mat og framfarir nemenda. Þannig má búast við því að námsvísar taki breytingum og séu lifandi plagg.
Leiðtogaþjálfun og skólaþing
Í Valsárskóla eru reglulega haldin skólaþing og leiðtogaþjálfun með öllum nemendum skólans frá 1.-10. bekk. Með þeirri nálgun er unnið að hæfniviðmiðum fyrir lykilhæfni úr Aðalnámskrá grunnskóla.
Hæfniviðmið
| Leiðir | Námsmat |
| - Nemendur taka reglulega þátt í bekkjarfundum og skólaþingum og læra þannig að taka þátt í umræðum og lýðræðislegum vinnubrögðum, tjá hugsanir, færa rök fyrir máli sínu og hlusta á aðra.
| Virkni og þátttaka |
- Skapandi og gagnrýnin hugsun
| - Nemendur ræða á viðeigandi og skýran hátt um málefni, hlusta á rök og mismunandi skoðanir. Lögð er áhersla á að færa rök fyrir máli sínu og undirbúa málsmeðferð.
| Virkni og þátttaka |
| - Nemendur stýra verkefnum í samvinnu við aðra í leiðtogaþjálfun og þjálfast þannig bæði sjálfstæði, frumkvæði, samvinnu, ábyrgð og virkni.
| Virkni og þátttaka
|
- Nýting miðla og upplýsinga
| - Nemendur nota ýmsar leiðir til að kynna eigin verkefni í leiðtogaþjálfun og miðla efni og viðfangsefnum til samnemenda og starfsfólks.
| Virkni og þátttaka |
- Ábyrgð og mat á eigin námi
| - Nemendur taka þátt í umræðum á bekkjarfundum um markmið náms, vinnubrögð og leiðsagnarmat. Auk þess er leiðsagnarmat virkt í öllu námi nemenda og á samtalsdögum með foreldrum og nemendum.
| Virkni og þátttaka |
Þema
Í skólanum er lögð áhersla á samþættingu námsgreina og að nemendur vinni heildstæð verkefni. Unnið er með samþættingu í íslensku, samfélags- og náttúrufræðigreinum ásamt upplýsinga- og tæknimennt. Í skólanum er samkennsla tveggja árganga og því var sett upp skipulag fyrir þemu og áherslur í hverri bekkjardeild. Er það gert svo nemendur upplifi ekki endurtekningu heldur séu alltaf að bæta við sig. Hæfniviðmið aðalnámskrár í náttúru- og samfélagsgreinum voru höfð til hliðsjónar við val á viðfangsefnum.
- ár (2024-2025)
| 2. ár (2025-2026) |
Lífríkið 1.-2. b Smádýr í náttúrunni, pöddur og smádýr í fjöru og á landi 3.-4. b Húsdýr og villt dýr 5.-6. b Lífríki í sjó; hryggleysingjar, fiskar og hvalir 7.-8. b Líf í fersku vatni, fæðukeðjur, vistfræði, tilraunir, skýrslur, ljóstillífun | Umhverfis- og náttúruvernd 1.-2. b Sjálfbærni, endurvinnsla, endurnýting og umhverfisstefna sveitarfélagsins 3.-4. b Flokkun á úrgangi 5.-6. b Neysla og áhrif hennar á umhverfið 7.-8. b “Vistvænir” þjóðflokkar (sjálfbær þróun), náttúruauðlindir og nýting, loftslagsbreytingar og mengun í heiminum og hvað má betur fara í náttúruvernd í okkar sveit? |
Mannslíkaminn 1.-2. b Lífsskilyrði manna, virðing fyrir ytra útliti, heiti líkamshluta, einkastaðir, hvernig barn verður til 3.-4. b Heilbrigt líferni, hvernig verður barn til? 5.-6. b Líffærakerfin, kynþroskinn og skilningarvitin 7.-8. b Heilbrigði - frumur, fóstur, líkami (næring) og sál (samskipti), kynheilbrigði og forvarnir | Íslandssaga 1.-2. b Landnám og landnámsmenn Íslands 3.-4. b Úr sveit í borg, sveitin og landið, heimilið og störfin 5.-6. b Víkingar og ásatrú 7.-8. b Frá landnámi til siðaskipta - Alþingi, miðaldir á Íslandi, Sturlungaöld, þjóðfélag, samfélag, siðaskipti og stjórnmál
|
Jörðin okkar (landafræði/landmótun) 1.-2. b Heimsálfurnar 3.-4. b Ísland - landakort, loftslag og gróðurfar 5.-6. b Norðurlönd - landakort, loftslag og gróðurfar 7.-8. b Evrópa - samfélög, saga, staðir, veður - loftslagsbreytingar | Fjölbreytileikinn (jafnrétti og lýðræði) 1.-2. b Fjölskyldugerðir og kynhlutverk 3.-4. b Barnasáttmálinn og trúarbrögð 5.-6. b Lýðræði og réttur barna skv. Barnasáttmála 7.-8. b Jafnrétti, kynja hlutverk, frelsi, samhjálp, hafa áhrif í eigin samfélagi
|
Saga mannkyns (útlönd, styrjaldir) 1.-2. b Fyrstu samfélögin - frumbyggjar 3.-4. b Risaeðlur og fyrstu mennirnir 5.-6. b Rómaveldi og grísk goðafræði 7.-8. b Miðaldir | Jarðfræði (stjörnufræði/jarðfræði/veðurfræði/náttúruhamfarir) 1.-2. b Pláneturnar í sólkerfinu, landmótun í nánasta umhverfi 3.-4. b Eldgos og eldfjöll 5.-6. b Sólkerfið, tíminn og árstíðirnar 7.-8. b Innri gerð jarðar, flekar, eldsumbrot/jarðhræringar, áhrif mannsins á jörðina
|
Heimabyggðin 1.-2. b Nánasta umhverfi, heimili og örnefni 3.-4. b Eyrin - sveitin - uppbygging og þróun byggðar 5.-6. b Samfélagið og innviðir í heimabyggð 7.-8. b Stjórnsýsla, aðalskipulag, minjastofnun og félög/félagasamtök í heimabyggð | Tækni og vísindi 1.-2. b Áhrif tækninnar í nánasta umhverfi 3.-4. b Tæknin, bílar 5.-6. b Tækni og tækniframfarir 7.-8. b Rafmagn, seglar, rafrásir, hljóð, ljós, geislun, varmi Tækninýjungar - netið og GPS, vistvæn hönnun, matur/erfðabreyting/ræktun, náttúran og tækni |
3. - 4. bekkur
Íslenska
Íslenska er samþætt með náttúru- og samfélagsfræði og upplýsinga- og tæknimennt. Það er unnið eftir kennsluaðferðum byrjendalæsis og læsi fyrir lífið. Áhersla er á lestur og skilning, ritun, talað mál og hlustun og vinnu með hljóðvitund, réttritun, skrift, orðaforða og lesskilning. Unnið er með gæðatexta og viðfangsefni sem ýmist tengjast þemum eða öðru gæðaefni í bókmenntum. Kennsluaðferðir eru fjölbreyttar, má þar nefna stigskiptur stuðningur, gagnvirkur lestur, KVL, hugtakakort, lykilorðavinna, orð dagsins, krossglímur, orðhlutavinna, ritunarrammar, orðaspjall, samvinnunám, para- og/eða hópverkefni, námsleikir og spil, þrautir, útikennsla, verklegar æfingar og þjálfunarforrit.
Námsaðlögun:
Gert er ráð fyrir að nemendur tileinki sér nám á misjöfnum hraða og hafi ólík áhugasvið og styrkleika. Þeir fá texta og verkefni sem hentar þeirra getu og aðlagað námsefni þegar við á. Kennari og stuðningsfulltrúi styðja þá sérstaklega í náminu sem það þurfa. Þeir nemendur sem fá greiningu um dyslexíu, athyglisvanda og almennan námsvanda fá aðgang að hljóðbókasafninu þegar greining liggur fyrir og er kennt að nýta sér þær, aðrir nemendur eru hvattir til að nýta sér þær hljóðbækur sem þeir komast í. Þeir sem þurfa er m.a. kennt að nýta sér talgervla, öpp og raddinnslátt.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Talað mál, hlustun og áhorf - Beitt skýrum og áheyrilegum framburði,
- Tjáð sig með aðstoð leikrænnar tjáningar frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu,
- Sagt frá eftirminnilegum atburði og lýst ákveðnu fyrirbæri, endursagt efni sem hlustað hefur verið á eða lesið,
- Hlustað og horft með athygli á upplestur, leikið efni, ljóð og söngva og greint frá upplifun sinni,
- Nýtt sér og endursagt efni á rafrænu formi,
- Átt góð samskipti, hlustað og sýnt kurteisi
| - Samræður, frásagnir, upplestur og leikrit
- Æfingar og uppsetning á leikriti og framkoma á árshátíð
- Umræður og skoðanaskipti á bekkjarfundum
- Frásagnir frá atburðum úr eigin lífi
- Munnleg endursögn á lesnu/ hlustuðu efni eða rafrænu efni
- Hlusta og horfa á sýningar og viðburði sem eru innan skólans og ræða um upplifun
- Samræður og setja sér reglur um samskipti, hlustun og kurteisi á bekkjarfundum (bekkjarsáttmáli)
| - Sjálfsmat
- Félagamat
- Leiðsagnarmat frá kennara
|
Lestur og bókmenntir - Beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa þannig að lestur verði lipur og skýr,
- Nýtt góðan orðaforða við að skilja texta og ráðið í merkingu orðs út frá samhengi,
- Tengt þekkingu sína og reynslu við lesefni í því skyni að ná merkingu þess,
- Valið sér lesefni eftir áhuga og þörf og lesið sögur, ljóð og fræðandi efni, sem hæfir lestrargetu, sér til ánægju og skilnings,
- Lesið ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum,
- Beitt hugtökum eins og persónu, söguþræði, umhverfi og boðskap,
- Beitt fáeinum algengum hugtökum í bragfræði svo sem rími, kvæði, vísu og ljóðlínu,
- Aflað sér upplýsinga úr ýmsum tiltækum gagnabrunnum, svo sem bókum og á rafrænu formi,
- Lesið úr táknmyndum og myndrænu efni, svo sem einföldum skýringarmyndum, kortum og myndritum,
- Valið bók eða annað lesefni og lesið sér til ánægju.
| - Lesa og vinna alltaf með gæðatexta í byrjendalæsis áætlunum og fjölbreyttan texta með þeim.
- Unnið með orðaforða í gegnum t.d. orðaspjall og lykilorðavinnu, krossglímu, actionary, pictionary, flöskustútur og ýmsa aðra orðavinnu eins og að nota spæjara í GL og gera orðaskjóður og vinna með þær.
- Læra að nýta sér nokkrar lesskilningsaðferðir eins og gagnvirkan lestur, klettinn og fjöðrina, Frayer líkan, fjórir athyglisverðir fróðleiksmolar,
- Umræður um efni og læra að gera KVL til að tengja eigin þekkingu við efnið
- Vinna með samheiti og andheiti t.d. með því að gera krossgátur, spila/búa til jöfnuspil og veiðimann
- Yndislestur alla daga
- Lesa allskonar skemmtileg ljóð, ævintýri og sögur tengd þemum
- Vinna með persónur, söguþráð, umhverfi og boðskap t.d. í gegnum söguveg, brúðugerð, puppet pals og teikningar
- Rýna í ljóð, kvæði og vísur, finna rím og ræða um ljóðlínu
- vinna verkefni þar sem afla þarf upplýsinga í bókum og á neti
- Skoða tölulegar og myndrænar upplýsingar og túlka þær
- Lesa kort, myndir, leiðbeiningar
| - Lesfimi metin
- Leshraðapróf
- Lesskilningsverkefni og kannanir
- Sjálfsmat
|
Ritun - Dregið rétt til stafs og skrifað skýrt og læsilega,
- Nýtt í ritun þekkingu á grunnþáttum í byggingu texta, svo sem upphafi, meginmáli og niðurlagi,
- Samið texta frá eigin brjósti, svo sem sögu, frásögn, ljóð eða skilaboð,
- Beitt einföldum stafsetningarreglum og notað tiltæk hjálpargögn við hæfi,
- Nýtt sér fyrirmyndir í ritun, svo sem af lestri bóka, blaða eða rafræns efnis,
- Skrifað texta á tölvu og beitt einföldustu aðgerðum í ritvinnslu
- Skrifað og leyft öðrum að njóta þess með upplestri höfundar eða lestri lesanda.
| - Þjálfa skrift
- Nota söguveg til að byggja upp sögu með upphafi miðju og endi.
- Semja sögur og ljóð og skrifa frásagnir og skilaboð
- Vinna með einfalda og tvöfalda samhljóða, samhljóðasambönd og hljóðlíka stafir samsett orð og orðhluta
- Kynnast nokkrum stafsetningarreglum eins og t.d. um punkt, stóran og lítinn staf, notkun kommu og gæsalappa, spurningarmerki og upphrópunarmerki
- Æfa sig í réttritun t.d. með sóknarskrift, 1,2 og 9, orðasúpur, póstkassa orð (hlustun/ritun)
- Þjálfast í að vanda stafsetningu í öllum verkefnum, nýta sér þær stafsetningarreglur sem nemendur kunna og hjálpartæki
- Rannsaka ýmsa ólíka texta og spá í uppsetningu þeirra t.d. bréf. leiðbeiningar, sögur, myndasögur, lista,
- Nýta sér ýmsa söguramma og söguteninga við ritun
- Geta samið eigin texta með myndum og texta
- Læra einföld atriði í ritvinnslu (flesta hnappana á aðgerðarstiku)
- Þjálfa fingrasetningu
- ritunarverkefni lesin upp og gerð sýnileg öðrum
| |
Málfræði - Beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og ræður yfir orðaforða og málskilningi sem hæfir þroska,
- Þekkt og fundið helstu einingar málsins, svo sem bókstafi, hljóð, orð, samsett orð og málsgrein,
- Raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag,
- Gert sér grein fyrir mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða,
- Leikið sér með ýmis einkenni tungumálsins, svo sem margræðni orða og fundið kyn og tölu,
- Búið til málsgreinar og ráðið við að greina málsgreinar í eigin texta,
- Greint mun á samnöfnum og sérnöfnum og m.a. bent á þau í eigin texta,
- Leikið sér með orð og merkingu, svo sem með því að ríma, og fara í orðaleiki,
- Gerir sér grein fyrir markmiði þess að læra íslenska málfræði.
| - Efla orðaforðann, pæla í nýjum orðum, reyna að skilja og setja í samhengi, nota nýjan orðaforða í tali og ritun, búa til nýyrði
- Umræður og vinna með samsett orð t.d. með orðakeðjum og æfingum í að setja saman orð og taka í sundur
- Vinna með málsgreinar t.d. með því að skrifa málsgreinar, stuttar og langar og finna og rannsaka málsgreinar í texta.
- Vinna með stafrófið og umræður um gagnsemi og tilgang, raða í stafrófsröð,
- Vinna með og ræða um nafnorð, lýsingarorð og sagnorð og þannig að nemendur átti sig á hvaða hlutverki þau þjóna í tungumálinu
- Umræður og vinna með kyn og tölu orða, spil og leikir
- Vinna með samnöfn og sérnöfn t.d. flokka, búa til spil
- Fara í allskonar orðaleiki, nýyrðasmíð, krossorðaspilið, bananagram, krossgátur, finna orð í orði og orð úr orði o.s.frv.
| |
Erlend tungumál
Enska
Í ensku er lögð áhersla á hlustun, talað mál, lestur, skilning og ritun. Nemendur hlusta og/eða lesa stuttar sögur og notaðar verða kennsluaðferðir í anda Byrjendalæsis og einnig verður unnið með viðfangsefni tengd þemum. Áherslan verður meðal annars á fjölbreytt verkefni, samvinnu, samræður, leiki og spil.
Námsaðlögun:
Gert er ráð fyrir að nemendur tileinki sér nám á misjöfnum hraða og hafi ólík áhugasvið og styrkleika. Þeir fá oft val um verkefni og texta og reynslan hefur sýnt að þau velja þá oftast verkefni með henta þeirra getu. Nemendur sem þurfa meiri stuðning fá aðlagað námsefni og kennari og stuðningsfulltrúi styðja þá sérstaklega í náminu. Þeir sem þurfa er m.a. kennt að nýta sér talgervla, öpp og raddinnslátt og við nýtum okkur það að hlusta enskar sögur t.d. af hljóðbókasafninu eða öðrum veitum.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi geti | Leiðir | Námsmat |
Hlustun - skilið það mál sem notað er í kennslustofunni og brugðist við með orðum eða athöfnum,
- fylgt meginþræði í einföldum frásögnum um kunnuglegt efni með stuðningi, t.d. af myndum, hlutum eða líkamsmáli og notað sér upplýsingarnar í eigin verkefni,
- fylgst með einföldu efni í myndmiðlum og úr heimi dægurmenningar sem er kunnuglegt úr heimi barna og unglinga og greint frá því helsta.
| - hlusta á aðra segja frá sjálfum sér, myndum af sér, atburðum, áhugamálum o.fl.
- farið í leiki
- horft og hlustað á efni af vef t.d. tengt viðfangsefninu hverju sinni. Gæti t.d. verið áhugamálum nemenda, bíómyndir, bækur og rætt um það á eftir
| |
Lesskilningur - skilið megininntak í stuttum, einföldum frásögnum dagblaða, tímarita og netmiðla með stuðningi, t.d. af myndum,
- fundið afmarkaðar upplýsingar í einföldum texta og nýtt sér í verkefnavinnu,
- lesið sér til gagns og gamans stuttar, einfaldar bækur og fræðsluefni fyrir börn og unglinga og rætt efni þeirra með stuðningi kennara eða skólasystkina.
| - lesa fjölbreytta texta
- nýta sér gagnvirkan lestur við lestur/hlustun texta
- vinna fjölbreytt verkefni í anda Byrjendalæsis
- samvinnulestur/hlustun og umræður um lesefnið
| - lesskilningsverkefni
- sjálfsmat
- leiðsagnarmat
|
Ritun - skrifað texta með orðaforða úr efnisflokknum sem fengist er við með stuðningi frá mynd, hlut eða gátlista,
- lýst í einföldu máli því sem næst honum er, fjölskyldu, áhugamálum, vinum og umhverfi,
- skrifað einföld skilaboð, smáskilaboð og tölvupóst,
- samið stuttan texta frá eigin brjósti með stuðningi mynda, hluta, tónlistar o.s.frv.
| - sóknarskrift, orðaskjóður, vinna með orð og setningar
- einföld ritunarverkefni og áhersla á fyrirmyndarverkefni og stigskiptan stuðning
- læra á og nýta hjálpartæki eins og orðabók á netinu og leiðréttingarforrit
- verkefnaskil á rafrænu formi
|
|
Samskipti - spurt og svarað á einfaldan hátt um það sem stendur honum næst,
- skipst á upplýsingum og skoðunum við skólasystkini og kennara um efni tengt náminu,
- tekið þátt í samskiptaleikjum og unnið samtalsæfingar.
| - samtöl fara að mestu fram á ensku í kennslustundum
- samræður og samvinna um viðfangsefni
- leikir og spil
|
|
Frásögn - sagt frá eða lýst sjálfum sér, vinum, fjölskyldu, áhugamálum og nánasta umhverfi á einfaldan hátt,
- endursagt og lýst atburðum eða reynslu á einfaldan hátt með stuðningi hluta, mynda, tónlistar o.s.frv.
- flutt atriði, sagt stutta sögu eða lesið upp eigin texta sem hann hefur haft tækifæri til að lesa.
| - samtöl og frásagnir á ensku í pörum, litlum hópum eða fyrir allan hópinn (höfundastóll)
- útbúa rafræn verkefni það sem þau geta notað talað og/eða ritað mál ásamt myndum til að segja frá/kynna viðfangsefni
| - sjálfsmat
- leiðsagnarmat
- félagamat
|
Menningarlæsi - sýnt fram á að hann þekkir nokkuð til umgjarðar menningarsvæðisins, s.s. landfræðilegrar legu, staðhátta og þekktra staða,
- sýnt fram á að hann þekkir til þátta sem einkenna barna- og ungmennamenningu viðkomandi málsvæðis, s.s.söguhetja barnabóka, leikja, söngva og ævintýra,
- sýnt fram á að hann áttar sig á að mörg algeng orð í ensku eru lík og skyld öðrum sem hann þekkir.
| - skoða hvar enska er töluð í heiminum og staðsetja/finna á landakorti
- lesum bækur og ævintýri, hlustum á og syngjum lög, förum í leiki og kynnumst barnamenningu enskumælandi lands
- skoða orða og líkindi enskra orða og íslenskra
|
|
Námshæfni - beitt einföldum námsaðferðum til að auðvelda námið, t.d. nýtt sér titil á texta eða myndir sem fylgja til að auðvelda skilning á inntaki,
- beitt sjálfsmati sem tengist viðfangsefnum námsins með stuðningi kennara eftir því sem þörf krefur,
- tengt ný viðfangsefni eigin reynslu og þekkingu,
- tekið þátt í hóp- og paravinnu, hlustað á og tekið tillit til þess sem aðrir hafa að segja,
- nýtt sér hjálpartæki, s.s.einfaldar orðabækur, veforðasöfn, leiðréttingarforrit og leitarvélar.
|
|
|
List- og verkgreinar
Smíðar
Í smíðum er leitast við að samtvinna sköpun, þjálfa vinnubrögð ásamt því að læra heiti á helstu verkfærum og efnivið. Unnið er með stigskiptum stuðningi eftir þörfum hvers og eins.
Námsaðlögun Þeir sem á þurfa að halda fá nánari leiðbeiningar, maður á mann, þar sem kennari sýnir, stýrir og leiðbeinir nemanda eftir þörfum.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
- Valið og notað nokkur verkfæri sem hæfa viðfangsefni á öruggan hátt.
- Gert grein fyrir nokkrum smíðaefnum sem unnið er með.
- Dregið einfalda skissu og tvívíða teikningu til að útskýra hugmyndir sínar.
- Unnið verkefni frá hugmynd að fullunnum hlut með áherslu á form og útlit.
- Framkvæmt einfaldar samsetningar.
- Sagt frá orkugjöfum sem nota má í smíðaverkefnum og nýtt virkniþætti í smíðisgripum, s.s. vogarafl, gorma og teygjur.
- Bent á ýmis tæknifyrirbrigði er tengjast hans daglega lífi.
- Greint einfaldar þarfir í umhverfi sínu og rætt nokkrar lausnir.
- Valið efni út frá umhverfissjónarmiðum og sagt frá kostum þess að nota efni úr nærumhverfi.
- Sýnt góða nýtingu þeirra efna sem unnið er með.
- Beitt líkamanum rétt við vinnu sína og sýnt rétta notkun hlífðarbúnaðar
|
- Réttur hlífðarbúnaður notaður eftir því sem við á og rætt um mikilvægi þess.
- Farið yfir heiti helstu verkfæra og nöfn þeirra notuð þegar þörf er á viðkomandi verkfæri.
- Unnið með límingar, neglingar og samsetningar með skrúfum.
- Rætt um smíðaefni sem unnið er með hverju sinni og minnt á að nýta efnið vel.
- Nemendur vinna verkefni þar sem þeir hanna sjálfir hlut sem þeir útskýra með einfaldri teikningu.
| - Verkefni nemenda metin
- Vandvirkni og vinnusemi metin
- Sjálfsmat
- Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor.
|
Textílmennt:
Í textílmennt er lögð áhersla á ákveðin vinnubrögð, það geta þau gert í gegnum ýmis verkefni sem þau velja út frá áhuga. Sem dæmi má nefna að nota garn, gera vinabönd, búa til hnúta, prjóna, búa til dúska, sauma út og nota saumavél.
Námsaðlögun:
Stigskiptur stuðningur er mikilvægur í verklegri kennslu, frá sýnikennslu til sjálfstæðra vinnubragða. Með stigskiptum stuðningi er átt við ferli kennslu sem fer frá kennara stýringu til sjálfstæðis nemenda. Kennari gerir - nemandi horfir, kennari gerir - nemandi hjálpar, nemandi gerir - kennari hjálpar og að lokum nemandi gerir - kennari fylgist með. Aðlögun í textíl felst aðallega í því að kennari hjálpi nemendum mismikið eftir getu og þörfum nemenda þar til þeir ná tökum á verkefninu.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Leiðir | Námsmat |
Handverk, aðferðir og tækni • Notað einfaldar aðferðir greinarinnar og beitt viðeigandi áhöldum, • Unnið úr nokkrum gerðum textílefna • Unnið eftir einföldum leiðbeiningum.
Sköpun, hönnun og útfærsla • Tjáð hugmyndir sínar með einfaldri skissu, • Skreytt textíl vinnu á einfaldan hátt, • Gert grein fyrir mismunandi tegundum handverks og notað nokkur hugtök sem tengjast greininni • Leitað að einföldum upplýsingum í nokkrum miðlum.
Menning og umhverfi • Sagt frá íslensku hráefni og unnið með það á einfaldan hátt, • Sagt frá nokkrum tegundum textílefna • Fjallað um mismunandi klæðnað fólks með tilliti til veðurfars, athafna og tilnefna, • Notað ný og endurunnin efni í textíl vinnu. | - Æfsig í að nota skæri, klippi efni eftir munstri eða teikningu og sniði, þræða nálar með spotta og sauma í efni með þeim og binda hnúta.
- Æfa sig að nota saumavélar, sauma einfalda beina sauma með aðstoð t.d. nálapúða.
- Nota málband til að mæla og sprettuhníf til að rekja upp
- vinna með bómullargarn, ullargarn, léreft, jersey efni, tvinna, útsaumsgarn
- stigskiptur stuðningur við verkefni og farið eftir sjónrænum leiðbeiningum
- teikna einfalda mynd af textílverki
- velja sér tölur til að skreyta verkefni sín með
- samræður um verkefni og hugtök greinarinnar notuð
- vinna með plötulopa og léttlopa ít.d. dúskagerð og samræðum um hvaðan efnið kemur
- rætt um notagildi efna og mikilvægi þess að geyma og endurnýta
| Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og gerir mat sýnilegt í Mentor. |
Myndmennt :
Í myndmennt er lögð áhersla á ákveðna tækni eða stíl hverju sinni, nemendur fá fyrirmynd og gera síðan sína útgáfu af myndinni sem getur verið allt frá því að vera mjög lík fyrirmyndinni yfir eigin sköpun nemandans.
Námsaðlögun: Stigskiptur stuðningur er mikilvægur í verklegri kennslu, frá sýnikennslu til sjálfstæðra vinnubragða. Með stigskiptum stuðningi er átt við ferli kennslu sem fer frá kennara stýringu til sjálfstæðis nemenda. Kennari gerir - nemandi horfir, kennari gerir - nemandi hjálpar, nemandi gerir - kennari hjálpar og að lokum nemandi gerir - kennari fylgist með. Aðlögun í textíl felst aðallega í því að kennari hjálpi nemendum mismikið eftir getu og þörfum nemenda þar til þeir ná tökum á verkefninu.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
- Nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar
- Skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum,
- Tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt,
- Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki,
- Unnið út frá kveikju við eigin listsköpun,
- Þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni,
- Fjallað um eigin verk og annarra,
- Þekkt og gert grein fyrir völdum verkum listamanna. Lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og lýst þeim aðferðum sem beitt var við sköpun verksins
- Greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka
- Greint á einfaldan hátt áhrif myndmáls í nærumhverfi hans,
- Skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar.
| - Vinna með frumformin og frumlitina
- Kynnast fjarvídd, unnið með sjóndeildarhringinn og áttað sig á að sumir hlutir eru nálægt þér en aðrir langt í burtu.
- Gera myndir eins og þau sjá fyrir sér t.d tré á mismunandi árstíma.
- Nota tréliti, tússliti, vaxliti, teikniblýanta, þekjuliti, vatnsliti og fl.
- vinna verk út frá fyrirmynd en með sinni túlkun
- rætt um myndbyggingu
- samræður um listaverk sem skoðuð eru
- Skoða listaverkabækur um listamenn og sjá hvernig myndir þeir gerðu og gera.
- skoða og ræða um mismunandi listform eins og grafík, olíumálverk, vatnsliti o.s.frv.
| Verkefnum safnað í möppu.
Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat. Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Heimilisfræði
Í heimilisfræði er lögð áhersla á ákveðin vinnubrögð, það geta þau s.s. gert í gegnum ýmis verkefni sem þau velja út frá áhuga. Sem dæmi má nefna að nota ólíkt hráefni, ólíkar aðferðir, að sýna bæði fram á sjálfstæð vinnubrögð sem og að geta tekið tillit til þess sem aðrir nemendur hafa fram að færa.
Námsaðlögun:
Stigskiptur stuðningur er mikilvægur í verklegri kennslu, frá sýnikennslu til sjálfstæðra vinnubragða. Með stigskiptum stuðningi er átt við ferli kennslu sem fer frá kennara stýringu til sjálfstæðis nemenda. Kennari gerir - nemandi horfir, kennari gerir - nemandi hjálpar, nemandi gerir - kennari hjálpar og að lokum nemandi gerir - kennari fylgist með. Aðlögun í heimilisfræði felst aðallega í því að kennari hjálpi nemendum mismikið eftir getu og þörfum nemenda þar til þeir ná tökum á verkefninu.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi | Leiðir | Námsmat |
Matur og lífshættir • tjáð sig á einfaldan hátt um heilbrigða lífshætti • valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan • farið eftir einföldum leiðbeiningum um hreinlæti og þrif • tjáð sig um helstu kostnaðarliði við matargerð og heimilishald almennt.
Matur og vinnubrögð • útbúið með aðstoð einfaldar og hollar máltíðir • farið eftir einföldum uppskriftum og notað til þess einföld mæli- og eldhúsáhöld • sagt frá helstu hættum sem fylgja vinnu í eldhúsi • nýtt ýmsa miðla til að afla upplýsinga um einfaldar uppskriftir
Matur og umhverfi • Sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við sjálfbærni • Skilið einfaldar umbúðamerkingar
Matur og menning • tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíður Íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat.
| - Fá þjálfun í að átta sig á að hollur matur er ein af forsendum heilsusamlegt lífernis
- Æfa sig að vinna með hollt og ferskt hráefni
- Taki tilsögn um mikilvægi hreinlætis, bæði við matreiðslu og við frágang eftir hvern heimilisfræðitíma
- Fari i stuttar vettvangsferðir í kjörbúð og átti sig á verði, uppruna, gæðum og hvar frekari upplýsinga sé að finna
- Stigskiptur stuðningur við verkefni og farið eftir sjónrænum leiðbeiningum
- Æfi sig í að matreiða hollan mat sem sem horft er bæði til gæða hráefnis og að eldunaraðferðir séu hafðar í huga til að varðveita næringarefnin
- Átti sig á hversu langan tíma tekur að matreiða ólíka rétti
- Átti sig á mikilvægt þess að átta sig á og taka tillit til ólíks uppruna hráefnis
- Fái tækifæri til að læra um og ræða um notagildi efna og mikilvægi þess að geyma og endurnýta.
- Tileinki sér eðlilega og jákvæða borðsiði
| Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og verkefni jafn og þétt og gerir mat sýnilegt í Mentor. |
Náttúru- og samfélagsgreinar (þema)
Þemu eru kennd í fimm lotum yfir skólaárið og eru samþætt með íslensku og upplýsingatækni. Þemu á þessu ári eru: Lífríkið, mannslíkaminn, jörðin okkar, saga mannkyns og heimabyggðin.
Fjölbreyttar bækur og textar eru lesnir tengdir þemum og margvísleg verkefni unnin, sjá nánar í umfjöllun um íslensku.
Þemu og áherslur 3.-4. bekkjar | Leiðir | Námsmat |
Lífríkið (húsdýr og villt dýr) Náttúrufræði hæfniviðmið - útskýrt einkenni lifandi vera, skýrt skýrt með dæmum lífsskilyrði lífvera og tengsl við umhverfið
- útskýrt fæðukeðjur og rakið fæðu til frumframleiðenda.
- Notað einföld hugtök úr náttúruvísindum í textaskrifum.
- Notað ólíkar heimildir við öflun upplýsinga.
| Lesin bókin Dýrin á Fróni og aukaefni t.d. Húsdýrin okkar, Villtu spendýrin okkar, Vísnabókin, vefirnir Íslensku húsdýrin og Íslensk landspendýr, Hani, krummi, hundur, svín… Í sveitinni með Æsu og Gauta og Blómin á þakinu - áhersla á orðaforða og hugtök náttúrufræðinnar
- ljóðavinna
- lýsingarorð og nafnorð
- stafrófið
- búa til ljóð
- nota fræðslugrunn og gera stuttan fræðitexta
| |
Mannslíkaminn (heilbrigt líferni, hvernig barn verður til) Náttúrufræði hæfniviðmið - Útskýrt á einfaldan hátt byggingu og starfsemi mannslíkamans.
- Útskýrt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu og svefns.
- Bent á skaðleg efni og hvernig ýmsir sjúkdómar og sýklar eru smitandi.
- útskýrt á einfaldan hátt hvernig barn verður til og þekkir einkastaði líkamans
| Latibær og Where Willy went lesnar sem grunnbækur og Kroppurinn er kraftaverk - Komdu og skoðaðu líkamann t.d. sem aukaefni - vinna með orðaforða og hugtök viðfangsefnisins
| |
Jörðin okkar (Ísland - landakort, loftslag og gróðurfar) Samfélagsfræði hæfniviðmið - gert sér grein fyrir nokkrum einkennum þess að náttúrufar breytist vegna ytri áhrifa, sagt frá dæmum, um hvernig loftslag og gróðurfar hafa áhrif á hvernig fólk lifir
- áttað sig á hlutverki landakorta og notagildi þeirra
Náttúrufræði hæfniviðmið - Komið auga á þarfir og vandamál í umhverfi sínu.
- Tekið þátt í og sagt frá einföldum athugunum á jarðvegi, veðrun og rofi.
- Sagt frá hvernig Ísland myndast og tekur breytingum.
- Lýst landnotkun í heimabyggð
- Rætt fjölbreytni í nýtingu vatns á heimilum og í umhverfinu.
| Lesin sögubók og fleiri bækur til stuðnings um kort, veður og gróðurfar. Hugmyndir að bókum: Komdu og skoðaðu landakort, könnum kortin, Gunni og Felix - landkönnuðir - Unnið með landakort
- Vinna með orðaforða korta, veðurs og gróðurfars
- Athuganir úti
| |
Saga mannkyns (risaeðlur og upphaf mannkyns/Litla fólkið með stóru draumana) Samfélagsfræði hæfniviðmið - Bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum.
| Sögubók sem tengist atburði/um í útlöndum, hugmyndir að bókum: Risaeðlur og bókin Risaeðlur í Reykjavík og/eða bókaflokkurinn um litla fólkið með stóru draumana. - fjallað um tímabilið sem verður fyrir valinu
| |
Heimabyggðin (Eyrin, göturnar, húsin o.fl.) Samfélagsfræði hæfniviðmið - Sagt frá völdum þáttum og tímabilum í sögu fjölskyldu og heimabyggðar
- Sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi
- bent á nokkrar mikilvægar stofnanir samfélagsins
- sett sig inn í málefni nærsamfélagsins
Náttúrugreinar - Sýnt virkni og látið sig varða nánasta umhverfi og lífsskilyrði lífvera í því.
- Skoðað og skráð dæmi um áhrif af gjörðum mannsins á náttúru og manngert umhverfi í heimabyggð.
- Lýst landnotkun í heimabyggð
- Notað gervihnatta- og loftmyndir af yfirborði jarðar til að lýsa heimabyggð.
| - Unnið með sögu Svalbarðseyrar, götur og hús o.fl.
- Vinnum með örnefni og orðaforða
- búum til þjóðsögu sem gæti gerst í sveitarfélaginu
| |
Skólaíþróttir
Íþróttir
Íþróttakennsla í grunnskóla er til að efla andlegt, félagslegt og líkamlegt heilbrigði. Lagt er upp úr þátttöku allra og stuðla markvisst að velferð og vellíðan nemenda, enda verja börn og ungmenni stórum hluta dagsins í skóla. Námsgreinin skólaíþróttir gegnir veigamiklu hlutverki í heilsu uppeldi og heilsurækt nemandans allan grunnskólann.
Námsaðlögun: Kennslu- og aðferðafræði skólaíþrótta, þar með talið skólasund, snýst um að koma til móts við þarfir nemenda sem eru að vaxa úr grasi á viðkvæmu en breytilegu vaxtarskeiði. Til að slíkt megi takast skal sérstaklega hugað að líkamlegri virkni hvers og eins í kennslutímum þó að aðrir þættir, eins og fræðileg innlögn, fléttist inn í kennsluna. Verklegir tímar skulu því skipulagðir þannig að hver nemandi sé virkur í verkefnum við hæfi.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Líkamsvitund, leikni og afkastageta Gert æfingar sem reyna á þol. Gert hreyfingar sem reyna á stöðujafnvægi og hreyfijafnvægi. Sýnt einfaldar hreyfingar sem reyna á lipurð og samhæfingu. Sýnt nokkra boltafærni og tekið þátt í nokkrum mismunandi boltaleikjum. Gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum. Tekið þátt í stöðluðum prófum.
Félagslegir þættir Unnið með þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa leikjum. Skilið skipulagshugtök í skólaíþróttum og farið eftir leikreglum. Gera sér grein fyrir eigin líkamsvitund og einkastöðum líkamans.
Heilsa og efling þekkingar Notað einföld hugtök sem tengjast íþróttum og líkamlegri áreynslu. Sótt og unnið úr einföldum upplýsingum varðandi íþróttir. Tekið þátt í útivist og búið sig til útiveru með tilliti til veðurs. Ratað um skólahverfi sitt og þekkt göngu og hjólaleiðir í nærumhverfi. Skýrt mikilvægi hreinlætis við íþróttir. Útskýrt líkamlegan mun á kynjum. Þekkt heiti helstu líkamshluta, magn- og afstöðuhugtaka og hreyfinga. Sett sér einföld þjálfunarmarkmið í íþróttum og heilsurækt og unnið að þeim. Tekið þátt í gömlum íslenskum leikjum og æfingum.
Öryggis- og skipulagsreglur Farið eftir öryggis-, skipulags- og umgengnisreglum íþróttahúss og brugðist við óhöppum.
|
Líkamsvitund, leikni og afkastageta Æfingar og leikir sem efla þol, kraft, hraða, leikni, útsjónarsemi og viðbragð. Boltaleikir, hlaupa- og viðbragðsleikir. Taka þátt í fjölbreyttum boltaleikjum og leikjum í sal og nærumhverfi. Æfingar og leikir sem taka fyrir jóga og slökun. Mælingar og stöðluð próf.
Félagslegir þættir Taka þátt í æfingum og leikjum sem efla sjálfstraust og viljastyrk. Ýmsar keppnir. Tjái skoðun sína á æfingum og leikjum.
Heilsa og efling þekkingar Umræður um markmið æfinga og leikja. Fræðsla og umræður um umhirðu líkamans. Fræðsla um markmið æfinga og leikja. Útivera, ratleikir og fleira.
Öryggis- og skipulagsreglur Þjálfun í að þvo sér, þurrka, klæða sig, ganga frá fötum og handklæði. Þjálfist að fara eftir fyrirmælum kennara í leikjum. Aðstoða við að ganga frá áhöldum á réttan og öruggan hátt. | Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og virkni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Sund
Skólasund er mikilvæg námsgrein til að skapa börnum og ungmennum aðstæður til heilbrigðra lífshátta, efla færni þeirra í samskiptum, auka þrek, byggja upp sjálfsmynd, styrkja ákvarðanatöku, kenna markmiðasetningu og streitustjórnun. Aukin sundfærni styrkir sjálfsmynd og eykur sjálfsöryggi einstaklingsins.
Námsaðlögun: Kennslu- og aðferðafræði skólaíþrótta, þar með talið skólasund, snýst um að koma til móts við þarfir nemenda sem eru að vaxa úr grasi á viðkvæmu en breytilegu vaxtarskeiði. Til að slíkt megi takast skal sérstaklega hugað að líkamlegri virkni hvers og eins í kennslutímum þó að aðrir þættir, eins og fræðileg innlögn, fléttist inn í kennsluna. Verklegir tímar eru því skipulagðir þannig að hver nemandi sé virkur í verkefnum við hæfi.
Hæfniviðmið | Leiðir | Námsmat |
Líkamsvitund, leikni og afkastageta Við lok 3. bekkjar getur nemandi: Tekið þátt í stöðluðum prófum, Kafað, velt sér af kvið á bak og öfugt og tekið þátt í leikjum í vatni. Synt sporðtök, bringusund, skólabaksund, baksund og skriðsund með hjálpartækjum stuttar vegalengdir.
Við lok 4. bekkjar getur nemandi: Tekið þátt í stöðluðum prófum, Kafað, velt sér af kvið á bak og öfugt og tekið þátt í leikjum í vatni. Synt sporðtök, bringusund, skólabaksund, baksund og skriðsund með eða án hjálpartækja stuttar vegalengdir.
Félagslegir þættir Skilið skipulagshugtök í skólaíþróttum og farið eftir leikreglum. Gert sér grein fyrir eigin líkamsvitund og einkastöðum líkamans.
Heilsa og efling þekkingar Skýrt mikilvægi hreinlætis í tengslum við íþróttir og sundiðkun Útskýrt líkamlegan mun á kynjum. Notað einföld hugtök sem tengjast sundiðkun og líkamlegri áreynslu Gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum. Þekkt heiti helstu líkamshluta, magn - og afstöðuhugtaka og hreyfinga,
Öryggis- og skipulagsreglur Farið eftir öryggis-, skipulags- og umgengnisreglum sundstaða og brugðist við óhöppum | Líkamsvitund, leikni og afkastageta Nemendur taka þátt í ýmsum leikjum og æfingum. Nota ýmis hjálpartæki eins og sundfit , M-kút og flá til að efla fóta- og handahreyfingar. Kafa eftir hlutum á botni laugar og blása plastflöskum til að æfa öndun
Félagslegir þættir Fjölbreyttir leikir sem krefjast mismunandi reglna, samvinnu og samskipta. Tjái skoðun sína á æfingum og leikjum.
Heilsa og efling þekkingar Fræðsla og umræður um umhirðu líkamans Þjóðlegir leikir.
Öryggis- og skipulagsreglur Nemendur þvoi sér, þurrka, klæða sig, ganga frá fötum og handklæði. Þjálfist að fara eftir fyrirmælum kennara í leikjum. Nemandi þjálfi sig í að fara eftir reglum á sundstöðum. | Virkni, vinnusemi sjálfsmat og símat.
Kennari metur vinnu nemenda og virkni jafn og þétt og sýnir mat í Mentor. Þannig er leiðsagnarmat sýnileg og virkt.
|
Stærðfræði
Námsefni: Sproti 3a, 3b, 4a, 4b, þemaverkefni frá kennara
Námsaðlögun:
Gert er ráð fyrir að nemendur tileinki sér nám á mismunandi hraða og við mismunandi aðstæður. Til að koma til móts við það verða verkefni fjölbreytt, unnið með raunveruleg verkefni, í gegnum leiki og spil, unnið í tölvum og námsbókum. Nemendur eru hvattir til að nýta sér hjálpargögn eins og talnagrindur, klukkur, margföldunartöflur, kubba, form, talnalínur, einingakubba og vasareikna. Þeir nemendur sem þurfa meiri áskorun sleppa tökum á hlutbundinni vinnu og fá meira krefjandi verkefni t.d. í gegnum forrit og tölvur. Nemendur eru oft hafðir með í ráðum með val á verkefnum og gætu þau tengst styrkleika þeirra.
Nemendur sem t.d. vinna hægt eða þurfa “léttan” stuðning vinna að sömu viðfangsefnum og hinir en kennari velur úr það sem hentar þeim best og mikilvægast er að leggja áherslu á. Þeir sem eru með alvarlegri vanda fá efni sem kennari og sérkennari setja saman fyrir þá og þeir nemendur fá stuðning við námið hjá sérkennara, ýmist inn í stofunni eða farið annað í smærri hópum eða einstaklingslega.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir Nemendur: | Námsmat |
Að geta spurt og svarað með stærðfræði - tekið þátt í samræðum um spurningar og svör sem eru einkennandi fyrir stærðfræði
- leyst stærðfræðiþrautir um viðfangsefni sem gefa tækifæri til að beita innsæi, nota áþreifanlega hluti og eigin skýringarmyndir
- sett fram, meðhöndlað og túlkað einföld reiknilíkön, talnalínur, teikningar og myndrit sem tengjast umhverfi hans og daglegu lífi
- rökrætt af innsæi um stærðfræðiverkefni sem tengjast eigin reynsluheimi, rökstutt niðurstöður sínar, val á lausnaleiðum og fylgt röksemdafærslu annarra
| - Vinna saman að lausnum verkefna og þrauta
- Nota myndir og hlutbundin gögn við lausnir verkefna og þrauta
- Vinna með ýmis stærðfræðileg gögn, lesa úr þeim og segja öðrum frá
- Vinna saman að lausn verkefna og þrauta, rökræða leiðir, útskýra hver fyrir öðrum sína leið og skoða niðurstöður hvers annars
|
|
Að kunna að fara með tungumál og verkfæri stærðfræðinnar - notað myndmál, frásögn og texta jafnhliða táknmáli stærðfræðinnar og unnið með innbyrðis tengsl þeirra
- túlkað og notað einföld stærðfræðitákn, þar með talið tölur og aðgerðamerki og tengt þau við daglegt mál
- tekið þátt í samræðum um stærðfræðileg verkefni
- notað hentug verkfæri, þar með talin hlutbundin gögn, reiknirit, talnalínu, vasareikna og tölvur, til rannsókna á stærðfræðilegum viðfangsefnum
| - Nota fjölbreyttar leiðir við lausn verkefna eins og að teikna, segja frá, skrifa lausnir með bókstöfum og/eða tölustöfum og táknum stærðfræðinnar
- Vinna með algengustu stærðfræðitáknin og sú vinna sett í samhengi við daglegt líf og mál
- Kennari og nemendur ræða saman um verkefni, hugtök og leiðir
- Vinna með gögn eins og kubba, talnalínur, hundraðstöflu, margföldunartöflur, málbönd, vasareikna, tölvur, kennslupeninga, klukku, rúmfræðiform, pinnabretti, einingakubba , rimar, brotaspjöld, talnagrind og numicon.
- Læra að nýta sér t.d. reglur, hugtök og stoðir sem eru sýnilegar í kennslustofunni
| |
Vinnubrögð og beiting stærðfræðinnar - tekið þátt í að þróa fjölbreyttar lausnaleiðir með því m.a. að nota hlutbundin gögn og teikningar
- kannað og rannsakað með því að setja fram tilgátur og gera tilraunir með áþreifanlegum gögnum
- lesið og rætt um einfaldar upplýsingar, þar sem stærðfræðihugtök eru notuð
- undirbúið og flutt stuttar kynningar á eigin vinnu með stærðfræði
- unnið í samvinnu við aðra að lausnum stærðfræðiverkefna þar sem byggt er á forsendum og hugmyndum nemenda
- notað stærðfræði til að finna lausnir á verkefnum sem takast þarf á við í daglegu lífi og gera sér grein fyrir verðgildi peninga
- borið skynbragð á hverjir möguleikar og takmörk stærðfræðinnar til að lýsa veruleikanum
| - Nýta sér hlutbundin gögn og teikningar við lausn þrauta og verkefna
- Setja fram tilgátu um valið efni, framkvæma eigin tilraun og fá niðurstöðu sem þeir kynna
- Lesa upplýsingar með stærðfræðihugtökum og ræða þær við aðra
- Búa til orðadæmi fyrir hina nemendurna
- vinna opin verkefni með peningum þar sem þurfa að gera sér grein fyrir verðgildi þeirra
| |
Tölur og reikningur - notað náttúrulegar tölur, raðað þeim og borið saman
- notað tugakerfisrithátt
- reiknað með náttúrulegum tölum á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt
- tekið þátt í að þróa hentugar aðferðir sem byggja á eigin skilningi við reikning samlagningar-, frádráttar-, margföldunar- og deilingardæma
- leyst viðfangsefni sem sprottin eru úr daglegu lífi og umhverfi með hugarreikningi, vasareikni, tölvuforritum og skriflegum útreikningum
- gefið dæmi um og sýnt hvernig einföld almenn- og tugabrot og hlutföll eru notuð í daglegu lífi
| - Umræður um hugtök um tölur og tákn stærðfræðinnar
- Samræður um stórar og litlar tölur, allt frá tölum minni en 0 og tölur sem eru stærri en 1000
- Spila spil eins og yatzy, ormaspil, drottningaspilið o.fl.
- Vinna með hundraðstöfluna
- Ræða um og vinna með einingar, tugi, hundruð, þúsund
- Nýta fjölbreytt hjálpargögn við lausn verkefna
- Kynnast nokkrum aðferðum eins og að draga saman einingar, tugi, hundruð o.sfrv. nota talnalínu og fylla upp í tugi, taka til láns, geyma o.s.frv.
- Umræður og verkefni um tíuvini
- Vinna með samlagningu eininga og útkomu þeirra
- Nýta fjölbreyttar leiðir við lausnir verkefna með reikniaðgerðunum fjórum eins og spil og leiki, þrautalausnir, myndræna framsetningu, nota stærðfræðitákn og texta
- Vinna hlutbundið með almenn brot og spila spil eins og pizzaspil
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Kannanir
|
Algebra - kannað, búið til og tjáð sig um reglur í talnamynstrum og öðrum mynstrum og spáð fyrir um framhald mynsturs, t.d. með því að nota líkön og hluti
- notað táknmál stærðfræðinnar til að meta sanngildi og tjá vensl eins og jöfnuð og röð
- fundið lausnir á jöfnum með óformlegum aðferðum og rökstutt lausnir sínar t.d. með því að nota áþreifanlega hluti
| - Skoða og kanna mynstur og búa til mynstur, hlutbundið og óhlutbundið
- Leikir, teikningar og verkefni á vef
- Útiskóli - Skoða mynstur í umhverfinu
- Umræður um hugtökin stærra en, minna en og jafnt og
- spila spil um stærri en, minni en og jafnt og
- Umræður um jöfnur og jafnaðarmerkið
- Tilraunir með jöfnur og ójöfnur
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Kannanir
|
Rúmfræði og mælingar - notað hugtök úr rúmfræði s.s. um form stærðir og staðsetningu til að tala um hluti og fyrirbrigði í daglegu lífi og umhverfi sínu
- gert óformlegar rannsóknir á tví- og þrívíðum formum teiknað skýringamyndir af þeim og hlutum í umhverfi sínu
- unnið með mælikvarða og lögun
- áætlað og mælt lengd, flöt, rými, þyngd, tíma og hitastig með einföldum mælitækjum og notað viðeigandi mælikvarða
- rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota tölvur og hlutbundin gögn
- speglað og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir á mynstrum sem þekja flötinn
- borið saman niðurstöður mismunandi mælinga og túlkað niðurstöður sínar
| - Umræður um rúmfræðihugtök
- Finna rúmfræðiform í umhverfinu
- Skoða rúmfræðiform, tví- og þrívíð
- Margskonar tilraunir með rúmfræðiform, búa til formin og finna hvað er sameiginlegt og hvað ólíkt
- Kynningar á niðurstöðum tilrauna
- Margskonar spil og verkefni á vef
- Mæla allt mögulegt með mismunandi mælitækjum og æfa sig í að nota viðeigandi mælieiningu
- Tilraunir með mælingar, nota ágiskun og mæla og bera saman niðurstöður og kynna niðurstöðurnar fyrir öðrum.
- Búa til mynstur og myndir með speglun og hliðrun
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Jafningjamat
|
Tölfræði og líkindi - safnað gögnum í umhverfi sínu og um eigið áhugasvið
- talið flokkað og skráð, lesið úr niðurstöðum sínum og sett upp í einföld myndrit
- tekið þátt í umræðum um gagnasöfnun og myndrit bæði eigin og annarra
- tekið þátt í umræðum um tilviljanir og líkur, s.s. hvað er líklegt að muni gerast og hvað er tilviljunum háð
- gert einfaldar tilraunir með líkur og borið skynbragð á áhrif þeirra í spilum
| - Umræður um hugtök tölfræðinnar
- Gera athuganir, vinna með gögn og setja niðurstöður sínar fram
- Kynna niðurstöður og sýna myndir, segja frá hvernig gögnum var safnað
- Umræður um líkur og hvenær eru miklar líkur á einhverju og hvenær miklar, hvað hefur áhrif?
- Gera tilraunir um líkur t.d. með peningakasti, teningakasti o.fl
- Allskonar spil
- Útiskóli - safna gögnum fyrir myndrit
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Jafningjamat
|
Upplýsinga og tæknimennt
Upplýsinga- og tæknimennt er samþætt með íslensku, samfélags- og náttúrufræði (þema).
Námsaðlögun:
Nemendur sem þurfa meiri áskorun geta fengið stærri og flóknari verkefni. Nemendur sem þurfa stuðning gera aðgengilegri verkefni og fá meiri aðstoð.
Hæfniviðmið Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Vinnulag og vinnubrögð - nýtt upplýsingaver sér til gagns og ánægju, s.s. til lesturs, hlustunar og leitarnáms
- nýtt rafrænt námsefni á einföldu formi til stuðnings við vinnutækni og vinnulag,
- sýnt frumkvæði og tekið þátt í samvinnuverkefnum undir leiðsögn,
- gert sér grein fyrir ólíkum aðferðum við notkun á ýmsum tæknibúnaði,
- beitt undirstöðuatriðum í fingrasetningum.
| - Nota hljóðbækur, rafbækur, vefefni, leit á netinu, leiki og fleira í náminu í öðrum greinum
- læra að nota orðabók, leiðréttingarforrit, ritvinnsluforrit, töflureikni, teikningu o.fl sem þeir nýta við verkefnavinnu í öðrum námsgreinum
- læra að nota forrit sem hægt að nota til miðlunar eins og t.d. book creator, canva, puppet pals, toonytool, padlet og google skyggnur
- Æfa fingrasetningu með t.d. æfingum inn á mms.is (fingrafimi)
| |
Upplýsingaöflun og úrvinnsla - leitað upplýsinga og nýtt við verkefnavinnu,
- nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni,
- unnið með heimildir,
- nýtt upplýsingatækni og forrit við uppbyggingu einfaldra verkefna,
- nýtt hugbúnað/forrit við framsetningu á einföldum tölulegum gögnum.
| - Afla sér upplýsinga á netinu í verkefnavinnu
- Nota efni á neti t.d í stærðfræði og í þemum
- Gera verkefni þar sem þeir þurfa að afla sér upplýsinga á neti og nota einfaldar heimildir
- Skila verkefnum á tölvutæku formi í þemum t.d. google skjöld, google slides, google sites og fleiri sem áður hafa verið talin upp
- Gera könnun og kynna niðurstöðurnar fyrir samnemendum
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Jafningjamat
|
Tækni og búnaður - notað hugbúnað/forrit við einföld ritunarverkefni og framsetningu tölulegra gagna,
- notað einfaldan hugbúnað/forrit við myndvinnslu,
- nýtt hugbúnað við einfalda vefsmíð.
| - Vinna verkefni í skjölum og töflureikni
- Vinna með myndir í google myndir.
- Gera einfalda heimasíðu í google sites
| - Leiðsagnarmat
- Sjálfsmat
- Jafningjamat
|
Sköpun og miðlun - lýst á einfaldan hátt eigið upplýsinga- og miðlalæsi,
- notað hugbúnað/forrit við miðlun þekkingar á einfaldan hátt.
| - Samræður
- Kynna verkefni með mismunandi tækni eins og áður hefur verið lýst
| |
Siðferði og öryggismál - sýnt ábyrgð í meðferð upplýsinga,
- farið eftir einföldum reglum um ábyrga netnotkun og er meðvitaður um siðferðislegt gildi þeirra.
| - Samræður um netöryggi og vefefni inn á mms.is
- Verkefni inn á saft.is
| |
Lífsleikni og bekkjarfundir
Á bekkjarfundum eru tekin fyrir málefni líðandi stundar og þau rædd með áherslu á markmið lykilhæfni. Nemendur geta komið með mál á bekkjarfund sem þeir vilja ræða, stundum fara þau mál áfram á skólaþing. Undirbúningur mála fyrir skólaþing fer fram á bekkjarfundum. Farið er eftir ákveðnum samræðureglum á bekkjarfundum sem samþykktar eru á fyrsta bekkjarfundi skólaársins. Lífsleikni tengist einnig öllum námsgreinum.
Hæfniviðmið - Lykilhæfni Við lok 4. bekkjar getur nemandi: | Leiðir | Námsmat |
Tjáning og miðlun | - Tjá sig á bekkjarfundum
- Segja sína skoðun og rökstyðja hana
- Nota virka hlustun þegar aðrir tala
- Halda sig við umræðuefnið
| Leiðsagnarmat Sjálfsmat |
Skapandi og gagnrýnin hugsun | - Vera virkur í að koma með hugmyndir að úrlausnum
- Umræður um muninn á skoðunum og staðreyndum
- Taka þátt í að setja viðmið um árangur í öðrum námsgreinum
- Geta komið með nýja/aðra hugmynd að úrlausn
- Æfa sig í að geta tekið eigin mistökum og lært af þeim
| Leiðsagnarmat Sjálfsmat
|
Sjálfstæði og samvinna | - Fara eftir reglum sem settar hafa verið fyrir bekkjarfund.
- Vita hvert hlutverk hlustanda er eða þess sem hefur orðið.
- Unnið með styrkleika nemenda
- Æfa sig í að segja frá því í hverju styrkleikar manns liggja t.d. þegar leiðtogar velja leiðtogafærni sem kenna á.
- Vinna vel með öðrum t.d. við undirbúning leiðtogaþjálfunar.
- Æfa sig í að hlusta á þann sem leiðbeinir og taka leiðbeiningum vel.
| Jafningjamat
|
Nýting miðla og upplýsinga | - Nota mismunandi tegundir miðla til að finna t.d. rök eða hugmyndir fyrir mál á skólaþing. Einnig fyrir verkefni í leiðtogaþjálfun
- Umræður um meðferð upplýsinga
- Þagnarskylda á bekkjarfundum.
| Leiðsagnarmat |
Ábyrgð og mat á eigin námi | - Tala um styrkleika okkar allra, hversu ólíkir þeir eru og eins veikleikar okkar
- Taka þátt í að setja viðmið um árangur í t.d. þemum og stærðfræði
- Taka þátt í að velja sér viðfangsefni og verkefni út frá hæfniviðmiðum aðalnámskrár
|
|
Umhyggja, virðing, metnaður, gleði