Kennsluáætlun: Hönnun og smíði
Hönnun og smíði 4. bekkur | Kennari: Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir | |||||
Tímabil | Hæfniviðmið / Viðfangsefni / Markmið | Námsþættir | Námsefni/ kennslugögn | Kennsluhættir | Matsviðmið/ Námsmat | |
28.08 -16.10 18.10 -11.12 13.12 -12.02 14.02 -04.04 09.04 -30.05 | Geti dregið einfalda skissu og tvívíða teikningu til að útskýra hugmyndir sínar. Geti valið og notað nokkur verkfæri sem hæfa viðfangsefninu á öruggan hátt. Geti notað og beitt tálgunarhníf. Geti notað hamar, geti gert samsetningar, límingar og neglingar. Geti notað pensla og málningu. Geti teiknað og yfirfært eigin myndsköpun á smíðaefni. Getir unnið verkefni frá hugmynd að fullunnum hlut. Geti notað tommustokk til mælinga. Geti notað litla handsög/laufsög og geti notað sandpappír. Geti notað tifsög með aðstoð. Geti sýnt góða nýtingu þeirra efna sem unnið er með. Geti gert grein fyrir vinnuferli verkefnisins með orðum. Geti greint grein fyrir nokkrum smíðaefnum sem unnið er með. Geti beitt líkamanum rétt við vinnu sína og sýnt rétta notkun hlífðarbúnaðar. | Nemendur tileinki sér ábyrga umgengni og öryggisatriði við verklega vinnu. Aðrar reglur í smíðastofunni búa nemendur til í sameiningu. Læra rétta umgengni við vélar. Handverk Læra að beita einföldum handverkfærum og grunnundirstöðu við tálgun. Hönnun og tækni Nemendur læri að teikna upp verkefnin sín, hanna eins og unnt er sjálfir og hugi að formi og litum. Velji heppileg efni til að vinna hlutinn í út frá notagildi og útliti. Nemendur þekki mun á mismunandi viðartegundum. Nemendur læra að þekkja algeng smíðaefni og læra að yfirborðsmeðhöndla efni með vatnsleysanlegum efnum. | Innlögn og sýnikennsla Einstaklingskennsla Vettvangs ferðir Útikennsla Umræður | Nemendur teikna og smíða púsluspil. Nemendur tálga lyklakippu. Aukaverkefni: Lyklahús. | Verkefni og vinnulag nemenda er metið eftir
Námsmat samkvæmt hæfniviðmiðum aðalnámskrár. | |
Skólaárið 2024 - 2025